Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 15
Föstudagur 7. Nóvember 2008 15Helgarblað
Tveir úr skilanefnd rufu bankaleynd
trúa að Búnaðarbanki Íslands hefði
brotið gegn þagnarskyldu en ekki
einstaklingar. Þar af leiðandi taldi
Fjármálaeftirlitið ekkert því til fyrir-
stöðu að Ársæll og Árni væru skip-
aðir í afmarkað verkefni eins og
skilanefndir Landsbanka Íslands og
Glitnis fimm árum eftir að úrskurð-
urinn féll.
Þegar blaðamaður óskaði eft-
ir úrskurðinum fengust þau svör
að hann félli sjálfur undir þagnar-
skylduákvæði og því var blaðamanni
synjað um hann. DV hafði þá uppi á
gögnunum eftir öðrum leiðum.
Rannsakar gamla
vinnustaðinn
Áður en Ársæll tók við starfi í skila-
nefnd var hann framkvæmda-
stjóri lögfræðisviðs og útlánaeftir-
lits Landsbankans, sama banka og
hann gerir nú upp. Þá vann hann
við hlið þeirra Sigurjóns Þ. Árna-
sonar og Halldórs J. Kristjánssonar,
bankastjóra Landsbankans áður en
hann var þjóðnýttur. Að auki gegndi
Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Nýja
Landsbankans, starfi framkvæmda-
stjóra fyrirtækjasviðs á meðan Ár-
sæll starfaði í bankanum.
Enn einn gamall vinnufélagi er
í skilanefndinni en það er Sigurjón
G. Geirsson sem áður starfaði sem
framkvæmdastjóri upplýsingasviðs
bankans. Hann hóf störf sem innri
endurskoðandi Landsbankans árið
1997. Árið 2003 fékk hann kauprétt-
arsamninga í bankanum og nýtti sér
þá.
Tók þátt í bankaþenslunni
Í skilanefnd Kaupþings situr rekstr-
arhagfræðingurinn Guðni Aðal-
steinsson. Nokkru áður en hann tók
við því starfi var hann framkvæmda-
stjóri Fjárstýringar Kaupþings. Á
sama tíma og hann gegndi því starfi
gaf bankinn út skuldabréf í Japan,
kölluð Samurai-bréf, upp á fimm-
tíu milljarða jena sem samsvarar 29
milljörðum króna.
Bankinn tilkynnti um Samurai-
bréfin í október 2006 og sagði Guðni
við það tækifæri: „Á undanförnum
mánuðum hefur mikil áhersla verið
lögð á að dreifa
fjármögn-
un bankans og því hefur markvisst
verið unnið að útgáfu skuldabréfa
á nýjum mörkuðum til að breikka
fjárfestahópinn. Viðtökur japanskra
fjárfesta nú eru því sérlega ánægju-
legar og gera má ráð fyrir að skulda-
bréfaútgáfur í Japan verði framvegis
reglulegur hluti af endurfjármögn-
un bankans.“
Mexíkósk skuldabréf
Í kjölfarið varð Kaupþing fyrsti bank-
inn í Evrópu til að að láta greiðslur af
japönskum Samurai-bréfum gjald-
falla á sig. Þetta kom fram í frétt á
Bloomberg-fréttaveitunni þann 20.
október síðastliðinn.
En Samurai-skuldabréfin eru
ekki einu skuldabréfin sem Kaup-
þing gaf út meðan Guðni Aðalsteins-
son starfaði sem framkvæmdastjóri
Fjárstýringar Kaupþings. Kaupþing
var einnig fyrsti ís-
lenski
bankinn til að herja á suðuramerísk-
an markað en bankinn gaf út skulda-
bréf í Mexíkó fyrir 2,3 milljarða pesa
undir stjórn Guðna. Andvirði þess í
íslenskum krónum er þrettán millj-
arðar króna.
Í nefnd á vegum Glitnis
Í skilanefnd Glitnis situr Kristj-
án Óskarsson en hann var fram-
kvæmdastjóri eignafjármögnunar
bankans sem þá hét Íslandsbanki
og stýrði einnig fyrirtækjasviði. Þá
var Bjarni Ármannsson bankastjóri.
Þá er Sverrir Örn Þorvaldsson,
sem situr í sömu skila-
nefnd, ekki alls ókunn-
ugur Bjarna Ármanns-
syni. Sverrir tók sæti í
stjórn finnska fjármálafyr-
irtækisins FIM Group Corp-
oration eftir að Glitnir keypti
68,1 prósents hlut í fyrirtæk-
inu í mars í fyrra. Á aðalfundin-
um, sem var haldinn í Helsinki,
var ný stjórn skipuð.
Í henni
sátu Frank Ove Reite, Niklas Geust
og Vesa Honkanen auk þeirra Bjarna
Ármannssonar og Sverris Arnar.
Ekki hryðjuverkamaður
Þá vekur athygli að Lárentsínus
Kristjánsson hæstaréttarlögmaður,
sem situr í skilanefnd Landsbank-
ans, var áður formaður Vöku í stúd-
entapólitíkinni. Varaformaður
Vöku þá var núverandi
forstjóri Fjár-
málaeft-
irlitsins, Jónas Fr. Jónsson.
Einnig kemur í ljós að skila-
nefndarmenn, líkt og aðrir Íslend-
ingar, eru reiðir Bretum fyrir að
hafa sett Landsbankann á lista yfir
hryðjuverkamenn. Knútur Þórhalls-
son, sem er í skilanefnd Kaupþings,
skrifaði undir mótmælaskjal gegn
ákvörðun Gordons Brown,
undir formerkjunum: Dar-
ling, I´m not a terror-
ist.
Trúnaðarskjöl Fjármálaeftirlitið vildi ekki
afhenda úrskurð um brot á bankaleynd og
óeðlilega viðskiptahætti þar sem fjallað er
um tvo skilanefndarmenn.
Landsbankinn Ársæll
Hafsteinsson tekur nú
þátt í því að gera upp
sinn gamla vinnustað.