Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Blaðsíða 46
44*
Búnaðarskýrslur 1957
11. Kaupgreiðslur við landbúnaðarstörf 1957.
Farm wages 1957.
Tafla XIII á bls. 52—53 sýnir fram taldar kaupgreiðslur við landbúnaðarstörf
árið 1957. Eru í töflunni sundurliðaðar kaupgreiðslur bænda einna, en einnig eru
sýndar samtölur af kaupgreiðslum allra framleiðenda landbúnaðarafurða.
í töflunni er greint milli kaupgreiðslu til nánustu vandamanna (foreldra og
barna) og til allra annarra (þar með systkina og fjarskyldari vandamanna). Hvor-
um þessara flokka er skipt í þrennt: Karlar í vinnualdri, konur á vinnualdri og
unglingar og gamalmenni. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve mikið kaup befur verið
greitt samkvæmt framtölum í hverjum þessum flokki 1951, 1954 og 1957, talið
£ þús. kr. (fæði og önnur greiðsla í fríðu meðtalin):
I Börn og foreldrar 1951 1954 1957
Karlar á vinnualdri 17 088 19 273 23 081
Konur á vinnualdri 9 958 11 577 14 352
Unglingar og gamalmenni 1 375 985 2 195
Samtals 28 421 31 835 39 628
II Aðrir
Karlar á vinnualdri 14 975 16 519 20 657
Konur á vinnualdri 8 523 8 901 10 079
Unglingar og gamalmenni 4 522 5 991 9 449
Samtals 28 020 31 411 40 185
AUs X+II 56 441 63 246 79 813
Vinnumagn þessi sömu ár, tahð í dög um, var:
I Börn og foreldrar 1951 1954 1957
Karlar á vinnualdri 619 491 493 854 425 832
Konur á vinnualdri 507 865 442 354 386 895
UngUngar og gamalmenni 94 777 46 154 63 439
Samtals 1 222 133 982 362 876 166
n Aðrir
Karlar á vinnualdri 365 454 283 722 251 862
Konur á vinnualdri 321 806 266 690 222 432
Unglingar og gamalmenni 245 935 260 717 293 052
Samtals 933 195 811 129 767 346
AUs I+II 2 155 328 1 793 491 1 643 512
Hér er aðeins talin vinna við landbúnaðarframleiðsluna. Aðkeypta vinnu við
fjárfestingu átti fyrst að telja fram tekjuárið 1957, en framkvæmd þess virðist
hafa öll verið í molum, því að ekki voru talin fram nema 14 067 dagsverk (þar
með dagsverk áætluð af Hagstofunni, þegar aðeins kaupgreiðslan var tilgreind),
og samsvarandi kaupgreiðsla 3 221 þús. kr. Samkvæmt því ætti dagkaupið við
fjárfestingarstörf að hafa verið tæpar 229 kr., og stingur það mjög í stúf við fram-
tahð kaupgjald við venjuleg framleiðslustörf við landbúnað. En þess er að gæta,
að fjárfestingarstörfin eru öll unnin af körlum á vinnualdri, og í greiðslunum er
að verulegu leyti tahn verkfæraleiga, þ. e. þegar t. d. fjárfestingarstarf er unnið
af manni með dráttarvél, þá eru stundum aðeins taldir vinnudagar mannsins, en
greiðslur fyrir bæði mann og vél. Það segir sig sjálft, að upplýsingar um kaup-
greiðslu vegna fjárfestingar samkvæmt búnaðarskýrslum skattanefnda eru mark-
lausar og eru þær ekki birtar í þessu hefti.