Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Síða 35
Föstudagur 12. september 2008 35Helgarblað eitthvað eftir það. Samt fannst mér óhætt að vera þarna.“ Heim og út aftur „Ég kom heim eftir bakpoka- ferðalagið um Asíu og vann í Máli og menningu í rúmt hálft ár. Eftir það pakkaði ég niður í bakpoka heilum 11 kílóum og flutti til Kambódíu. Ein. Ég var búin að finna íbúð í Phnom Penh og búin að senda munaðarleysingja- heimili bréf og láta vita að ég væri að koma að starfa sem sjálfboðaliði við umönnun barna og enskukennslu. Að sjálfsögðu var mér vel tekið. Þetta var á Light House orphanage. Ég lenti á laugardegi og byrjaði að kenna á mánudegi. Og hafði aldrei kennt áður. En það þýddi ekkert ann- að en að hella sér út í þetta því ég var sótt klukkan 7 að morgni og mér sagt að ég væri að fara að kenna. Ég naut vinnunnar en fór samt burt eftir mánuð því það var svo mikil spilling á heimilinu.“ Spilling á munaðarleysingja- heimili „Stjórnandinn tók peninga sem fólk gaf heimilinu og stakk þeim í eigin vasa. Við sjálfboðaliðarn- ir spurðum hann til dæmis hvern- ig hann hefði opnað eigin veitinga- stað og hann sagði hróðugur að hann hefði gert það fyrir fjárframlög ferða- manna. Börnin áttu að fá þessa pen- inga en þau voru vannærð og bækur og dót sem þeim var gefið var sett á markað og selt til að fjármagna líf for- stöðumannsins. 26 dollarar á dag var upphæðin sem var notuð í mat fyr- ir rúmlega 70 börn. Þau voru ekkert skráð hjá hinu opinbera og þetta var allt ólöglegt starf. Ein stelpan á heimilinu veiktist af malaríu og forstöðumaðurinn gerði ekkert í því, honum var sama og ef upp komu hjartagallar eða annað al- varlegt hjá börnunum var farið með þau til læknis en forstöðumaðurinn misnotaði samt fé sem átti að fara í læknishjálpina. Ég var alltaf beðin um meiri og meiri peninga í starfið þarna. Ég gaf 50 dollara í mat og sagði að börnin ættu að fá almennilegt kjöt og grænmeti. Það átti að duga í einn dag fyrir 60 manns og hefði átt að vera góð viðbót. En það sást ekkert kjöt og pen- ingarnir lentu í röngum vasa. Eftir að þetta gerðist í þriðja skiptið ákvað ég að hætta og settist inn á bar til að íhuga næstu skref. Ég velti því fyr- ir mér hvað væri til ráða og hvar væri þörf fyrir mig. Þá kom inn ungur mað- ur frá Ástralíu og sagði mér að hann væri á heimleið og á hans munaðar- leysingjaheimili vantaði sjálfboða- liða í hans stað. Þetta gekk strax upp og ég fór að starfa þar. Einnig fann ég vinnu hjá nýju hjálparstarfi sem heit- ir Who Will, en það eru sjálfboðalið- ar sem störfuðu áður hjá Lighthouse sem vilja, eins og ég, binda enda á spillinguna í barnaheimilabransan- um, ég varð aðstoðarfjáröflunarfull- trúi fyrir starfið. Við stofnuðum súpu- eldhús í einu fátækasta hverfi Phnom Penh og erum að vinna að byggingu á sjálfbæru barnaþorpi. Sú vinna geng- ur reyndar hægt en við munum gera það, eins og slagorðið okkar segir: „Who will? We will.“ Vinir mínir sáu strax breyting- arnar á mér við umskiptin, ég varð miklu léttari og áhyggjulausari. Á nýja staðnum, Nation Action Culture Ass- ociation (NACA), gekk ég úr skugga um að allt væri með felldu. Ég fékk að skoða bókhaldið og sá að það var ekki spilling í gangi. Og það var miklu fallegra hugarfar hjá fólkinu sem ann- ast heimilið. Hjónin, Phan og Savang, sem reka það eru kambódísk og búa þar með fjórum sonum sínum og ömmum og kokki og tengdadætr- um sínum, öll í mjög litlu húsi í miðri borginni. Phan var fræg leikkona í Kambódíu en fannst hún verða að snúa lífi sínu við og tileinka sér rekst- ur munaðarleysingjaheimilis. Þarna voru 32 börn á aldrinum 3 til 17 ára þegar ég kom. Þau fengu nóg að borða og ég fór að kenna þeim ensku. Þau voru þakklát fyrir ensku- kennsluna og krakkarnir báðu meira að segja um að fá að taka próf og vildu læra. Ég leigði mér íbúð í 5 mínútna fjarlægð frá munaðarleysingjaheim- ilinu. Íbúðin var ágæt, það var alla vega hrein málning og engin skotgöt á veggjum, svo hún var tiltölulega dýr á þeirra mælikvarða. Síðar flutti ég svo inn í aðra íbúð, með öryggisvörð- um og gaddavír í kringum húsið, með kærasta mínum, Justin frá Ástralíu. Hann starfar við að byggja farsíma- banka fyrir fátækt fólk í Kambódíu.“ Ástarsagan „Við Justin kynntumst í sundlaug. Það var veðmál í gangi um hversu oft mér yrði hent út í laugina. Í ellefta skiptið sem vinir mínir hentu mér í laugina datt maður ofan á mig og við höfum verið saman síðan. Hann er frá Ástralíu, ég frá Íslandi og við kynnt- umst í Kambódíu. Það má segja að við höfum hist á miðri leið. Og það er óhætt að segja að ég upplifði miklar andstæður þarna úti. Annars vegar vann ég í sjálfboðastarfi 12 tíma á dag en fór svo í frítímanum að hitta vini mína sem unnu í bönk- um, á tímaritum og í ýmsum störf- um og bjuggu við allsnægtir. Það er svo ör og mikil uppbygging þarna, millistéttin er nýorðin til og vex hratt, svo þarna geta fjárfestar grætt vel. Og þannig fólki kynntist ég. Og ríka fólkið þarna er viðurstyggilega ríkt. Forsæt- isráðherrann er með 6.000 lífverði á meðan fólk sefur á götunni og safnar plastflöskum til að getað lifað af dag- inn, það er rosaleg misskipting. Flestir vinir mínir þarna úti eru frá Ástralíu og Bretlandi. Og til að byrja með skildu þau ekkert út á hvað starf- ið mitt á munaðarleysingjaheimil- inu gekk. Þau héldu að ég væri bara að leika mér eitthvað á daginn. En á heimilinu er maður ekki að leika leiki við börn heldur er þetta erfitt starf; umönnun, fjáröflun og kennsla. Það gat verið erfitt að hlusta á vandamál barnanna og tilfinningar því aðstæður þeirra voru svo erfiðar. Ég var uppgef- in á kvöldin, en vinir mínir skildu það ekki fyrr en þeir komu og sáu munað- arleysingjaheimilið með eigin aug- um. Justin kom og sá 30 krakka sitja á gólfinu og gráta þegar að kveðju- stundinni kom og þá skildi hann út á hvað þetta gekk og að ég var ekki að „dútla“ heldur vinna.“ Hvers vegna voru börnin á þessu heimili? „Mörg þeirra voru munaðarlaus en sum áttu fátæka foreldra í sveit eða veika foreldra og ekki var hægt að hafa þau heima. Þarna voru meiri möguleikar fyrir þau en í sveitinni. Þau fengu að borða og læra ensku. Einn strákur fannst ráfandi innan um tré tveggja ára gamall og hafði ráfað um lengi en starfsmaður heimilisins fann hann og þetta varð hans fjöl- skylda. Hann braggaðist mikið á þeim tíma sem ég var þarna. En það var erf- itt að horfa upp á fátæktina.“ Hver er lausnin? ,,Menntun er lausnin á öllu. Og svo þarf að gæta þess að peningar sem eiga að fara í mat handa fátæku fólki lendi í réttum höndum. Mér gramd- ist að horfa upp á spillinguna á fyrra munaðarleysingjaheimilinu sem ég starfaði á. En ég fékk mikið út úr starfinu þarna úti. Ég kenndi þeim til dæmis ballett og indónesíska dansa tvisvar í viku. Börnunum finnst ótrúlega gam- an að dansa. Ég var í ballett í mörg ár og lærði indónesíska dansa í Indón- esíu og sú reynsla mín féll vel í kramið hjá börnunum.“ Frítíminn í Kambódíu „Þegar við vinirnir fórum út á líf- ið fórum við út að borða, bæði fínt og mjög lókal og á „Girlie“-bari og mark- aði. Einnig var hægt að fara á herstöð- ina og skjóta úr byssum og skjóta úr sprengjuvörpu gegn gjaldi. Hermenn- irnir voru oft fullir eða í blaki. Þetta er dæmi um spillingu og ég er stolt af því að hafa aldrei skotið úr byssu þarna jafnvel þótt það gæti virst freist- andi þegar ég var pirruð á vinnunni. En þetta var algjörlega á móti siðferði mínu, því byssurnar voru áður notað- ar í borgarastyrjöldinni gegn saklaus- um borgurum. Við ferðuðumst yfirleitt á mótor- hjólum. Og svo líka fékk maður sér far með „tuk tuk“ sem er mótorhjól með kerru fyrir þrjá. Ég komst ágætlega inn í menningu og siði og get haldið uppi einföldum samræðum á khmer eða kambód- ísku. Það er auðvelt að mismæla sig á kambódísku og vinir mínir ætluðu til dæmis að segja „afsakið“ en sögðu óvart „brjóst“ í staðinn. Og það var mikið flissað. Að segja „skál“ vitlaust getur þýtt að maður sé að biðja um einnar nætur gaman. Þetta gat verið mjög fyndið. Og svo var líka gaman að mamma mín og amma mín, Erna Erlendsdóttir, komu út í heimsókn til mín.“ Mæðgur í heimsókn „Mamma og amma komu að heimsækja mig í kringum kambód- íska nýja árið 12. til 15. apríl og þeim leið vel, fengu að vísu menningar- sjokk fyrst en þegar fólk kemur til Kambódíu elskar það landið eða þolir það ekki. Það er ekki millivegur. Sum- ir höndla ekki fátæktina en mamma og amma elska landið og vilja heim- sækja það aftur síðar eins og ég. Þær tóku til dæmis eftir því hvað fólkið er fallegt og svo blítt í framan, mjúkt. Það er einkennandi að svipur- inn er opinn og bjartur. Það má skjóta því að til gamans að Angelina Jolie keypti sér kambódískt barn.“ Hitinn og loftslagið „Við þurftum að venjast hitanum og loftslaginu. Þarna er meira ryk en við erum vön. Maður getur alveg séð himininn en það er heitt og þurrt og ryk út um allt. Maður er alltaf rykug- ur þarna úti. Kannski ekki síst af því að það voru 30 börn að klifra upp um mig alla allan daginn svo ég varð heit og klístruð. Og maður setti grímu fyr- ir andlitið þegar maður fór út. Ég átti grímur í öllum litum og setti þær á mig áður en ég þurfti að fara í lang- ferðir í umferðinni til að anda ekki að mér rykinu og menguninni. Hitinn og rakinn var ekkert mál, ég kann mun betur við mig í hita en nístingskuldanum sem er hér. Vinir mínir úti gerðu mikið grín að því að ég væri íslensk að kvarta undan kulda þegar hitinn fór niður fyrir 25 gráður.“ Loðnar kóngulær og annað góðgæti „Ég þurfti að venjast matnum. Kambódíumenn borða frá því þeir vakna og þar til þeir sofna, þeir eru allt- af að fá sér snarl og meðal þess sem hægt er að kaupa úti á götu er maís, skelfiskur, sniglar, snákar á priki, kakka- lakkar, þurrkaðar litlar rækjur, grillaðar loðnar kóngulær, steiktar tarantúllur og ristaðar engisprettur. Ég prófaði allt af þessu. Engisprett- urnar litlu voru góðar, bara eins og popp. En þær stóru voru ekki góðar. Og ef maður hugsaði um litlu kakka- lakkana sem hnetur voru þeir góð- ir en annars voru stórir kakkalakkar ekki fyrir mig. Kóngulærnar eru sætar á bragðið en því miður loðnar. Það er mikið af próteinum og vítamínum í þessari fæðu. Og ég held að þetta eigi eftir að verða vinsælt sem heilsufæði í vestrænum heimi með tímanum. Nóg er af þessu og þetta er fullt af hollustu og próteinum. Sumir innfæddir vilja ekki borða þetta því það minnir þá á tímana þegar ekkert annað var að fá og mikill skortur var. En úti á götu gat ég fengið „bland í poka“ fyrir dollar: 5 silkiormar, 1 risa- kakkalakki, 2 til 3 kóngulær og 5 til 10 litlar engisprettur og kakkalakkar og 3 stórar engisprettur. Þetta er laugardags- nammi í Kambódíu, bland í poka.“ Haldið heim „Svo var kominn tími til að halda heim til Íslands og byrja í háskóla. Það eru komin tvö ár síðan ég var í námi og erfitt að fresta því lengur. Ég vildi vera þarna lengur með krökkunum mínum og starfið mitt var mikilvægt en ég taldi ekki ráðlegt að fresta nám- inu lengur. Í kveðjuhófi sem haldið var fyrir mig á munaðarleysingjaheimil- inu var keypt Sprite og epli til hátíðar- brigða og ég átti að halda ræðu en gat bara sagt eina setningu og svo fór ég að gráta. Þá fóru börnin líka að gráta og þannig sátum við í faðmlögum á gólfinu. Eigandinn hélt ræðu fyrir mig og þakkaði mér fyrir störf mín og hafði á orði að ég kæmi í stað dótturinnar sem hann aldrei eignaðist. Hann átti fjóra syni. Svo nú á ég fleiri foreldra og er velkomin þangað aftur. Ég var ekki orðin þreytt á þessu en rétt var samt að fara í nám. Ég er í Austur-Asíufræðum í Háskólanum og ætla að klára eitt ár hér á Íslandi og vonandi get ég klárað félagsfræði og Suðaustur-Asíufræði í Singapúr, Mal- asíu eða Ástralíu.“ Hvað lærir maður í Asíufræðum? „Sögu, menningu, tungumál, stjórnmálafræði. Þetta er nýtt nám hér og ekki margir að læra þetta.“ En hvernig sérðu framtíðina fyrir þér? „Framtíðin? Ég sé mig í Asíu í hjálparstarfi, ekki í sjálfboðastarfi aftur heldur launuðu starfi. Því fólk vinnur betur ef það er í launuðu hjálparstarfi. Þá verður metnaðurinn og ábyrgðartilfinningin meiri. Ég er komin heim eftir að hafa dvalið úti og talað og hugsað á er- lendum tungumálum í 7 mánuði. Það er gott að koma heim en ég fæ alltaf menningarsjokk þegar ég kem hing- að því stressið er svo mikið til dæmis í umferðinni. Kærastinn minn klárar sitt verk- efni í Kambódíu og svo ætlar hann að koma til Íslands og við bara finnum út úr þessu.“ Hún elskar Kambódíu, landið og fólkið, og hefur borðað „bland í poka“ sem samanstendur af kakka- lökkum, engisprettum, silkiormum og loðnum köngulóm. Erna og Sokhly erna og vinir hennar stofnuðu súpueldhús og gáfu börnum að borða. Erfið kveðjustund Krakkarnir reyna að hugga ernu áður en hún heldur heim. myndir/ Úr einKasaFni Bensínstöðin við íbúð Ernu „Flöskur með bensíni og símaklefi og dekkjavið- gerð. allt á einum stað.“ Reynslunni ríkari erna komin heim og slakar á í garðinum hjá ömmu sinni. Bland í poka fyrir dollar Kakkalakkar, köngulær og fleira gott. erna smakkaði á þessu öllu. Danspartí börnin lærðu kambódíska dansa af phan, sem er lærður dansari. Þau bjuggu búningana til sjálf. Amma og mamma Voru eiturhressar þegar þær kíktu í heimsókn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.