Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Qupperneq 36
Föstudagur 12. september 200836 Sport
Það eru ekki einungis leikmenn í N1-deild karla í handbolta sem æfa sig nú stíft fyrir komandi átök í deild-
inni. Mennirnir í svörtu og/eða bláu, grænu eða gulu ef svo ber undir, dómararnir, æfa nú stíft í bootcamp
til að undirbúa sig fyrir tímabilið. Elskaðir og hataðir mæta þeir alltaf og veturinn lítur betur út en í fyrra
segir Guðjón Leifur Sigurðsson, formaður dómaranefndar.
„Það þurfti tuttugu til að fá afslátt og
ég sagðist verða tuttugasti inn ef það
vantaði. Svo varð og strákarnir drógu
mig í þetta eftir að ég hafði ekki
hlaupið í þrjú ár,“ segir Guðjón Leif-
ur Sigurðsson, formaður dómara-
nefndar Handknattleikssambands
Íslands, um bootcamp-æfingarn-
ar sem handboltadómarar æfa nú
stíft í fyrir komandi átök í N1-deild-
inni. „Þetta var mikil áskorun,“ segir
Guðjón léttur sem var sjálfur dómari
til þrjátíu ára og einn sá albesti sem
dæmt hefur hér á landi.
Þetta er í fyrsta skiptið sem dóm-
ararnir æfa reglulega saman fyrir
mót. „Við höfum ekki gert þetta hing-
að til. Við höfum mest verið tveir og
tveir eða fleiri saman. Þeir sem eru
úti á landi geta ekkert verið með okk-
ur í þessu. Það var gerð tilraun til að
æfa saman fyrir nokkrum árum sem
gekk ekki upp en núna er andinn
mjög góður og mikil stemning var
fyrir því að gera þetta,“ segir Guðjón.
Hver og einn skoðaður
Handknattleikssambandið bjó til
nýja stöðu fyrr á árinu, íþróttastjóra,
og réð til starfa fyrrverandi þjálfara
Stjörnunnar, Kristján Halldórsson.
Hann var dómurum til liðs í sum-
ar til að undirbúa þá enn betur fyrir
átökin.
„Við fengum Kristján Halldórs-
son sem er orðinn íþróttastjóri HSÍ
til að taka hvern og einn dómara fyr-
ir, skoða hann og gera æfingaplan út
frá því fyrir sumarið. Þetta er eitthvað
sem okkur hefur vantað því hingað
til höfum við látið menn bera ábyrgð
á sjálfum sér. Það er nú þannig að
menn hafa mismikinn sjálfsaga til
að standa í því. Sissi [Kristján Hall-
dórsson, innsk. blm.] stakk því upp á
þessu í vor og við gripum þetta fegins
hendi,“ segir Guðjón.
Lítur betur út
Í fámennu umhverfi þurfa félög-
in í landinu að hjálpast að og eiga
þau að skila ákveðnum fjölda lands-
dómara á hverju ári. Félögin skiluðu
litlu af sér í fyrra sem fór ekki fram-
hjá neinum því dómaranefndin var í
miklum vandræðum. Útlitið er betra
í ár en enn eru trassar inni á milli.
„Félögin eiga að útvega okkur
48 landsdómara. Það er búið að til-
kynna 35 og þar af eru sjö nýliðar. Í
fyrra vorum við 28 og það er engan
veginn nóg. Félögin eru því aðeins
að taka við sér hvað varðar þetta en
ennþá eru sex félög sem útvega enga
dómara. Síðustu tímabil höfum við
verið að keyra á of fáum og því hefur
verið mikið álag á mönnum. Af þess-
um 35 sem við höfum í dag eru ekki
nema 20 til 24 sem tilbúnir eru að
dæma í efstu deild karla til dæmis.
Þetta lítur betur út en í fyrra allavega.
Menn eru að koma betur undirbúnir
fyrir mótið,“ segir Guðjón.
Tíu til tólf þúsund á leik
„Ég hef aldrei skilið þegar fólk
segir að það sé leiðinlegt að dæma,“
segir Guðjón. „Sjálfur dæmdi ég í 30
ár og fannst það rosalega skemmti-
legt,“ bætir hann við en hvað eru
menn að fá greitt fyrir þetta? „Nú er
verið að greiða þokkalega fyrir leiki.
Menn fá 10 til 12 þúsund fyrir leiki í
efstu deild karla og kvenna fyrir utan
ferðapeninga. Þannig ef menn eru að
dæma þetta 2-3 leiki á viku er þetta
þokkalegasti aukapeningur. Auð-
vitað fer einhver tími í undirbúning
og svona en ef menn hafa áhuga er
þetta minnsta mál í heimi.“
Tvö alþjóðleg pör
Anton Gylfi Pálsson og Hlynur
Leifsson hafa undanfarin ár verið
okkar langbesta dómarapar og eru
með alþjóðleg réttindi. Í ár bættist
annað par við þegar þeir Ingvar Guð-
jónsson og Jónas Elíasson þreyttu
prófið.
„Það voru átján pör sem þreyttu
prófið í sumar og þeir voru eitt af
þremur sem náðu því. Svo er EHF
einnig með sérstakt prógramm fyrir
yngri dómara sem þurfa þá að vera
yngri en 25 ára. Þar vil ég endilega
koma fleirum inn. Núna eru nokkrir
strákar úr Fjölni, um 17 ára, sem við
ætlum að sjá hvort við getum ekki
gert betri.
Svo vantar auðvitað kvennapar.
Ég er alltaf að auglýsa eftir kvennap-
ari. Ef það kemur þokkalegt kvennap-
ar get ég komið þeim að hjá Evrópu-
sambandinu tiltölulega fljótlega því
EHF er að kalla eftir kvennapörum.“
Eins og þeir kunni ekki að
dæma
Bæði Anton og Hlynur en þó
Ingvar og Jónas sérstaklega hafa
oft sætt mikilli gagnrýni fyrir verk
sín hér heima. Fengið misgóðar,
oft mjög slæmar, umsagnir bæði í
blöðum og enn verri frá leikmönn-
um og þjálfurum í deildinni. Það
stangast virkilega á við verkefnin
sem Anton og Hlynur hafa verið að
fá í Evrópu. Þeir dæmdu til dæmis
leik með Kiel í meistaradeildinni í
fyrra.
„Þetta hefur verið landlægt hjá
okkur í tugi ára að dómararnir okk-
ar hafa verið að fá misjafna dóma
hér heima en ná svo stórkostlegum
árangri erlendis,“ segir Guðjón um
þetta umtal. „Það gildir alveg það
sama um Anton og Hlyn í dag og
aðra í gegnum árin. Þeir eru að fá al-
veg geysilega flott verkefni hjá Evr-
ópusambandinu en svo er talað um
þá hérna heima eins og þeir kunni
ekki að dæma.
Sömu sögu er að segja um Ingv-
ar og Jónas sem hafa átt erfitt upp-
dráttar undanfarin ár hér heima. Við
höfum samt alltaf haft trú á þeim og
það hefur skilað sér til Evrópusam-
bandsins því menn þar eru mjög
ánægðir með þá. Þetta er einfaldlega
með dómara eins og leikmenn. Ef
menn æfa vel og hafa áhuga kemur
hitt með. Það verður enginn dómari
betri án æfinga.“
Heitasta parið
Eitt dómarapar vakti mikla at-
hygli í fyrra. Þeir Gunnar Jarl Jónsson
og Hörður Aðalsteinsson dæmdu
sína fyrstu leiki í N1-deildinni í fyrra
og fengu síðar verðlaun sem dómar-
ar umferða 8 til 14. Þeir fengu stórt
verkefni í fyrra þegar þeir dæmdu
leik Fram og Hauka sem þá var
toppslagur í Fram-húsinu. Þjálfarar
beggja liða hrósuðu þeim í hástert
fyrir frammistöðu þeirra en fyrir leik
voru menn vægast sagt stressaðir.
„Fyrir þennan leik í Fram-húsinu
í fyrra fékk ég mörg símtöl bæði dag-
inn fyrir og á leikdag þar sem menn
spurðu mig hvað ég væri nú að bjóða
liðunum upp á,“ segir Guðjón Leifur
kátur. „Ég ætla ekki einu sinni að lýsa
því hversu taugaveikluð liðin voru.
Ég hafði samt fulla trú á þeim og mér
fannst þeir standa sig mjög vel í þeim
leik.
Ég bind miklar vonir við þá í vetur
því öllum fannst þeir standa sig frá-
bærlega í fyrra. Þeir geta fengið tals-
vert af verkefnum ef þeir vilja sjálfir.
Þeir verða þá auðvitað að hafa vilja
og tíma fyrir það. Það hefur kannski
vantað upp á allavega hjá öðrum
þeirra. Þeir eru svona heitasta parið
í dag ef maður miðar við fyrri störf,“
segir Guðjón Leifur Sigurðsson létt-
ur að lokum.
Dómarar
í fínu formi
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Kátir piltar dómararnir voru léttir þegar
gunnar gunnnarsson, ljósmyndara dV, bar
að garði þar sem þeir æfðu stíft í bootcamp.
guðjón Leifur er neðstur til hægri á
myndinni.
SterkurHvaða þjálfara ætli anton
gylfi pálsson sé að hugsa um núna?
1, 2, 10, búinn Hörður aðalsteinsson
er með efnilegri dómurum landsins. Og
töluvert betri en hinir að rífa sig upp
fyrir slánna.
Svona, haltu þessu maður!
Það er betra að ákveða fyrst hvor á
að kýla og hver á að halda.
H&N-mynd gunnar gunnarsson