Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Blaðsíða 66
64*
Búnaðarskýrslur 1957
Fasteignir eru hér fram taldar skv. hinu nýja fasteignamati, er tók gildi 1.
maí 1957. Mat þetta var að miklu leyti byggt á fasteignamatinu frá 1942, á þann
hátt, að það mat var hækkað um 30—400% eftir aðstöðu jarðanna til samgangna
og markaðar, auk þess sem það var hækkað vegna jarðabóta og nýbygginga. Þrátt
fyrir þessar hækkanir, sem samanlagt eru mjög verulegar, er fasteignamat þetta
mjög miklu lægra en söluverðmæti fasteigna var almennt 1957. Hækkun heildar-
matsverðs fram talinna fasteigna var frá 1954 til 1957 úr 68 922 þús. kr. í 228 700
þús. kr. eða um 232%. Mest var liækkun fram tahnna fasteigna frá 1954 til 1957
í Rangárvallasýslu, 431%, Kjósarsýslu 325%, Árnessýslu 316% og Eyjafjarðar-
sýslu 301%.
Landbúnaðarvélar eru alls taldar fram 1957 84 288 þús. kr. að verðmæti, móti
47 031 þús. kr. 1954 og 29 762 þús. kr. 1951.
Bifreiðir voru fram taldar að verðmæti 1957 53 330 þús. kr., en 25 989 þús.
kr. 1954 og 12 745 þús. kr. 1951. — Þessir tveir eignaliðir, landbúnaðarvélar og
bifreiðir, hækkuðu samanlagt frá 1954 til 1957 úr 73 020 þús. kr. í 137 578 þús.
kr., þ. e. um 64 558 þús. kr., sem er rúml. 88%. Þessi hækkun að viðbættri fyrn-
ingu þessi 3 ár er samtals 350 þús. kr. eða 5 284 þús. kr. meiri en fjárfesting í
þessu er talin í töflum XXI—XXIII. Mismunurinn stafar af því, að þar er eigi
tahn með fjárfesting ,,búleysingja“ í bifreiðum.
Peningar, innstœður, verðbréf og útistandandi skuldir var alls talið fram 1957
87 781 þús. kr. Þessar eignir voru fram taldar 1954 71 166 þús kr.. og hafa sam-
kvæmt því aukizt um 16 615 þús. kr. þessi þrjú ár. Hér er ekki meðtalið innstæðu-
fé í peningastofnunum, því að það var gert skattfrjálst og undanþegið framtals-
skyldu með lögum nr. 46/1954.
„Aðrar eignir^, sem aðallega eru húsbúnaður, bátar, smíðaáhöld o. fl., hafa
hækkað í framtali frá því 1954 úr 21 056 þús. kr. í 27 649 þús. kr. eða um 6 593
þús. kr. Þessar upphæðir segja lítið til um raunverulegt verðmæti þeirra fjár-
muna, sem hér er um að ræða.
Skuldir framteljenda landbúnaðarafurða hafa aukizt mikið undanfarin ár svo
sem eðlilegt er, eins mikil og fjárfestingin hefur verið. í árslok 1957 voru þessar
skuldir samtals 425 149 þús. kr., en 239 039 þús. kr. 1954 og 127 283 þús. kr. 1951.
Hafa skuldirnar þannig aukizt með vaxandi hraða, um 37 509 þús. kr. að með-
altali á ári 1951—54, en um 62 037 þús. kr. að meðaltali á ári 1955—57. Af skuld-
um þessum voru 1957 235 570 þús. kr. skuldir við Byggingarsjóð og Ræktunar-
sjóð, en þær skuldir voru 116 042 þús. kr. 1954. Hafa þær því hækkað um 119 528
þús. kr. á þessum 3 árum eða um 39 843 þús. kr. að meðaltali á ári, og er hér um
að ræða skuldaaukningu vegna fjárfestingar einvörðungu. Aðrar veðskuldir hafa
hækkað úr 23 593 þús. kr. í 39 285 þús. kr. á þessum þremur árum eða um 15 692
þús. kr., og nemur sú hækkun 5 231 þús. kr. á ári að meðaltali. Mestur liluti þess-
arar skuldaaukningar mun einnig vera beinlínis vegna nýrrar fjárfestingar, þó að
þessi lán séu flest telcin út á veð í eldri eignum. „Allar aðrar skuldir“, en það eru
verzlunarskuldir, víxlar og skuldir við einstaklinga, hafa aukizt úr 97 042 þús.
kr. 1954 í 150 294, eða um 53 252 þús. kr., þ. e. um 17 751 þús. kr. að meðaltali
á ári. Eflaust er a. m. k. nokkur hluti þeirra vegna vélakaupa eða bústofnsaukn-
ingar.
Eignir umfram skuldir (8. dálkur 4- 11. dálkur) eru samkvæmt framtölum til
búnaðarskýrslu 719 283 þús. kr. í árslok 1957, en voru 442 442 þús. kr. 1954 og
344 322 þús. kr. 1951. Þetta er í tölum talið 276 841 þús. kr. eignaaukning í árs-
lok 1957 frá því í árslok 1954 og 374 961 þús. kr. eignaaukning frá 1951. Hér er