Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Side 54
Föstudagur 12. september 200854 Helgarblað DV Tónlist AC/DC á túr rokkararnir í aC/dC hafa nú tilkynnt um tón- leikaferðalag um bandaríkin og Kanada í tilefni af nýjustu breiðskífu sveitarinnar, black Ice, sem kemur út 20. október næstkomandi. meðal annars ætlar sveitin að koma fram á tvennum tónleikum í madison square garden í New York 12. og 13. nóvember. umsjóN: KrIsta Hall krista@dv.is Fabrizio Moretti með Megapuss Megapuss, nýja hliðarverk- efni tónlistarmannsins (og kærasta Natalie Portman) Devendras Ban- hart og alhliða hljóðfæraleikarans Gregs Rogove, hyggst gefa frá sér sína fyrstu breiðskífu 16. september. Platan hefur hlotið heitið Surfing og er mikið um gestaleikara á plötunni sem verður einnig gefin út í vínyl- formi 7. október. Í kjölfar úgáfunnar ætlar sveitin að túra um vesturströnd Bandaríkj- anna en trommuleikari The Strok- es, Fabrizio Moretti, kemur til með að leggja þeim lið á tónleikaferða- laginu. Hljómsveitin spilar djassskot- ið rokk og þeir sem vilja kynna sér þessa áhugaverðu sveit eitthvað frekar geta hlustað á tóndæmi inni á heimasíðunni myspace.com/ megapuss. Devendra Banhart fær trommuleikara Strokes með sér á túr. „Við erum að breyta nafninu úr Vicky Pollard yfir í Vicky því Vicky Pollard er náttúrlega nafn á breskum grínkarakter. Við viljum núna frekar byggja sjálf upp okk- ar eigið nafn og sleppa þessari tengingu,“ segir Ástrós Ósk Jóns- dóttir, bassaleikari hljómsveitar- innar Vicky, þegar blaðamaður spyr hvers vegna eftirnafnið Poll- ard sé ekki lengur í notkun. „Platan okkar var mixuð í Bret- landi og þar sem Vicky Pollard er karakter úr bresku grínþáttunum Little Britain var þetta því svipað fyrir Bretana og ef einhver erlend hljómsveit kæmi hingað og héti Silvía Nótt.“ Eina erlenda hljómsveitin Hljómsveitin hélt í gær til Bandaríkjana þar sem Vicky mun spila á nokkrum tónleikum og á tónlistarhátíðinni Play í Saint Louis. „Við erum að fara að spila í dag og á morgun í New York. Á sunnudaginn ökum við til Cleve- land og spilum þar með ein- hverju lókal bandi. Svo förum við til Saint Louis en okkur var boð- ið að koma og spila á Play-hátíð- inni. Við fengum Loftbrú til að fara þangað en það er bara í boði til New York svo við ákváðum að gera netta tónleikaferð í kringum Saint Louis,“ segir Ástrós en Vicky verður eina erlenda hljómsveitin á Play-hátíðinni. „Við skráðum okkur bara inn á sonicbids.com-heimasíðuna og þar sóttum við bara um að vera á þessari hátíð og vorum valin til að koma og spila.“ Stutt, hress og fjörug lög Vicky verður í Ameríkutúr sín- um í tæpar tvær vikur en skömmu eftir heimkomu má vænta fyrstu breiðskífu sveitarinnar, Pull Hard. „Við tókum hana upp í Tankinum á Flateyri hjá honum Önundi á fimmtán klukkutímum. Það gekk alveg framar vonum að taka upp. Svo sendum við hana út í mixun og Biggi í Sundlauginni master- aði hana. Eygló söngkona sér svo um alla hönnun á plötuumslag- inu.“ Hljómsveitarmeðlimir ætla sjálfir að sjá um að gefa út plöt- una en fá Töfrahellinn til að dreifa henni. „Það er voða erfitt að flokka tónlistina undir eitt- hvað eitt ákveðið tónlistarform. Lögin eru stutt, hress og fjörug en þetta er rokk sem þú getur dans- að við og sungið með. Þetta er sem sagt stuðplata en samt ekki svona Skítamórals-stæll.“ Eina erlenda hljómsveitin Hljómsveitin Vicky, sem áður hét Vicky Pollard, hélt í gær til Bandaríkjanna í tveggja vikna tónleikaferðalag. Sveitin mun meðal annars spila á tónlistarhátíðinni Play í Saint Louis en Vicky er eina erlenda sveitin sem boðið var að spila á hátíðinni. Hvort verður Glasvegas eða Metallica söluhærri í Bretlandi? MEtallica í vanda Tónlistarspekúlantar í Bretlandi eru í ham þessa dagana en allt útlit er fyrir því að nýliðarnir í Glasvegas séu að fara að slá Metallica ref fyrir rass og næla sér í toppsæti breska sölulistans sem kynntur verður á sunnudag. Glasvegas sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, sem heitir ein- faldlega bara Glasvegas, síðastlið- inn mánudag og fór sala plötunnar skuggalega hratt af stað. Metallica, sem ætlaði að senda frá sér plöt- una Death Magnetic sem beðið hefur verið með mikilli eftirvænt- ingu, í dag tók sig hins vegar til og gaf plötuna út í Bretlandi á mið- vikudaginn. Talið er að ástæðan sé að meðlimir Metallica óttist sjálf- ir að Glasvegas gæti náð toppsæt- inu. Glasvegas hefur þegar selt plötu sína í hundrað þúsund eintökum frá því á mánudag og því gæti þetta tveggja daga forskot hennar haft áhrif þegar kemur að því að birta sölutölur á sunnudaginn. Vicky heldur í Ameríkutúr Hljómsveitin gefur út sína fyrstu breiðskífu skömmu eftir heimkomu. STEYPUSÖGUN KJARNABORUN MÚRBROT l l l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.