Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Qupperneq 21
Föstudagur 12. september 2008 21Umræða
Það var einu sinni kona sem leit-
aði aðstoðar á Borgarbókasafninu;
hana vantaði bók og henni lá mikið
á. -Bókin er meðal annars um stríð,
sagði konan við bókasafnsfræðing-
inn og bætti við að það væri eitt-
hvað í henni sem minnti á samtal í
bók Guðrúnar Helgadóttur Sitji guðs
englar. Konan var með miða sem
hún rétti bókasafnsfræðingnum og á
honum var þessi tilvitnun í bók Guð-
rúnar:
Af hverju kemur stríð? spurði Lóa
Lóa.
Mamma hugsaði sig um.
Af því að allir eru alltaf í keppni
við aðra. Um auð og völd. Einhver
vill alltaf hrifsa meira á kostnað ein-
hverra annarra. Allir vilja vera mest-
ir og merkilegastir. Og til þess að ná
því beita menn ofbeldi.
-Manstu hvað bókin sem þú ert
að leita að heitir? spurði bókasafns-
fræðingurinn eftir að hafa lesið sam-
talið á milli Lóu Lóu og mömmunn-
ar.
-Nei, því miður, ég man það nefni-
lega ekki, sagði konan.
-En manstu eftir hvern bókin er?
spurði bókasafnsfræðingurinn.
-Nei, ég man það ekki heldur,
svaraði konan dauflega.
-Er þetta barnabók? spurði þá
bókasafnsfræðingurinn og vildi
þrengja hringinn til að geta sem fyrst
fundið bókina; konan neitaði því og
sagði að þetta væri heldur ekki ljóða-
bók og ekki leikrit og ekki sagnfræði-
rit og ekki ævisaga.
-Skáldsaga? spurði bókasafns-
fræðingurinn.
-Það hlýtur að vera, sagði konan
snubbótt.
-Íslensk? spurði bókasafnsfræð-
ingurinn.
-Ég veit það ekki en hún var á ís-
lensku, ég veit það af því að ég les bara
íslensku, ég las hana oft og ég verð að
lesa hana aftur af því að ég man ekk-
ert úr henni, en hún var frekar þunn,
ég man það, sagði konan.
-Frekar þunn skáldsaga sem
fjallar meðal annars um
stríð og minnir
mjög á Sitji guðs
englar, sagði
bókasafns-
fræðingurinn
meira eins
og við sjálf-
an sig um leið
og hann reyndi
hvað hann gat að
leysa ómögulega
gátu fyrir voðalega
tilætlunarsama
manneskju.
-Ég vissi að þetta
þýddi ekkert, sagði
konan þegar hún
kvaddi allt í einu í
miðri leit og bókasafnsfræðingur-
inn fann að hún kenndi honum um
minnisleysi sitt.
Mér datt sagan í hug þegar ég las
orðin hennar Kollu Bergþórs í Mogga
um Brekkukotsannál. Kolla segist
hafa lesið bókina fjórum sinnum til
að athuga hvort hún batnaði ekki,
en það hafi ekki gerst. Mig grun-
ar – og þetta er bara létt grunsemd
– að í lestrarhraðanum og ákefðinni
hafi Kolla týnt minninu og hafi því
alls ekki verið að gefa Brekkukots-
annál einkunnir í hinni vönduðu
Moggagrein heldur einhverri
allt annarri bók sem hún
man ekki lengur hvað
heitir en minn-
ir hana mjög á
Brekkukotsannál. En þar segir ein-
mitt svo agalega tilgerðarlega og
leiðinlega: Í Brekkukoti var sérhvert
orð dýrt, litlu orðin líka.
Nema hvað, nú fer bókaflóðið að
skella á og gott að taka til í minninu,
hreinsa stíflur og hugsa frjálslega,
lesa vel og gleyma ekki að njóta bók-
anna í svarthvítum sannleiksæsingn-
um og markaðsrokkinu.
Að lokum legg ég til að samið
verði undir eins við ljós-
mæður.
Hver er konan?
„Þórdís elva Þorvaldsdóttir bach-
mann.“
Hvað drífur þig áfram?
„Innblástur.“
Hvar ólstu upp?
„Ég hlaut mjög alþjóðlegt uppeldi. Ég
var þrítyngd fimm ára gömul.
Æskuárum mínum var dreift á milli
bandaríkjanna, svíþjóðar og Íslands.
Flutti endanlega til Íslands þegar ég
var 12 ára.“
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú varst lítil?
„Það var tekið viðtal við mig í Vikunni
þegar ég var sex ára. Þá langaði mig
að verða flugfreyja eða hárgreiðslu-
kona. Það eltist mjög fljótt af mér.
Þegar kynþroskaskeiðið hófst hjá mér
var ég viss í minni sök að ég yrði í
einhvers konar listum, spurningin var
ekki hvort ég færi í listir, heldur hvaða
listir.“
Hvaða leikriti færðu aldrei nóg
af?
„sex persónum í leit að höfundi eftir
Luigi pirandello. Það kannar það sem
er undir yfirborðinu á leikhúsinu
sjálfu, rífur það í sundur og reynir á
þolrifin. svo er það feikivel skrifað.“
Hefur þú gaman af spennu- og
sakamálaverkum?
„spennuverk kitla mig mjög mikið. Ég
er ekki sakamálafrík, en spennuþættir
og -myndir eru alveg að mínum
smekk.“
Er undarlegt að horfa á verk sem
þú samdir en leikstýrðir ekki?
„Já, það er það. Það er líka ofboðslega
gefandi. Ég hef verið mjög gæfurík
með mína leikstjóra og hef verið í
góðu samstarfi við þá.“
Hvaðan kemur innblásturinn að
handritinu?
„Þráhyggju. Ég skrifaði þríleik um
þráhyggju og Fýsn er lokaverkið í
þríleiknum.“
Er nýtt verk í pípunum?
„Já, það verk, sem ef allt gengur að
óskum, verður frumsýnt í október í
Iðnó og heitir dansaðu við mig.“
Hefur þú sagt alfarið skilið við
leiklistina?
„Nei, alls ekki. Ég var að klára að leika í
tveimur sjónvarpsþáttaseríum, annars
vegar svörtum englum sem Óskar
Jónasson leikstýrir og hins vegar
Ástríði eftir silju Hauksdóttur. Það er
síður en svo að ég slái slöku við þar.“
Minnisleysi í algleymingi
HrEystin uppmáluð sjósund er talið hafa sérlega jákvæð áhrif á heilsu fólks. Þessi hreystimenni létu sig ekki muna um að stinga sér til sunds við Nauthólsvíkina þó
hvorki væri sumar né sól. mynD DV / rakEl Ósk sigurðarDÓttir
ER ÍSLAND AÐ SÖKKVA?
„Já.“
HrEfna Hagalín,
18 ára nemi
„Nei, það er að styrkjast, það er
uppgjör.“
gunnar Einarsson,
52 ára sölustjóri
„Já, allavega í stjórnmálunum er það
frekar mikið að sökkva.“
Diljá sæVarsDÓttir,
19 ára nemi
„Já, það er alveg á leiðinni til fjandans,
sko.“
rútur skæringur
sigurjÓnsson,
23 ára nemi
Dómstóll götunnar
Í kvöld verður verkið Fýsn eftir hina
efnilegu ÞÓrDísi ElVu Þor-
ValDsDÓttur bachmann frumsýnt
í borgarleikhúsinu. Fýsn er lokaverkið í
þríleik eftir Þórdísi og vann verkið
leikritasamkeppnina sakamál á svið,
sem Leikfélag reykjavíkur stóð að fyrir
tveimur árum.
Spennuverk kitla
mig mjög mikið
„Nei, það hafa alltaf komið hlýnunar-
skeið.“
árni jÓnasson,
50 ára
kjallari
mynDin maður Dagsins
VigDís
grímsDÓttir
Konan neitaði því og
sagði að þetta væri held-
ur ekki ljóðabók og ekki
leikrit og ekki sagnfræði-
rit og ekki ævisaga.