Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 27
Föstudagur 7. Nóvember 2008 27Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n Sixties á Players
Hljómsveitin
sixties kom
fyrst fram á
sjónarsviðið
árið 1995
þegar platan
bítilæði kom
út, sú plata
innihélt meðal
annars lögin vor í
vaglaskógi, viltu dansa og alveg ær, lög
sem ennþá njóta mikilla vinsælda á
dansstöðum víða um land. alls hefur
sveitin sent frá sér 5 plötur og verður því af
nógu að taka á Players á föstudagskvöldið.
n Pub Quiz á Dillon
Það verður stuð á dillon á föstudagskvöld
frá klukkan 20.00 til 22.00 þegar fram fer
Pub Quiz að hætti hússins.
n Stúdentaleikhúsið í Norræna
húsinu
stúdentaleikhúsið í samvinnu við mock
Flock frumsýnir leikverkið sCarta í
sýningarsal í kjallara Norræna hússins 7.
nóvember klukkan 20.00. verkið er samið
af leikhópnum og listrænum stjórnendum.
Leikstjóri víkingur Kristjánsson. Leikmynd
og búningar eva signý berger
n Dj Jói á 22
Plötusnúðurinn dj Jói mun skemmta
gestum skemmtistaðarins 22 með tónlist
sinni.
n Skugga-Sveinn í Leikhúsinu í
Kópavogi
Leikfélag Kópavogs sýnir skugga-svein
matthíasar Jochumssonar í glænýrri
leikgerð. Leikstjóri er Ágústa skúladóttir
sem hefur sett upp sýningar á borð við
Klaufa og kóngsdætur og grimms.
skugga-sveinn er vígslusýning Leikhússins
sem er nýtt leikhús í Kópavogi. Nánari
upplýsingar á kopleik.is
laugardagur
n Nostalgíukvöld með Greifunum
Hin ástsæla hljómsveit greifarnir ætlar að
spila á Players næstkomandi laugardags-
kvöld. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma
sem greifarnir spila opinberlega. ekki er
vanþörf á að gleyma kreppunni í
smástund, ferðast aftur í tímann og syngja
og dansa frá sér allt vit.
n Partí með Palla
Laugardagurinn 8.
nóvember býður
einn vinsælasti
skemmtikraftur
landsins, Páll
óskar
Hjálmtýsson, í
partí á skemmti-
staðnum Nasa við
austurvöll. Húsið opnað klukkan 23.00 og
er miðaverð kr. 1.500.
Forsala í partíið fer fram á Nasa föstudag-
inn 7. nóvember milli klukkan 13.00 og
17.00.
n Útgáfutónleikar Johnny
And The Rest
Næstkomandi laugardag blása blúsrokkar-
arnir í Johnny and the rest til mikillar
veislu í tilefni af útgáfu samnefndrar
hljómplötu sveitarinnar. Herlegheitin
verða haldin á neðri hæð domo,
Þingholtsstræti 5. Húsið opnað klukkan
20.30 og byrjar e.t. tumason að hita upp
mannskapinn klukkan 21.00.
n Spútnik og Harasystur - ABBA-ball
spútnikflokkurinn og Harasystur verða
með abba-ball í vélsmiðjunni
á akureyri laugar-
dagskvöldið 8.
nóvember.
misstir þú af
sing-a-
Long-
sýningunum
eða fannst þér
þú ekki mega
syngja nógu hátt?
Nú er
tækifærið!
FIFA 09
einn besti
fótbolta-
leikur sem
hefur
komið út.
m
æ
li
r
m
eð
...
ZeITGeIST ADDeNDum
skylduá-
horf fyrir
þjóð í
andar-
slitrun-
um.
OFSA eFTIR eINAR
KáRASON
einari tekst vel
upp, en framan
af er sagan þó
lágstemmdari en
óvinafögnuður.
FLuGu á veGG eFTIR
ÓLAF HAuK SímONARSON
bæði minningabók
og skáldverk sem
er bráðskemmti-
legt aflestrar.
hlutann á öðru leikári Kristínar í at-
vinnumannaleikhúsi viðurkenn-
ir hún að verða enn örlítið stressuð
þegar hún stígi fyrst á sviðið.
„Ég verð að viðurkenna að ég
verð ennþá svolítið stressuð. Ég
reyni samt bara að hugsa það þannig
að þetta sé orka, ég hef heyrt það
að mjög reyndir leikarar verði líka
stressaðir og það besta sem hægt
sé að gera sé að líta á það þannig að
stressið sé bara orka.“
Les sér til um
handritið og höfundinn
Eins og áður sagði lék Kristín aðal-
hlutverkið í Ökutímum ásamt Þresti
Leó en verkið, líkt og Fló á skinni,
fékk frábæra dóma gagnrýnenda
og var sýnt fyrir fullu húsi hjá Leik-
félagi Akureyrar. Verkið verður sett
upp í Borgarleikhúsinu eftir áramót
en í Ökutímum er viðkvæmt mál-
efni í brennidepli. Hlutverk Kristín-
ar sem Lilla var einstaklega átakan-
legt og vekur blaðamanni forvitni á
að vita hvernig Kristín undirbúi sig
fyrir slíkt hlutverk sem og önnur.
„Ég er að feta mig áfram í því. Hing-
að til hef ég lesið mér bara mikið til
um handritið og höfundinn, skoða
svo manneskjur yfirhöfuð og reyni
að setja það í samhengi við karakt-
erinn. Nota hjartað og líka þá tækni
sem ég lærði í skólanum. En þetta
var mjög erfitt umfjöllunarefni sem
var tekið fyrir í Ökutímum og krefj-
andi hlutverk,“ svarar hún.
vildi hoppa á sviðið fimm ára
Kristín lifði sig alltaf mikið inn í leik-
hús sem krakki, stundum það mik-
ið að hana langaði helst til að hoppa
upp á sviðið og taka þátt í verkinu.
„Mér fannst ótrúlega gaman í
leikhúsi þegar ég var krakki og sog-
aðist gjörsamlega inn í verkin. For-
eldrar mínir voru mjög duglegir að
fara með mig í leikhús. En vanda-
málið var að mig langaði alltaf svo
mikið upp á svið. Þegar ég var fimm
ára sat ég í sætinu mínu og hvíslaði
að pabba: „Pabbi, hvenær má ég
fara upp á svið?“ Það þurfti því að
passa sig að sitja ekki á fremsta bekk
með mig. Ég kunni nefnilega lagið
sem var verið að syngja í sýningunni
og var alveg í núinu að lifa mig inn
í verkið.“
Spurð um eftirminnilegasta verk-
ið sem Kristín hafi séð sem krakki er
hún ekki lengi að hugsa sig um:
„Ég man rosalega vel eftir því að
hafa séð Hárið í Íslensku óperunni.
Þá man ég að það kom eitt augna-
blik þar sem ég horfði á sviðið og
hugsaði: rosalega langar mig til að
vera leikkona. Svo fór ég nokkrum
sinnum í viðbót á þá sýningu,“ segir
Kristín og skellir upp úr.
með nótnastatíf í hárinu
Þó að Kristín hafi náð að stilla sig og
setið sem fastast í sætinu sínu á leik-
sýningum gengur leikhús þó ekki
alltaf svo klakklaust fyrir sig. Ýmis-
legt óvænt getur komið upp á með-
an á leiksýningum stendur, hvort
sem það tengist því að áhorfend-
ur hoppi upp á sviðið eða leikarar
gleymi textanum.
Kristín hefur sem betur fer
sloppið við allt slíkt í verkum sínum
á sviðum stóru leikhúsanna hingað
til en lenti hins vegar í heldur vand-
ræðalegu atviki þegar hún var enn í
leiklistarnáminu.
„Meðan ég var í skólanum festist
nótnastatíf á einhvern óskiljanlegan
hátt í hárinu á mér. Það var mjög eft-
irminnilegt fyrir mig og skólasystkini
mín. Ég datt og nótnastatífið festist í
hárinu mínu og þegar ég stóð upp
dróst nótnastatífið með. Ég var jafn-
stór og nótnastatífið og ég held ég
geti hiklaust sagt að þetta hafi verið
vandræðalegasta mómentið mitt,“
viðurkennir hún fegin því að þetta
hafi þó ekki verið í leiksýningu fyrir
framan fullan sal af fólki.
Frábært leikár í
Borgarleikhúsinu
Kristín segist aldrei nokkurn tímann
hafa séð eftir því að hafa valið sér
leiklistina sem starfsvettvang enda
nær hún með þessu að samræma
bæði áhugamál og vinnu. „Þetta er
svona ástríða. Leiklistin yfirhöfuð
er ástríða númer eitt, það eru kvik-
myndir, leikhús og allt sem tengist
leiklistinni. Og það er alveg ótrúlega
gaman í vinnunni.“
Hún segist ekki eiga sér neitt eitt
draumahlutverk sem hún vonist til
að fá að túlka í framtíðinni nema það
hlutverk sem hún vinnur við hverju
sinni. Út leikárið mun Kristín þó fara
með fjöldann allan af áhugaverðum
og krefjandi hlutverkum en að lokn-
um sýningum á Vestrinu eina taka
við æfingar fyrir Rústað, fyrsta leikrit
unga og frakka leikskáldsins Söruh
Kane sem féll síðan fyrir eigin hendi
langt fyrir aldur fram. Að því loknu
tekur Kristín svo aftur upp þráðinn í
hlutverki Lillu í Ökutímum en hvaða
hlutverk bíða hennar á næsta leikári
er óráðið. En óhætt er að fullyrða að
verkefni Kristínar eru krefjandi.
„Ég er á samningi í Borgarleik-
húsinu og það eru alger forréttindi,
hér er ótrúlegur kraftur og gleði.
Hér er skemmtilegur hópur fólks
sem vinnur saman að sama marki.
Og frábærir listamenn sem ég vinn
með. Það eru spennandi verkefni
á dagskránni og gestirnir streyma
í leikhúsið. Ég er með þétt skipaða
dagskrá út leikárið og hlakka til að
takast á við þau verkefni. Það er ekki
hægt að óska sér betri stöðu sem ung
leikkona. Ég veit ekki hvaða verkefni
bíða mín á næsta leikári – en veit af
nokkrum mjög spennandi leikverk-
um sem eru til skoðunar, það verð-
ur spennandi að sjá hver þeirra fara
á verkefnaskrána. En það er af nógu
að taka þetta leikárið og ég mun
leggja mig fram um að gera þau vel
og njóta þess að leika í kraftmiklum
og góðum leikverkum.“
krista@dv.is
Sextán ára
sprúttsali
„Þetta er mjög fjölbreytt sýning,“
segir ungi og efnilegi listamaður-
inn Maggi Noem. „Á sýningunni
verða ljósmyndir, þrykk, vídeó-
verk og nýjar bækur frá mér,“ en
þessi fyrsta einkasýning Noems
fer fram í galleríinu Tutte bene
á Skólavörðustíg 22b. „Sýningin
heitir Graffarinn geðþekki sem
krassaði sig inn í hjarta lands-
manna,“ en Noem er einn færasti
graffitílistamaður landsins.
Opnun sýningarinnar fer fram
á laugardaginn og stendur frá átta
um kvöldið til miðnættis. Auk
verka Noems sem verða til sýnis
munu tónlistarmennirnir Danni
Deluxxx úr hljómsveitinni 1985!
og M.E.G.A. úr Steed Lord sjá um
tónlist á opnuninni.
„Ljósmyndirnar eru mestallt
„snap shots“ og má lesa svona
graffitíundirtón í þeim,“ segir
Noem þegar hann er beðinn um
að lýsa verkum sínum. „Öll verk-
in tengjast á einhvern hátt bók-
unum sem ég er með. Þær eru
orðnar tólf talsins en ég verð bara
með fimm þeirra til sölu á sýning-
unni.“ Noem vill ekki fara út í efni-
við vídeó-verksins sem hann segir
eiga að koma á óvart. Noem hef-
ur meðal annars unnið að sjónlist
með hljómsveitunum Steed Lord
og nú síðast Sometime.
„Sýningin verður næstu tvær
vikurnar. Henni líkur svo 21. nóv-
ember.“ Sýningin verður opin alla
daga fram að því frá 14 til 18.
asgeir@dv.is
maggi Noem opnar sína fyrstu einkasýningu í Tutte Bene á Skólavörðustíg:
Opnun graffarans geðþekka
Baksviðs fyrir forsýningu
Kristín sminkuð og gerð að
sextán ára sprúttsala.
myND SIGTRyGGuR ARI
Dramatískt og fyndið í bland
Kristín leikur nú í gamanharmleikn-
um vestrið eina ásamt Þresti Leó,
birni thors og bergi Þór.
myND SIGTRyGGuR ARI
Alltaf draumurinn að verða leikkona
Þegar Kristín var fimm ára í leikhúsi lifði
hún sig svo mikið inn í verkið að hana
langaði mest af öllu að hoppa upp á svið
og taka þátt í uppfærslunni.
myND SIGTRyGGuR ARI
maggi Noem Opnunin hefst klukkan 20.00 á laugardag.
myRKá eFTIR ARNALD
INDRIðASON
arnaldur bregst ekki
lesendum sínum
fremur en fyrri
daginn þótt útlitið sé
ekki gott framan af.
WHeRe IN THe WORLD
IS OSAmA BIN LADeN
einföld, skemmti-
leg, hröð, kímin og
full af stafrænni
hreyfimyndagerð
og góðri grafík.