Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Qupperneq 25
Föstudagur 7. Nóvember 2008 25Umræða
Dagný Jóhannsdóttir talar skýrt og
skorinort á netsíðunni kjósa.is eins-
og svo margir aðrir sem segja þar
skoðun sína umbúðalausa um leið
og þeir lýsa því yfir að þeir vilji kjósa
sem fyrst til Alþingis svo hægt verði
að hefja uppbyggingu á Íslandi eft-
ir efnahagshrunið. Dagný er ekki
jafnóttaslegin og ónafngreindur
vinur minn sem hringdi til mín í
gærmorgun og sagðist alls ekki geta
látið skoðun sína opinberlega í ljós
og gæti því ekki skrifað undir.
-Hvers vegna? spurði ég.
-Ég er svo hræddur um að missa
vinnuna, sagði hann.
-Þetta er auma staðan, sagði ég.
-Hún er ömurleg hjá mér, en hún
er ömurlegri hjá mörgum öðrum.
Ég sagði honum að hann gæti
hakað við beiðni þess efnis á síð-
unni að nafnið hans yrði ekki birt.
Hann sagði mér að hann gæti alls
ekki treyst því frekar en öðru; úlf-
arnir lægju alls staðar í leyni. Hann
hefði oftar en ekki brennt sig á því
að treysta og ætlaði ekki að brenna
sig á því oftar. Hann ætti fjögur börn
og væri eina fyrirvinnan, konan
hefði tapað sinni vinnu. Hlutskipti
hans væri því að þegja og líða fyrir
það.
-Ertu viss um að þetta sé rétt
ákvörðun, spurði ég.
-Nei, en ég neyðist til að taka
hana.
Hversu margir skyldu það vera
sem hugsa svona? Hversu marg-
ir hafa tapað bæði trausti sínu
og frelsi? Í hvers konar samfélagi
búum við ef við óttumst að missa
vinnuna ef við segjum meiningu
okkar? Og hvað skyldi sá náungi –
óttinn við valdið – hafa ríkt lengi og
kúgað okkur leynt og ljóst? Ég ætla
ekki að svara þessum spurningum
nema með sjálfri mér og bið ykk-
ur sem lesið þennan kjallara um að
gera það líka.
En Dagný Jóhannsdóttir þorir
sem sé að kjósa um framtíð sína og
okkar hinna líka – og það skal tek-
ið fram að ég veit ekkert hvað hún
leggur undir nema orð sín og sann-
færingu þegar hún segir:
„Ég treysti alls ekki núverandi
stjórnvöldum til að halda um stjórn-
völinn á komandi árum. Þau biðja
mig um samstöðu á erfiðum tímum
og ég vil ekki veita þeim hana nema
þau fari frá og aðrir taki við.
Núverandi stjórnvöld eru ekki
traustsins verð því verkin sýna merk-
in: Íraksstríðið – ekki í mínu nafni.
Pólitísk skipun seðlabankastjóra –
ógeðfelldur og ófaglegur ráðning-
armáti. Einkavinavæðing bankanna
með tilheyrandi fjárglæfrabrambolti
og ofurlaunum – siðferðishnignun.
Ævisparnaður venjulegs launafólks
fokinn út um gluggann – það svíður
að vera vitni að því. Eðlileg launa-
leiðrétting ljósmæðra átti að setja
landið á hausinn – trúverðugt?
Gersamlega ónýt peningastefna,
okurvextir, verðtrygging og him-
inháar afborganir húsnæðislána
– hversu flókið þarf það að vera að
hafa þak yfir höfuðið með eðlilegum
hætti? Listinn gæti haldið áfram, ég
vil kjósa og það strax!
Ég vil stjórn sem kemur með
sterka rödd, hefur sýn og segir skýrt
hvað hún ætlar að gera til að fólk
vilji vera áfram í þessu landi og taka
þátt í uppbyggingunni – að loknu
hruni.“
Hver er konan?
„Lára ómarsdóttir.“
Hvað drífur þig áfram?
„Það er fjölskyldan mín sem gerir
það.“
Hvar ólstu upp?
„Í reykjavík, nánar tiltekið í
Háaleitishverfinu.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Núna er það mexíkanskur matur.“
Lýstu þér í þremur orðum?
„Hress, jákvæð og ör.“
Áttu auðvelt með að sjá jákvæðu
hliðarnar í lífinu?
„Já, ég tel mig eiga auðvelt með það.
Það er svo gaman að lifa.“
Áttu eitthvert stutt gott
kreppuráð fyrir fólk?
„Það er eiginlega tvennt sem er
aðalatriðið. annað er að muna að
þakka fyrir það góða í lífi manns og
hitt er að nota bara peninga en ekki
kort.“
Þú munt keppa í Útsvari næst,
ertu búin að undirbúa þig?
„Ég er búin að undirbúa mig smá, ég
lék einhver tuttugu nafnorð í gær.“
Hefur þú fengið einhver
atvinnutilboð núna?
„Nei, engin tilboð en það er alltaf
nóg að gera hjá mér. Það er líka
hugarástand.“
Hver er draumurinn?
„Ég er að lifa hann.“
Kjósa, kjósa, kjósa
Andinn endurvAkinn verslanir eru ekki einar um að vera komnar í jólaskap. starfsmenn Orkuveitunnar hafa að undanförnu sett upp jólaljós til að endurvekja andann á
myrkum tímum og hér eru þeir við iðju sína á sóleyjargötunni. MYnd SigtrYggur Ari
Á Gunnar PÁll PÁlsson, formaður Vr, að seGja af sér?
„Það á að taka tillit til allra í þessu
sambandi.“
AnnA BenediktSdóttir
69 ára eLLiLÍFeyrisÞegi
„Já, en þó með fyrirvara um að allar
upplýsingar liggi fyrir. Ég bíð eftir þeim.“
guðný reiMArSdóttir
38 ára starFsmaður á taNNLækNastOFu
„Ég vil réttlæti.“
óLAfíA S. guðBjArtSdóttir
77 ára eLLiLÍFeyrisÞegi
„Já, hann á að segja af sér. Hann á
ekkert erindi þarna.“
dAníeL Örn jóHAnneSSon
24 ára útvarpsmaður
Dómstóll götunnar
LÁrA óMArSdóttir fjölmiðla-
kona hefur í mörgu að snúast þessa
dagana þrátt fyrir atvinnuleysið.
Hún stendur fyrir fjölmiðlapartíi
kvenna sem haldið verður á
næstunni, gefur ýmis góð ráð á
Facebook auk þess sem hún verður
þátttakandi í útsvari fyrir hönd
mosfellsbæjar í næsta þætti.
Er að lifa
drauminn
„Ég veit voðalega lítið um pólitík og
þori ekki að svara þessu.“
ArnAr gunnArSSon
19 ára atviNNuLaus, missti viNNuNa Í
kreppuNNi
kjallari
mynDin maður Dagsins
vigdíS
gríMSdóttir
rithöfundur skrifar
Í hvers konar samfélagi
búum við ef við óttumst
að missa vinnuna ef við
segjum meiningu okkar?