Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Síða 69
Búnaðarskýrslur 1957
67*
ars virðist það yfirleitt vera svo, að framleiðendur mjólkurafurða séu miklu tekju-
hærri en þeir, sem aðallega framleiða sauðfj árafurðir. Af þeim sýslum, er aðal-
lega framleiða sauðfjárafurðir, koma fram hæstar meðaltekjur í Dalasýslu og
Strandasýslu, en það stendur í sambandi við fjárskiptin þar.
Tekjur bænda vegna vinnu við eigin framkvœmdir á árinu eru ekki teknar
með, þegar heildartekjur hænda eru gerðar upp, hvorki í töflu XIV B né í 12.
yfirliti. Þetta stafar af því, að ekki eru til fullgildar heimildir um þetta efni.
Um framtal á eignum bœnda er það fyrst að segja, að framtal tveggja eigna-
liða, fasteigna og sparifjárinnstæðna, er svo að segja alger markleysa. Þrátt fyrir
hækkun fasteignamatsins á árinu nam samanlagt matsverð fasteigna bænda
eigi nema 209,4 millj. kr. í árslok 1957, en fjárfesting bænda á árinu í jarðabót-
um, byggingum íbúðarhúsa og peningshúsa og rafvæðingu nam 194,4 millj. kr.
eða hér um bil jafn hárri upphæð. — Mikill hluti innstæðnanna er skattfrjáls,
og ekki skylt að telja þann hluta þeirra fram, enda mun það ekki gert. Af þessu
leiðir, að allur samanburður á eignaframtölum verður mjög marklítill. Þó er það
ljóst, að efnahagur hænda er mjög misjafn eftir sýslum. Eftir framtölunum eru
eignir bænda umfram skuldir í sýslunum svo sem hér segir:
AJls, Á bónda,
þús. kr. kr.
Gullbringusýsla 13 730 89 739
Kjósarsýsla 24 218 182 090
Borgarfjarðarsýsla 29 101 117 818
Mýrasýsla 28 228 129 477
Snæfellsnessýsla 17 116 68 739
Dalasýsla 12 705 60 213
Austur-Barðastrandarsýsla 6 997 80 425
Vestur-Barðastrandarsýsla 7 134 59 940
Vestur-ísafjarðarsýsla 7 258 65 387
Norður-ísafjarðarsýsla 9 970 83 781
Strandasýsla 11 938 66 322
Vestur-Húnavatnssýsla 22 707 101 371
Austur-Húnavatnssýsla 29 474 103 056
Skagaf jarðarsýsla 34 160 71 019
Eyjaf jarðarsýsla 37 732 91 365
Suður-Þingeyjarsýsla 33 840 72 462
Norður-Þingeyjarsýsla 18 830 87 991
Norður-Múlasýsla 25 894 62 850
Suður-Múlasýsla 19 975 64 854
Austur-Skaftafellssýsla 9 650 58 484
Vestur-Skaftafellssýsla 15 671 75 705
Rangárvallasýsla 48 265 95 010
Árnessýsla 97 077 125 919
Kaupstaðir 12 624 115 807
17. Verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar 1955—57.
Value of agricultural production 1955—57.
Taflan á bls. 78—80 um verðmœti landbúnaðarframleiðslunnar 1955—57 er
framhald af töflum um sama efni í Búnaðarskýrslum 1954 bls. 80—82 fyrir árin
1952—54 (og Búnaðarskýrslum 1951 bls. 34—40 fyrir árin 1935—51). Tafla þessi
er gerð á sama hátt og 1954 að öðru en því, að magnstölur fyrir mör og slátur
eru niður felldar og ullarmagn er miðað við óhreina ull, en var áður miðað við
hana þvegna.