Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Page 24
Leiðari
Gunnar Páll Pálsson, formaður launþegafélagsins VR, hefur orð-ið uppvís að því siðleysi að gefa eftir ábyrgðir á lánum til útvalins
hóps fólks. Hann er sekur um að mismuna
fólki sem stjórnarmaður í spilltum banka og
samþykkja það í umboði starfs síns að sum-
ir eigi að fá betri meðferð en aðrir. Það dap-
urlega í málinu er það að Gunnari Páli hefur
verið treyst til þess að vera foringi litla fólks-
ins. Hann er talsmaður láglaunafólks sem
greiðir hluta af launum sínum fyrir að hafa
brjóstvörn í verkalýðsfélagi. Hann er jafn-
framt stjórnarformaður í spilltum lífeyris-
sjóði sama fólks. Þeim sjóði var beitt í þágu
Kaupþings, Exista og skyldra aðila og fékk
verkalýðsforinginn að launum stjórnarsæti
í bankanum. Gunnar Páll er sömu gerðar
og þeir verkalýðsleiðtogar í Bandaríkjunum
sem nota völd sín til að efla eigin hag með
svívirðilegum hætti. Skjólstæðingar Gunnars
Páls eru margir með lágmarkslaun sem eru
undir 200 þúsund krónum á mánuði. Sjálf-
ur er hann með sjöföld laun þess fólks. Inn-
an verkalýðshreyfingarinnar hefur stundum
verið talað um koníaksklúbbinn. Það er
sá hópur sem sækir völd í gegnum
hreyfinguna og lífeyrissjóðakerf-
ið. Þetta eru mennirnir sem
eru með hendurnar á bóla-
kafi í vösum fólks sem sumt
á vart á til hnífs og skeiðar.
Formaður VR, líkt og aðr-
ir verkalýðsleiðtogar, hefur
fyrst og fremst það hlutverk
að gæta hagsmuna síns
fólks. Blindaður af gullkálf-
inum gleymdi hann hlut-
verki sínu og gerðist þjónn
þeirra sem hæst lifðu. Hans
ömurlega hlutskipti var það að
fella niður lánaábyrgð og klúðra
lífeyri þúsunda manna.
Félag hans, VR,
hefur
„virðingu og réttlæti“ sem slagorð. Það er
rangnefni í ljósi aðgerða foringja
litla fólksins sem gerðist þjónn
peningafólks. Stjórn VR hefur
svo bætt gráu ofan á svart og
lýst stuðningi við málalið-
ann. Það þýðir að öll verða
þau að víkja með skömm.
Fólkið sem treysti þeim til
að gæta hagsmuna sinna
hlýtur að krefjast réttlæt-
is. Ef þeir spilltu axla ekki
ábyrgð verður launafólk í
VR að bindast samtökum
um að láta ekki draga af
launum sínum til að halda
lífi í samtökum sem notuð eru
sem leiksoppur hinna gírugu.
reynir traustason ritstjóri skrifar. Blindaður af gullkálfinum gleymdi hann hlutverki sínu.
Spilltur foringi
Hrjáð þjóð í gjaldþrota landi hefur um margt að hugsa þessa dagana. Meðal ann-ars þann ræfildóm for-
sætisráðherra síns, Geirs H. Haarde,
að þora ekki fyrir sitt litla líf að reka
efnahagslega gereyðingarvopnið
Davíð Oddsson úr Seðlabankanum.
Svarthöfði er meðvirkur og næm-
ur og neitar að trúa því upp á hann
Geir að hann sé slík gunga og drusla
að hann óttist Davíð. Afdankaðan
embættismann sem ætti að vera með
öllu valda- og áhrifalaus þótt hann
hafi einhvern tíma stýrt landi, þjóð
og flokki sínum með járnkrumlu
íklæddri bláum gúmmíhanska.
Svarthöfði er klár á því að andleg-
ur vesaldómur sé ekki ástæðan fyrir
hikinu á Haarde heldur fyrst og fremst
áhyggjur af eigin hag og pólitísku lífi
sem myndi nú hanga á bláþræði hvort
sem Davíð sæti í Seðlabankanum eða
heima hjá sér að stela frá höfundi staf-
rófsins í notalegri fjarveru Guðnýjar.
Geir mátti láta ýmislegt yfir sig ganga af hendi Davíðs á meðan Davíð var aðal í Flokknum og Geir eitt af
peðunum. Þegar Davíð fór leyfði hann
aumingja Geir að trúa því að nú væri
hann loksins orðinn aðalgaurinn og í
gleði sinn fór Geir að brosa og jafnvel
kyssa Ingibjörgu Sólrúnu. Loksins,
loksins eftir öll mögru árin fékk Geir,
hélt hann, að stýra stærsta flokkn-
um. Á ímynduðum valdatíma Geirs
stefnir flokkurinn að vísu hraðbyri í
að verða smáflokkur við hlið Frjáls-
lynda flokksins og Framsóknarflokks.
Ekki síst vegna þess að Geir hefur ekki
treyst sér til þess að ganga á milli bols
og höfuðs á Davíð. Þeir sem þekkja til
innan mafíunnar og hafa horft á Sópr-
anós vita að í aðstæðum sem þessum
dugir ekkert minna fyrir arftakann en
að stúta þeim gamla.
Þessu þorir Geir ekki af ótta við að þá fyrst gangi Davíð af göflunum og stofni nýjan stjórnmálaflokk. Með öðr-
um orðum, kljúfi Sjálfstæðisflokkinn
í herðar niður og skilji Geir eftir til
þess að hafa taumhald á nokkrum vel
öldum góðærisgríslingum sem vilja
rjúka inn í ESB. Þá hugsun getur Geir
ekki hugsað til enda. Hann vill stjórna
flokki eins og Sjálfstæðisflokkurinn
var á meðan Davíð deildi og drottnaði
í Valhöll.
Einu sinni var Sjálfstæðisflokk-urinn flokkur Davíðs. Hann er það ekki lengur og verður það aldrei aftur. Geir virðist
bara vera svo pólitískt lesblindur að
hann áttar sig ekki á þessu. Norska
hérahjartað óttast svo um völd sín
og áhrif að það sér fyrir sér að mað-
ur sem 90 prósent þjóðarinnar hafa
hafnað í skoðanakönnunum geti
virkilega klofið Sjálfstæðisflokkinn.
Flokkurinn er þar fyrir utan í molum
í höndum Geirs og því illmögulegt að
kljúfa hann. Það yrði í það minnsta
engin kjarnorkusprenging ef einhverj-
um tækist að kljúfa það atóm. Hitt er
svo aftur víst að Davíð er ekki maður
til þess að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn
né nokkurn annan flokk. Hann er
stærri en svo og sérhæfir sig nú í að
kljúfa banka og heilt efnahagskerfi í
herðar niður.
Segjum samt sem svo að Davíð tæki upp á því að feta í fótspor Alberts Guðmundssonar og stofna vísi að borgaraflokki þá
fengi hann varla einn einasta sjálf-
stæðismann með sér. Meira að segja
Sigurður Kári Kristjánsson myndi hika
við að leggja í þá helför með átrún-
aðargoði sínu frá barnæsku. Borg-
araflokkur Davíðs myndi í besta falli
telja þrjá einstaklinga. Davíð sjálfan,
Jónínu Benediktsdóttur og Gunnar
Smára Egilsson.
Jónína er þegar búin að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum og er því í startholunum. Og fyrir utan hana virðist fjölmiðlamógúll-
inn fyrrverandi Gunnar Smári einn
hafa eitthvert álit á Davíð um þessar
mundir. Jónína hefur aldrei dregið
dul á Davíðsdýrkun sína en Gunn-
ar Smári hefur komið skemmtilega
á óvart upp á síðkastið. Áður notaði
hann hvert tækifæri til þess að hnýta
ónotum í Davíð. Þá var hann að vísu í
Baugsliðinu og tók meira að segja þátt
í útrásinni þótt hann vilji lítið við það
kannast eftir að hún klúðraðist. Sinna-
skipti Gunnars Smára eru alger og
mjög dramatísk. Nú sendir hann Jóni
Ásgeiri pillur og ver Davíð með kjafti
og klóm. Davíð hlýtur að geta fyrirgef-
ið gamlar syndir og þá verða félagar
hans í nýja flokknum tveir.
Föstudagur 7. Nóvember 200824 Umræða
flokkur Davíðs
Spurningin
„Nei, ekki í partíi LÍÚ, en mér er skítsama,
ég leitast eftir því að vera í
skemmtilegum partíum,“
segir Grétar Mar
Jónsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins,
sem var skilinn út undan
þegar öllum öðrum
nefndarmönnum í
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
nefnd alþingis
var boðið á
ársþing
Landssam-
bands íslenskra
útvegsmanna
á dögunum.
færðu ekki að
vera memm?
Sandkorn
n Lára Ómarsdóttir, fyrrver-
andi blaðamaður Moggans
og 24 stunda, er bjartsýnasti
atvinnuleysingi landsins. Í
stað þess
að leggjast
í vol og víl
hefur hún af
krafti farið í
að gefa fólki
kreppuráð
á Facebook.
Lára var í
þættinum
Í bítið á Bylgjunni að segja frá
því að hún hefði áður gengið
í gegnum kreppu og þurft að
komast af með átta manna fjöl-
skyldu. Þá voru á meðal rétta á
matseðli hennar glóðarsteiktar
gulrætur í rauðvínssósu.
n Kjartan Ólafsson alþingis-
maður er á meðal þeirra þing-
manna sem lítið sést til. Kjartan
er þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins á Suð-
urlandi og
sem slíkur í
skugga Árna
Johnsen sem
allir þekkja.
En nú mun
verða breyt-
ing á því
sjálfur Einar
Bárðarson, umboðsmaður
Íslands, hefur tekið að sér að
aðstoða týnda þingmanninn.
Hann verður örugglega popp-
aður upp á næstunni og landið
þá rísa. Vandinn kann að vera
sá að aðstoðarmaðurinn er
frægari en vinnuveitandinn.
n Ólgan í Framsóknarflokknum
þar sem sótt er að formann-
innum, Guðna Ágústssyni, er
síður en svo
í rénum.
Frá því var
sagt í Sand-
korni í gær
að Guðni
kallaði
einn þeirra
sem vildu
skipta út
forystunni, Hall Magnússon,
á sinn fund, sjálfsagt til að
snupra hann. Hermt var að
Hallur hefði verið beygður eftir
fundinn. Þetta var ekki rétt því
Hallur mun hafa sagt Guðna
skýrt þá skoðun að skipta yrði
út forystunni og verið hinn
brattasti eftir fundinn.
n Egill Helgason sjónvarps-
maður er farinn að stýra eins
konar Þjóðarsál á bloggi sínu
á Eyjunni.
Þangað
streyma inn
nafnlausir
kverúlantar
hundruð-
um saman
í bland við
aðra. Meðal
þeirra sem
birtast á athugasemdakerfi Eg-
ils eru Jón Gerald Sullenberger
og Jónína Benediktsdóttir sem
bæði eru talin vera í nánum
samskiptum við sjónvarps-
mann Íslands. Jónína notar
raunar þennan farveg til stærri
tilkynninga. Þannig sagði hún
sig úr Sjálfstæðisflokknum í
einni færslunni.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á NetiNu: dv.is
aðaLNúmer: 512 7000, ritstjórN: 512 7010,
áskriFtarsími: 512 7080, augLýsiNgar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Vissulega hefur maður
áhyggjur ef orðspor VR
skaðast út af þessu og
sjálfsagt þarf maður að
skoða sína stöðu.“
n Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, aðspurður
hvort hann hyggist segja af sér vegna
kaupréttarsamninga starfsmanna gamla
Kaupþings. - DV.is
„Alls konar gigg sem
manni stendur til boða að
mæta á, stundum matur
og allt í boði.“
n Dr. Gunni um að besta
kreppuráðið sé að skrá sig í
vinstri græna. - DV.
„Auðvitað
kraumar reiðin
í almenningi.“
n Vilhjálmur Birgisson,
verkalýðsforingi á Akranesi, segir
þjóðinni nánast hafa blætt út á einni nóttu og síðan
verið reynt að kenna almenningi um ósköpin. - DV.
„Það varð hér stórslys fyrir
15 til 20 árum.“
n Snorri Jóhannsson segir rjúpnastofninn á
Suður- og Vesturlandi ekki enn hafa beðið þess
bætur þegar veiðimenn hófu veiðar eldsnemma á
haustin og blóðmjólkuðu Arnarvatnsheiði. - DV.
„Ég hef aldrei tekið lán til
hlutabréfakaupa.“
n Halldór J. Kristjánsson,
fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, um að hann hafi
ekki fallið í sömu gryfju og
starfsmenn gamla Kaupings. - DV.
bókStafLega
Svarthöfði