Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Side 4
Veiddu fyrir
fjölskylduhjálp
föstudagur 7. nóvember 20084 Fréttir
Sandkorn
n Hjörleifur Sveinbjörnsson,
eiginmaður Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur, hefur sent
frá sér bók mikla að vöxtum
með þýðingum úr kínverskri
frásagnarlist frá fyrri öldum.
Hjörleifur er einn fárra Íslend-
inga sem geta þýtt texta úr kín-
versku og
hefur Hann-
es Hólm-
steinn Giss-
urarson
stjórnmála-
fræðing-
ur stund-
um reynt
að gera
þýðingarstörf hans hjá Stöð 2
tortryggileg. Nú er spurning
hvort honum bætist skotfæri
í vopnabúrið því í formála
að bókinni þakkar Hjörleifur
Menningarsjóði Glitnis fyrir að
hlaupa undir bagga með því
að sjá honum fyrir þessu fræga
salti í grautinn á meðan á vinn-
unni stóð og gera honum kleift
að einbeita sér að verkinu.
n Bankamenn njóta ekki mik-
illar virðingar þessa dagana og
hefur víst eitthvað með hrun
bankakerfisins að gera. Meðal
þeirra sem hafa sætt gagnrýni
eru þeir samstarfsmenn úr
Kaupþingi Sigurður Einars-
son og Hreiðar Már Sigurðs-
son. Nú hefur Egill Helgason
sjónvarpsmaður komist að því
að þeir eiga sér tvífara þó ekki
deili þeir tíma og rúmi. Á Silfri
Egils á Eyjunni má sjá mynd
af tvíförunum, nefnilega þeim
Laurel og Hardy, eða Steina og
Olla eins og þeir hafa löngum
kallast á því ylhýra tungumáli
íslensku.
n Svo sem lesa mátti í DV í gær
er Einar Bárðarson umboðs-
maður orðinn aðstoðarmað-
ur þingmannsins Kjartans
Ólafsson-
ar. Kjart-
an situr á
þingi fyrir
Sjálfstæð-
isflokkinn
í suður-
kjördæmi
og hefur
gert lengi
þótt einhverjir kunni að eiga
erfitt með að koma honum
fyrir sig. Kjartan er þó frá-
leitt eini sjálfstæðismaðurinn
sem Einar vinnur fyrir. Hann
er líka orðinn verkefnisstjóri
hjá Reykjanesbæ og grínuðust
þá gárungarnir með að hann
væri orðinn bæjarstarfsmaður.
Nú er bara spurningin hvort
þetta sé upphafið að einhverju
meiru hjá Einari og hvort hann
kunni jafnvel að fara að vinna
að eigin frama í pólitík en ekki
bara því að koma öðru fólki á
framfæri.
Skáldið Skrifar
Þrotabú þráhyggjunnar
kristján hreinsson skáld skrifar. „En um leið og múgurinn heimtar breytingar sitja sömu trantarnir að kjötkötlunum.“
V ið rotþró ríkisvaldsins stendur Geir Haarde og sannar fyrir okkur í hvert skipti sem hann opnar munninn að hundvís er hann ekki. Hann stendur
vörð um skítlegt eðli valdhafanna þar sem ekki
er lengur nóg að klóra mönnum og láta klóra
sér. Núna þurfa menn helst að vera alræmdir
glæpamenn og þaulsætnir þrjótar til að mega
vera með í klíkunni.
Eða einsog hún Stafanía gamla sagði: – Það er
sama rassgatið undir öllu þessu helvítis hyski.
Ég hef áður ritað um byltingu réttlætisins og ég
veit að krafa dagsins er ekkert annað en réttlæt-
anleg, því þeir eru í dag margir Íslendingarn-
ir sem krefjast þess að nú fái réttlæti fram að
ganga.
En um leið og múgurinn heimtar breytingar
sitja sömu trantarnir að kjötkötlunum. Húsráð-
endur á stjórnarheimilinu eru þeir sem rústuðu
öllu. Nú segjast sjálfstæðismenn ætla að taka til
– vitandi það að teppin eru ekki nógu stór til að
hægt sé að hylja allan skítinn.
Og hvað nú? Ætlum við bara að leyfa lúsables-
unum að stjórna sukkinu áfram? Ætlum við
að láta þá seku sjá um að rannsaka, rétta og
dæma?
Fjármálaeftirlitið – já, fjármálaeftirlitið sem
klúðraði öllu eftirlitinu – þetta sama fjármála-
eftirlit er nú með öll ítök. Ríkisstjórnin, seðla-
bankinn og allt aulahyskið fær áfram að ráða
för. Það er einsog slökkviliðið sé að kaupa
bensín og eldvörpur handa brennuvörgunum.
Núna, þegar ríkið er rjúkandi rústir, eru þrjót-
arnir sjálfir látnir eyða sönnunargögnunum
sem duga best til að fá fram sakfellingu.
Er fólk virkilega ekki búið að sjá í gegnum lyga-
vefinn?
Menn afskrifa lán hjá sjálfum sér og ætla svo
sjálfir að ráða því hverjir fá að rannsaka glæp-
inn. Siðblindan er slík að hún nær í alla afkima
þjóðlífsins. Ennþá erum við með sömu himpi-
gimpin sem álitsgjafa. Fólk einsog: Hannes
Hólmsteinn, Björn Ingi Hrafnsson, Valgerður
Sverrisdóttir og fleiri skilgetin afkvæmi spill-
ingarinnar fá enn að ausa af brunnum fáfræð-
innar. Ennþá eru innmúraðir menn við stjórn.
Ríkislögreglustjóri er ennþá sonur hans þarna
moggaritstjórans. Allt er þetta nákvæmlega
einsog það var þegar Dabbi litli bankamað-
ur var ennþá fyndin fígúra... þegar hann sagði
eitthvað á þessa leið: – Eigum við ekki bara að
sökkva skútunni og fara öll til Kanaríeyja?
Nauðir fólksins nota má
því nú er hérna kreppa
en þeir sem axla ábyrgð fá
auðvitað að sleppa.
„Ég var að horfa á fréttirnar fyrir viku
en þá var verið að segja frá ástandinu
hjá Fjölskylduhjálp. Mér blöskraði
bara ástandið og hvernig væri kom-
ið fyrir mörgum fjölskyldum í þessu
velferðarþjóðfélagi sem ég taldi mig
búa í,“ segir Karl sem vildi leggja sitt
á vogarskálarnar.
„Rangárnar eru alveg pakkað-
ar af laxi ennþá. Það hrygnir í ánni
en það misferst vegna aðstæðna og
því synda nokkur þúsund laxar um
ána sem nýtast hvorki náttúrunni né
neinum og því datt mér í hug hvort
við ættum ekki bara að veiða hann,“
segir Karl sem tók sig saman og hó-
aði í fimmtán veiðimenn og -konur.
Fengu undanþágu
„Ég talaði við góða menn hjá Lax-
á og þeir fóru í það að útvega veiði-
leyfi og undanþágu hjá Fiskistofu og
Veiðimálastofnun. Það fauk í gegn og
við bara rukum í það að veiða eins og
við gátum,“ segir Karl og bætir við að
ástandið í ánni sé mjög gott.
„Tuttugu og fimm prósent af þess-
um afla voru nýr fiskur og á þessum
árstíma eru það bara ótrúlegar fréttir.
Þeir voru allir vel haldnir og líta rosa-
lega vel út. Við ætlum að láta flaka
og úrbeina nýja fiskinn en hinn fer
í reyk og það er fyrirtækið Eðalfiskur
sem sér um að gera laxinn kláran fyr-
ir Fjölskylduhjálp,“ segir Karl sáttur
við útkomuna.
Hópurinn hóf veiði klukkan níu
um morguninn og voru fyrstu lax-
arnir fljótir að bíta á.
„Við erum öll lemstruð eftir átök-
in. Við settum í fyrstu laxana strax
eftir klukkan níu og hættum ekkert
fyrr en bara hálf sex. Það var engin
hvíld því allir veiddu stanslaust.“
Í kringum 200 laxar
„Við settum markmiðið á 250 laxa
en náðum því ekki. Við vorum kom-
in langt á annað hundraðið en það
veiddu allir svo svakalega mikið að
við hættum að telja,“ segir Karl og
bætir við að allir hafi lagst á eitt að
hjálpa nauðstöddum fjölskyldum í
landinu.
„Það er alltaf auðvelt að hóa í fólk
til að veiða en þessir veiðimenn tóku
sér frí í vinnunni og veiddu fyrir góð-
an málstað. Þetta gekk svo vel að við
áætlum að hafa þetta árlegt. Það sem
okkur langar líka að gera er að biðla
til þeirra veiðimanna sem veiddu
mikið í sumar. Það var metveiði og
því viljum við biðla til þeirra sem
veiddu yfir sig og vel það að láta af
hendi rakna og gefa í þetta samstarf,“
segir Karl.
Himinlifandi með laxinn
Ásgerður J. Flosadóttir, formaður
Fjölskylduhjálpar, er himinlifandi
með laxinn. Hún segir að þau hjá
Fjölskylduhjálp hlakki til að dreifa
laxinum.
„Þegar Karl hringdi og hafði sam-
band var þetta ekkert annað en mik-
il gleði. Þetta var mjög fallega hugs-
að hjá þeim,“ segir Ásgerður og bætir
við að um 400 fjölskyldur njóti góðs
af veiðinni. Hún ætlar að reyna að
dreifa laxinum á sem flesta svo allir
fái að smakka.
„Ég vona að fleiri gefi sér tíma í að
hjálpa okkur eins og þessi góði veiði-
hópur. Margt smátt gerir eitt stórt og
það þarf ekki að vera mikið,“ segir
Ásgerður.
Alltaf fjölgar þeim sem leita til
Fjölskylduhjálpar og eins og staðan
er í dag eiga Ásgerður og hennar fólk
erfitt með að anna eftirspurninni.
„Við þyrftum að afgreiða fimm
hundruð fjölskyldur á miðvikudög-
um ef við ættum að geta aðstoðað
alla þá sem þurfa aðstoð en í dag
getum við aðeins séð um það bil 250
fjölskyldum fyrir matarhjálp,“ segir
Ásgerður.
Fjölskylduhjálp fær laxinn af-
hentan á miðvikudaginn en þá verð-
ur reynt að koma honum út til sem
flestra.
Veiðimaðurinn Karl Lúðvíksson vildi leggja Fjölskylduhjálp lið á þessum erfiðu tímum
en alltaf fjölgar þeim fjölskyldum sem sækjast eftir mataraðstoð. Karl safnaði því sam-
an hópi þaulreyndra veiðimanna sem síðan stóð í ströngu á miðvikudaginn, markmið
hópsins var að veiða fyrir Fjölskylduhjálp. Mikið af laxi er í Rangá og því var sóst eftir
leyfi til að veiða í ánni en það fékkst auðveldlega enda málstaðurinn göfugur.
„Ég vona að fleiri gefi
sér tíma í að hjálpa
okkur eins og þessi
góði veiðihópur.“
AtLi Már GyLFAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Aflinn veiðihópurinn var sáttur við
aflann að lokinni ferðinni en laxarnir
voru í kringum tvö hundruð talsins.
Fjölskylduhjálp alltaf
fjölgar þeim fjölskyldum sem
leita á náðir fjölskylduhjálpar.
Karl Lúðvíksson gerði góðverk á
dögunum og skipulagði veiðiferð.
allur aflinn fer til fjölskylduhjálpar
sem svo sannarlega þarf á aðstoð að
halda á þessum erfiðu tímum.
Tilboð á
barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is