Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Page 22
Föstudagur 12. september 200822 Menning DV Safnbók ljóða Sigurðar Loksins. Bókaforlagið JPV hefur loksins gefið út safnbók sem samanstendur af þremur ljóðabókum eftir Sigurð Pálsson, rithöfund og skáld. Bækurn- ar eru Ljóð námu land, Ljóð námu menn og Ljóð námu völd. Safnið hefur hlotið heitið Ljóð- námusafn og er þetta annað ljóðasafnið sem gefið er út eftir Sigurð. Það fyrra hét Ljóðvega- safn. Sigurður Pálsson er eitt af virtustu og ástsælustu ljóðskáld- um Íslands. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr á árinu fyrir bókina Minnisbók, sjálfsævisaga Sigurðar frá fyrstu árum hans í París. LEIKHÚS Sjálfstæðu leikhúsin verða öflug sem aldrei fyrr í vetur: Fjölbreytt dagskrá sjálfstæðu leikhúsanna Dagskrá allra aðildarfélaga Sjálf- stæðu leikhúsanna hefur verið gerð opinber. Hún er afar fjölbreytt að vanda en alls verður boðið upp á sextíu sýningar næsta vetur. Stærst- ur hluti sýninganna er íslensk verk ætluð börnum og ungu fólki en einn- ig verða á ferðinni danssýningar, ópera og hefðbundnar leiksýningar. Þess má geta að aðild- arfélög SL hafa sent öllum heimilum landsins klippikort sem veitir þús- und krónu afslátt af sýningum mán- aðarins í vetur. Hafnarfjarðarleikhúsið mun bjóða upp á fimm leiksýningar í vet- ur. Þar af eru tvær samstarfssýning- ar, Steinar í djúpinu og Húmanimal, sem verða frumsýndar hvor sínum megin við áramótin. Ævintýrið um Augastein snýr aftur í desember og um vorið ætlar Hafnarfjarðarleik- húsið að sýna Fjallið eftir Jón Atla Jónasson. Í Iðnó verður boðið upp á nýtt verk í haust eftir Þórdísi Elvu Bachmann sem nefnist Dansaðu við mig. Syst- ur eftir Ástrós Gunnarsdóttur, Láru Stefánsdóttur og Hrafnhildi Haga- lín í uppsetningu Pars pro toto verð- ur sýnt aftur eftir áramót. Drauma- smiðjan mun vera í samstarfi við Þjóðleikhúsið næsta vetur en mark- miðið er að koma á fót döff-leikhúsi á Íslandi og mun starfsemin hafa að- setur í Kúlunni. Act Alone-hátíðin á Ísafirði heldur áfram og þá verður Vesturport á faraldsfæti allt næsta ár með Woyzeck og Hamskiptin. Áætl- að er svo að frumsýna Faust í Þýska- landi næsta vor. Þetta er aðeins brot af því sem verður að gerast í sjálfstæðu leikhús- unum í vetur. Nánari upplýsingar eru á leikhopar.is. Myndir unnar eftir minni Í dag, föstudag klukk- an 17.00 verða opnaðar tvær sýningar í Gerðubergi. Annars vegar sýning Guðnýjar Svövu Strandberg listakonu en sýning- in ber heitið Flæði í Boganum þar sem má sjá pennateikning- ar og vatnslitamyndir. Mynd- irnar eru unnar eftir minni og pennateikningarnar vinnur hún blindandi. Hins vegar er það svo sýningin MOLA sem verður opnuð í kaffihúsinu en þar er um að ræða útsaumuð munstur og tákn í litríkum efnisbútum frá indíánaættbálkum í Suður- Ameríku. Tilbrigði á Café Karólínu Nú stendur yfir sýningin „Tilbrigði - Variation“ á Café Karólínu í Kaupvangsstræti 23 á Akureyri eftir Sigurlínu M. Grétarsdóttur. Lína, eins og hún er betur þekkt, opnaði sýning- una 6. september síðastliðinn og mun hún standa til þriðja næsta mánaðar. Lína not- ar bland- aða tækni í verkunum, aðferð sem hún hefur verið að þróa í rúm tvö ár. Í verkunum á sýningunni á Café Karólínu notar hún acryl, lakk, papp- ír, hrosshár og fleira. Um er að ræða fimmtu einkasýningu listakonunnar en einnig hefur hún tekið þátt í nokkrum sam- sýningum. „Ég byrjaði í ballett sjö ára gam- all í Listdansskóla Íslands. Á þess- um tíma var að byrja strákahópur í skólanum sem ég heyrði af í gegn- um mömmu sem er dansari. Ég ákvað að prufa, komst inn í skólann og svo hefur maður einvern veginn aldrei hætt. Maður tímir heldur ekki að hætta því þetta er svo gaman,“ segir Frank Fannar Pedersen ball- ettdansari. Samkvæmt heimildum blaðamanns er Frank, sem er ein- ungis átján ára, feikilega efnileg- ur ballettdansari. Staðreyndirnar tala líka sínu máli því nýlega bauðst Frank að taka þátt í sterkri, alþjóð- legri ballettkeppni sem fram fer í Peking í Kína í næsta mánuði. Og fyrir ferðalagið, þátttöku og uppi- hald þarf hann ekki að borga krónu því mótshaldarar borga brúsann eftir að hafa séð myndband af Frank dansa. Við komum nánar að keppninni í Kína á eftir. Fyrst langaði blaða- mann aðeins að fræðast um bak- grunn Franks og heyra meðal ann- ars af því hvernig það sé að vera strákur í stelpuheimi ballettsins. Kominn af sviðslistafólki Móðir Franks, sem hann nefndi hér að framan, er Katrín Hall, list- rænn stjórnandi Íslenska dans- flokksins og margreyndur dansari. Faðir Franks er Guðjón Pedersen, leikari og leikstjóri, sem nýlega lét af störfum sem borgarleikhússtjóri. Frank hefur því á vissan hátt lifað og hrærst í leikhús- og sviðslistaheim- inum frá barnæsku. „Auðvitað hefur það einhver áhrif að maður fari þessa leið að for- eldrarnir vinna við þetta. Þegar við bjuggum í Þýskalandi ólst ég upp í leikhúsinu þar og svo eftir að pabbi tók við stöðu borgarleikhússtjóra var ég alltaf eitthvað að sniglast þar,“ segir Frank en hann og fjölskyldan bjuggu í Köln í nokkur ár þar sem mamma hans var dansari hjá dansflokki óp- eruhússins í Köln. „En ég er samt sem áður kominn úr mikilli fótbolt- afjölskyldu,“ bætir Frank við og hlær. „Afi minn var í mörg ár að reyna að troða mér í fótbolta. Ég prófaði allt- af en svo var þetta einhvern veginn ekki fyrir mig. Ég hafði gaman af fót- boltanum en maður getur náttúr- lega ekki verið í öllu.“ Frank var líka í fimleikum til skamms tíma og segir bæði fótboltann og fimleikana fínan grunn fyrir ballettdansinn. Fékk að heyra það Frank kannast að sjálfsögðu við Menning Systur dansverkið systur sem frumsýnt var í Iðnó fyrr á árinu fer aftur á fjalirnar í vetur. Dansar gegn norminu Frank Fannar Pedersen „en maður fékk alveg að heyra það að maður væri öðruvísi. svo þegar ég kom upp í gagnfræðaskóla var að mörgu leyti gaman að æfa ballett því þá hafði maður mikilvægt hlutverk í skrekk,“ segir Frank. mYNd/HeIÐa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.