Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Síða 29
Föstudagur 12. september 2008 29Helgarblað Singing Bee Nýr íslenskur tónlistar- og skemmtiþáttur hefur göngu sína á skjá einum undir dyggri stjórn Jónsa í Í svörtum fötum. Þátturinn sem ber heitið singing bee reynir á þekkingu keppenda á söngtextum og sönghæfileikar skipta engu máli. Þátturinn er byggður á bandarískri fyrirmynd sem farið hefur sigurför um heiminn en hingað til hafa verið gerðar þrjátíu útgáfur af þættinum um víða veröld. Það eina sem þátttakendur þurfa að hafa fram að færa er að kunna texta við hin ýmsu lög. Hljómsveit þáttarins, buff, byrjar að spila og syngja þekkt lag en um leið og sveitin hættir að spila þarf keppandinn að taka við og klára textalínurnar. Nokkrir keppendur spreyta sig í hverjum þætti en einn stendur uppi sem sigurvegari. Gaman oG Glæpir Sem betur fer halda sjónvarpsstöðvarnar áfram að bæta leiknu innlendu efni við dagskrá sína. Stöð 2 býður upp á þrjá nýja gamanþætti og RÚV upp á tvo nýja spennuþætti svo eitthvað sé nefnt. Skjár einn heltist úr lestinni með einn nýjan innlendan þátt sem heitir erlendu nafni. DV tók saman yfirlit yfir dagskrá vetrarins Latibær Vinsælasta íslenska barnaefni fyrr og síðar er komið á stöð 2. solla stirða, Nenni níski, glanni glæpur og að sjálfsögðu Íþróttaálfurinn ætla að skemmta börnum á öllum aldri í talsettri glænýrri seríu þar sem ævintýrin halda áfram í Latabæ. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þá sigurför sem magnús scheving hefur farið með þetta stórmerki- lega hugarfóstur sitt sem byrjaði sem leiksýning á Íslandi og er nú orðið að farsælasta sjónvarpsefni sem Íslendingur hefur skapað. sjónvarpsþættirnir hafa verið sýndir í yfir eitt hundrað löndum og njóta sívaxandi vinsælda. stöð 2 hóf sýningar á annarri þáttaröðinni í ágúst. Réttur réttur er fyrsti íslenski lögfræðikrimminn – ný leikin spennuþáttaröð sem gerist í rammíslenskum heimi lagaflækja og glæpa. aðalhöfundur þáttaraðar- innar er sigurjón Kjartansson en hann var einn af höfundum pressu, íslensku spennuþáttanna sem slógu í gegn síðastliðinn vetur. söguhetjurnar eru þrír lögmenn sem allir starfa á lögmannastofunni réttur. sá fremsti meðal jafningja er Logi, nýskriðinn yfir fertugt. Hann dansar á línunni, bæði í einkalífi og í starfi. engu að síður er hann einn besti lögmaður landsins og oft er hann beðinn um að taka að sér mörg af erfiðustu glæpamálunum sem upp koma. ekki hefur endanlega verið gengið frá því hver leikstýrir þáttunum né hverjir verða í aðalhlutverkum. sýningar hefjast í desember. Ástríður Ný rómantísk gamanþáttaröð með Ilmi Kristjánsdótt- ur í aðalhlutverki. Ilmur leikur unga konu sem ræður sig til vinnu hjá fjármálafyrirtæki. Þótt Ástríði reynist erfitt að fóta sig í hörðum heimi viðskiptalífsins gengur henni enn brösuglegar í miklu harðari heimi ástarlífsins. Þar veit hún sjaldnast í hvorn fótinn hún á að stíga og veðjar ósjaldan á þann eina ranga – jafnvel þótt sá rétti sé beint fyrir framan nefið á henni. auk Ilmar fara með stór hlutverk í Ástríði þau Kjartan guðjónsson, Friðrik Friðriksson, rúnar Freyr gíslason, Þórir sæmundsson, Þóra Karítas Árnadóttir, margrét Vilhjálmsdóttir og Hilmir snær guðnason. sigurjón Kjartansson hafði yfirumsjón með handritinu en höfundar auk hans eru þau Ilmur Kristjánsdóttir, Katla margrét Þorgeirsdóttir og silja Hauksdóttir sem leikstýrir þáttunum. Markaðurinn síðar í haust hefur göngu sína þátturinn markaðurinn, vikulegur spjallþáttur í umsjá björns Inga Hrafnssonar þar sem tekið verður á hressilegan og aðgengilegan hátt á því hæsta sem ber hverju sinni í viðskipta- lífinu, almannahagsmunum og þjóðmálunum almennt. björn Ingi er ritstjóri viðskiptablaðsins markaðarins sem fylgir Fréttablaðinu á miðvikudögum en er líklega þekktastur fyrir störf sín sem borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins. Innlit/útlit Game Tíví Logi í beinni Sjálfstætt fólk Kompás Mannamál Algjör Sveppi! Hæðin Eldsnöggt með Jóa Fel Þættir sem snúa aftur Þættir sem snúa aftur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.