Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 14
Föstudagur 7. Nóvember 200814 Helgarblað Formaður skilanefndar Glitnis, Árni Tómasson, og Ársæll Hafsteinsson, sem situr í skilanefnd Landsbank- ans, rufu bankaleynd og urðu uppvísir að óeðlilegum viðskiptaháttum árið 2003 sem varð til þess að Fjármála- eftirlitið úrskurðaði að Búnaðarbankinn hefði gerst brotlegur við lög. Fjármálaeftirlitið segir þó ekkert til- tökumál að ráða tvo menn í skilanefndir þótt gjörðir þeirra hafi gert banka brotlegan fyrir fimm árum. Tveir úr skilanefnd rufu bankaleynd Sex af þeim fimmtán einstakling- um sem sitja í skilanefndum ríkis- ins og eiga meðal annars að rann- saka viðskipti í bönkunum tengjast eða hafa tengst bönkunum á ein- hvern hátt í gegnum tíðina. Þá rufu Árni Tómasson og Ársæll Hafsteins- son bankaleynd og Fjármálaeftirlit- ið úrskurðaði að bankinn sem þeir störfuðu hjá hefði gerst brotleg- ur vegna gjörða þeirra. Árni, sem er formaður skilanefndar Glitnis, segir að ábyrgðin hafi verið hans. Fjármálaeftirlitið telur þá ekki van- hæfa þrátt fyrir að eftirlitið hafi úr- skurðað bankann brotlegan fyrir fimm árum og réð þá því til starfa sem skilanefndarmenn. Þá sat einn skilanefndarmannanna í nefnd á vegum Glitnis fyrir rúmu ári. Einn nefndarmannanna er þó reiður fyr- ir hönd þjóðarinnar og skrifaði sig á lista gegn beitingu Breta á hryðju- verkalögum gegn Landsbankanum. Ábyrgð skilanefndanna er mikil því meðal annars hefur Fjármála- eftirlitið gert þeim að rannsaka við- skipti stjórnenda og stærstu eigenda bankanna og stærstu viðskiptavina þeirra. Rufu bankaleynd Í gögnum frá Fjármálaeftirlitinu, sem DV hefur undir höndum, kem- ur fram að formaður skilanefndar Glitnis, Árni Tómasson, og nefnd- armaður í skilanefnd Landsbank- ans, Ársæll Hafsteinsson, hafi rof- ið bankaleynd og orðið uppvísir að því að brjóta gegn heilbrigðum og eðlilegum viðskiptaháttum með þeim afleiðingum að Fjármálaeft- irlitið úrskurðaði gegn bankanum árið 2003. Þá var Árni bankastjóri Búnaðarbankans og Ársæll yfirlög- fræðingur. Forsvarsmenn Norður- ljósa kærðu málið á sínum tíma til Fjármálaeftirlitsins en þá sökuðu þeir starfs- menn bankans um að reyna að hrekja fyrir- tækið í gjaldþrot. Ástæðan var sú að fjölmiðlafyrirtæki sem meðal ann- ars var í eigu Björgólfs Guðmunds- sonar vildi komast yfir Norður- ljós. Núna situr Ársæll í skilanefnd Landsbankans, sem Björgólfur átti meirihluta í. Í úttekt DV á skilanefndum bank- anna kemur í ljós að sex manns í nefndunum hafa ýmist tekið þátt í útrás bankanna í gegnum tíðina, fengið kaupréttarsamninga við þá eða tengst þeim með öðrum hætti. Björgólfur vildi Norðurljós Það var árið 2002 sem Sigurður G. Guðjónsson, þáverandi fram- kvæmdastjóri Norðurljósa, kvartaði til Fjármálaeftirlitsins vegna ásak- ana um að Búnaðarbankinn hefði reynt að knýja Norðurljós í gjaldþrot í þágu þriðja aðila. Þriðji aðilinn var Fjölmiðlafélagið ehf. sem Björgólf- ur Guðmundsson var í forsvari fyr- ir. Á þeim tíma var Árni Tómasson annar bankastjóra Búnaðarbanka Íslands en Ársæll Hafsteinsson yfir- lögfræðingur bankans. Málið komst í hámæli eftir að í ljós kom að mað- ur hafði stolið gögnum úr bankan- um og komið í hendur Sigurðar en þau gögn sýndu að Ársæll hefði rof- ið bankaleynd þegar hann upplýsti þriðja aðila um skuldastöðu Norð- urljósa. Upplýst um skuldastöðu Málið varð að miklu fjölmiðlafári en einn var handtekinn af lögreglunni og yfirheyrður vegna ásakana um að hafa náð trúnaðarupplýsingum úr bankanum og komið þeim til Sigurðar. Sigurður komst yfir skjölin eftir að Bún- aðarbankinn hafði skyndilega gjaldfellt lán á hendur Norðurljósum. Þá vildu forsvars- menn Norðurljósa meina að starfs- menn Búnaðarbankans hefðu tekið að sér að knýja Norðurljós í gjald- þrot fyrir fjölmiðlafyrirtæki í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Þessu til stuðnings segir í úrskurði Fjár- málaeftirlitsins að Ársæll hafi upp- lýst félag Björgólfs um allar skuld- ir Norðurljósa. Að auki hafi verið gerð yfirlýsing um að félag Björgólfs hygðist yfirtaka lán Norðurljósa hjá bankanum. Óheilbrigðir viðskiptahættir Í niðurstöðu úrskurðar Fjármála- eftirlitsins segir að Búnaðarbanki Íslands hafi brotið gegn þagnar- skylduákvæði laga um viðskipta- banka og sparisjóði með því að Ár- sæll og Árni hafi átt í viðræðum við Fjölmiðlafélagið og gert yfirlýsingu um að félagið yfirtæki skuldir Norð- urljósa. Að auki segir í úrskurðinum að Búnaðarbankinn hafi gerst brot- legur gegn heilbrigðum og eðlileg- um viðskiptaháttum í fjármálastarf- semi með þessari háttsemi. Það bera að árétta að úrskurður Fjár- málaeftirlitsins beinist gegn bank- anum en ekki starfsmönnum hans þrátt fyrir að gjörðir þeirra hafi orð- ið til þess að bankinn taldist brot- legur í þessum tveimur tilfellum. Bar ábyrgð „Það sem gerðist einhvern tímann á meðan ég var bankastjóri í Búnað- arbankanum var að þá var álitaefni hvort bankinn hefði átt að flagga einhverjum tilteknum viðskiptum. Ég bar ábyrgð á þessu eins og hver annar bankastjóri,“ segir Árni Tóm- asson þegar málið er borið undir hann en sjálfur gefur hann þær út- skýringar að það álit hafi verið gefið út að bankinn hefði átt að tilkynna þessi viðskipti. Hann segir bankann hafa orðið við tilmælunum eftir úr- skurðinn en bendir á að regl- ur hafi verið óljósar en mistökin hafi verið leiðrétt. „Ég held að þetta sé glæp- urinn sem ég á að hafa borið ábyrgð á,“ seg- ir Árni síð- an. Telur sig hæfan Árni er núna formaður skilanefndar Glitnis en Ársæll er nefndarmaður í skilanefnd Landsbankans, þar sem hann eitt sinn starfaði sjálfur. Aðspurður hvort hann telji ekki óheppilegt að hann skuli starfa sem formaður skilanefndar Glitnis með úrskurð Fjármálaeftirlitsins á bak- inu segist Árni ekki telja að svo sé. „Í fyrsta lagi er það Fjármálaeft- irlitið sem tilnefnir mig í þetta starf, þannig að þeir telja mig nú ekki vanhæfari en það að þeir treysta mér til þess.“ Þegar haft var sam- band við Sigurð G. Guðjónsson, áður framkvæmda- stjóra Norður- ljósa, sagði hann: „Fjár- málaeftir- litið hlýt- ur að þurfa að velta fyr- ir sér hvort bankastjóri sem hefur gerst brotleg- ur geti stjórnað skilanefnd annars banka.“ Banki sekur, ekki fólk Hjá Fjármálaeftirlitinu fengust þau svör frá upplýsinga- full- valUR gReTTissoN blaðamaður skrifar: valur@dv.is „Ég held að þetta sé glæpurinn sem ég á að hafa borið ábyrgð á.“ Ársæll Hafsteinsson Fyrrverandi yfirlögfræðingur Landsbankans og áður búnaðarbankans rauf bankaleynd árið 2003 sem varð til þess að Fjármálaeftirlitið úrskurðaði bankann brotlegan. guðni aðalsteinsson situr í skilanefnd Kaupþings en var áður framkvæmdastjóri hjá bankanum. Jónas Fr. Jónsson Forstjóri Fjármálaeftirlitsins var í stjórn vöku ásamt skilanefndarmanni. Árni Tómasson var bankastjóri búnaðar- banka þegar Fjármálaeftirlitið úrskurðaði bankann brotlegan árið 2003. Árni situr núna sem formaður skilanefndar glitnis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.