Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 21
Föstudagur 7. Nóvember 2008 21Helgarblað FUNDARHERBERGI HANGA Í LOFTINU Verðlaunatillaga um nýjar höfuðstöðvar Lands- bankans var valin í júníbyrjun en tillagan hefur ekki verið kynnt. Áætlað var að kynna hana um miðjan október en hrun á bankamarkaði varð til þess að ákveðið var að fresta því um sinn. Óvíst er hvort verður af byggingu nýrra höfuð- stöðva en þær voru áætlaðar við Geirsgötu. Efnt var til samkeppni um hönnun og fram- kvæmd nýbyggingar fyrir höfuðstöðvar bank- ans á lóðinni. Bankinn keypti lóðina fyrri hluta árs 2006 en kaupverð hefur ekki fengist upp- gefið. Hjá Landsbankanum fengust þær upplýs- ingar að verðlaunaféð hafi þegar verið greitt út í júní þótt vinningshafarnir hafi ekki verið kynntir formlega. Formaður dómnefndar og þáverandi forstjóri Landsbankans, Björgólfur Guðmundsson, hafi þá afhent sigurvegurun- um samtals 300 þúsund evrur, sem samsvar- ar tæpum 50 milljónum á núvirði. Sigurveg- arinn hafi þá fengið sem nemur 30 prósentum af þeirri upphæð, eða um 15 milljónir. Sá í fimmta sætinu fengi hins vegar um tíu prósent upphæðarinnar, eða 5 milljónir. Hér hefur ekki verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Alls var 21 tillaga valin í úrslit, þar af 13 teymi með íslenskum arkitektum. Tuttugu teymi skil- uðu tillögum í framhaldinu og fékk hvert þeirra 50 þúsund evrur í viðurkenningarfé, eða tæp- ar 8,3 milljónir íslenskra króna. Alls fengu tut- tugu aðilar því 166 milljónir fyrir að skila inn framhalds- tillögu. Samtals veitti gamli Landsbankinn því rúmar 210 milljónir í hugmyndavinnu fyrir nýjar höfuðstöðvar. Er þetta með hæstu fjárhæðum sem um getur hér á landi fyrir forvinnu að byggingum. Stór hluti fjármagnsins fór þó til erlendra aðila. erla@dv.is Björgólfur Guðmundsson veitti tuttugu arkitektastofum 210 milljónir: Hættu við að kynna verðlaunatillöguna Hundraða milljóna byrjunarkostnaður búið er að velja verðlaunatillögu um nýjar höfuðstöðvar Landsbankans við geirsgötu en hún ekki verið kynnt. ekki er víst að af byggingunni verði. Mynd Portus GrouP Sænska arkitektastofan Arkitekthuset Monar- ken i Stokkhólmi hlaut í apríl fyrstu verðlaun í samkeppni um deiliskipulag fyrir lóðir Glitnis við Kirkjusand og Borgartún. Þeir lögðu einn- ig fram tillögu að nýjum höfuðstöðvum Glitn- is. Verðlaunaféð var 50 þúsund evrur. Á genginu í apríl nemur það um 4,5 milljónum króna en á gengi dagsins í dag nemur upphæðin tæpum 8,3 milljónum. Þýska arkitektastofan Cityförster, Netzwerk für Architekur og íslenska arkitektastofan ASK arkitektar deildu með sér öðru og þriðja sæti. Hvor um sig fékk 20 þúsund evrur í verðlaun, eða um 1,8 milljónir króna á þáverandi gengi. Glitnir veitti því þremur farsælustu arki- tektastofunum níutíu þúsund evrur sem á nú- verandi gengi samsvarar tæpum 15 milljónum. Birgir Ármannsson, þáverandi forstjóri Glitnis og formaður dómnefndar, afhenti verðlaunin. Í keppnina bárust alls 42 tillögur frá kepp- endum í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Dómnefnd valdi síðan sex tillögur í úrslit og fékk hver arkitektastofa 30 þúsund evrur sem viðurkenningarfé. Glitnir greiddi þessum sex stofum því samtals tæpar 30 milljónir í viður- kenningarskyni. Gamli Glitnir veitti því alls 45 milljónir ís- lenskra króna í hugmyndavinnu fyrir nýjar höf- uðstöðvar og nýtt deiliskipulag. Glitnir keypti lóðina á Kirkjusandi af borg- inni á rúmlega 970 milljónir árið 2006. Sam- kvæmt tillögu Arkitekt- huset Monarken áttu nýj- ar höfuðstöðvar Glitnis að vera 14 þúsund fermetrar. Óvíst er hvort verður af byggingunni en þegar Glitnir varð ríkisbanki fór lóð- in í eigu ríkisins. erla@dv.is Glitnir keypti lóðina við Kirkjusand af borginni á tæpan milljarð en hún er nú í eigu ríkisins: tugir milljóna í Hugmyndavinnu Kostnaðarsamt Nýjar höfuðstöðvar glitnis voru fyrirhugaðar í borgartúni og kostaði bankinn miklu til við hugmyndavinnuna. Mynd Glitnir/ArKiteKtHuset MonArKen Vildi byggja bjarni Ármannsson var formaður dómnefndar um tillögu að nýjum höfuðstöðvum glitnis við borgartún. dómari björgólfur guðmundsson var formaður dómnefndar um tillögur að nýjum höfuðstöðvum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.