Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Side 34
Föstudagur 7. Nóvember 200834 Helgarblað
Robert Z. Aliber, fyrrver-andi prófessor við há-skólann í Chicago, sagði í aðsendri grein í Morgun-
blaðinu nýlega að það væri ólík-
legt að nýir leiðtogar sem valdir
væru af handahófi úr símaskránni
gætu valdið jafnmiklu efnahags-
legu tjóni og íslensk stjórnvöld
hafa gert. Aliber er sérfræðing-
ur í fjármálakreppum sem hann
hefur á löngum ferli sínum rann-
sakað úti um víða veröld. Þá hef-
ur Aliber sagt að Seðlabankinn og
ríkisstjórnin séu engu hæfari sem
stjórnendur nútímahagkerfis en
þau væru sem stjarnvísindamenn.
Hugmynd Alibers um að velja
stórnendur af handahófi er ekki
ný af nálinni en Aþeningar, sem
fundu upp grunninn að vestrænu
lýræði, höfðu á tímabili þennan
hátt á. DV tók Aliber á orðinu og
notaði aðferð Aþeninga til þess
að mynda nýja 12 ráðherra ríkis-
stjórn upp úr símaskránni og valdi
auk þess nýjan seðlabankastjóra.
Forsætisráðherrann í ríkisstjórn
alþýðunnar hefur ákveðið að reka
stjórn Seðlabankans og vill óska
eftir viðræðum um inngöngu Ís-
lendinga í Evrópusambandið.
Stjórnin er ekki einhuga í af-
stöðu sinni til ESB en meirihluti
ráðherra er fylgjandi aðild. Nýi
viðskiptaráðherrann vill sameina
Landsbankann, Glitni og Kaup-
þing í einn banka og halda hon-
um í ríkiseign. Nýr seðlabanka-
stjóri, sem er lyfjafræðingur að
mennt, vill lækka stýrivextina og
kasta krónunni.
Forsætisráðherra
Marínó G. Njálsson, 47 ára sérfræðing-
ur í stjórnun upplýsingaöryggis og
rekstrarsamfellu.
Hvort ræður Seðlabankinn eða
ríkisstjórnin? Viltu reka seðlabanka-
stjórnina? Ef já: Af hverju? Hvernig
bera ráðherrar ábyrgð?
„Það er hlutverk ríkisstjórnarinnar að
stjórna landinu. ríkisstjórnin markar
stefnu í efnhagsmálum og setur bæði
bönkum og seðlabanka lög og reglur
sem eiga að tryggja efnahagsstöðug-
leika í landinu. Þetta regluverk á að
verja hagsmuni almennings ofar öllu og
þarf því að breyta því verulega í ljósi
reynslunnar.
Í ljósi þess að seðlabankanum hefur
hvorki tekist að tryggja stöðugleika
verðlags né gengis krónunnar, þá hef ég
ákveðið að víkja stjórn og bankastjórum
seðlabankans. Nýr yfirbankastjóri hefur
verið ráðinn til starfa. mun hann vinna,
til að byrja með, með núverandi
bankastjórn á meðan mesta neyðar-
ástandið varir, en tekur svo alveg yfir 1.
janúar 2009. til starfans var ráðinn
fyrirverandi bankastjóri bank of
england og honum til aðstoðar hafa
verið ráðnir nóbelsverðlaunahafinn Paul
Krugman, Walter buiter og Þórður
Friðjónsson.
Frumskylda hverrar ríkisstjórnar er að
tryggja stöðugleika í efnahagsmálum
og halda uppi háu atvinnustigi. bregðist
hún slíkri skyldu, þá á hún að víkja. Hafi
einstakir ráðherrar ekki staðið sig ber
þeim að stíga til hliðar. Í ljósi atburða
síðustu vikna verður boðað til
alþingiskosninga og munu þær fara
fram laugardaginn 1. mars 2009. Í
millitíðinni verður skipuð utanþings-
stjórn og hef ég farið þess á leit við
rektor Háskóla Íslands að finna hæfa
einstaklinga úr háskólasamfélaginu og
atvinnulífinu til að sitja í þeirri stjórn.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„aðild að esb verður að vera á okkar
forsendum og má alls ekki vera
neyðarúrræði. Það er þó rétt að óska
strax eftir slíkum viðræðum, þó svo að
viðræðurnar sjálfar hefjist ekki fyrr en
hægir um í þjóðfélaginu.“
Hvort myndir þú, sem ráðherra
efnahagsmála, vilja byggja upp
krónuna eða taka upp annan
gjaldmiðil?
„Krónan hefur runnið sitt skeið sem
sjálfstæð mynt. Það er nauðsynlegt að
skoða kosti tengingar hennar við aðra
gjaldmiðla eða upptöku annars
gjaldmiðils, en ákvörðun um slíkt má
ekki taka án undangenginnar
greiningar á hvað telst best. Þessa vinnu
þarf að setja strax í gang og kalla til
færustu sérfræðinga, en stjórnvöld taka
síðan ákvörðunina, ekki sérfræðingarn-
ir.“
Ætlarðu að láta Breta komast upp
með að sverta ímynd Íslands með
hryðjuverkalögum?
„Það sem bretar gerðu var ófyrirgefan-
legt og við munum sækja fast að þeir
bæti okkur upp tjón okkar. til að sýna
hversu alvarlegum augum við lítum
málið hefur sendiherra okkar í bretlandi
verið kallaður heim til skrafs og
ráðagerða.“
Treystir þú Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um fyrir hagsmunum Íslendinga?
„aðkoma ImF er og verður alltaf á okkar
forsendum og með það að markmiði að
halda atvinnulífinu gangandi. Komi í
ljós að skilyrði ImF eru þannig að hér
stefni í mikið atvinnuleysi, þá er það
ekki ásættanlegt. Fyrr munum við
aðstoða fyrirtæki með launagreiðslur en
að hér fyllist allt af fólki sem mælir
göturnar.“
Utanríkisráðherra
Heimir Sigurðsson, 57 ára söluráðgjafi.
Vilt þú fækka sendiráðum?
„Já, ég vil það og ég tel það nauðsyn-
legt eins og peningamál þjóðarinnar
eru í dag.“
Finnst þér svekkjandi að Ísland hafi
ekki komist í öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna?
„Nei, mér finnst það ekki, íslenska
þjóðin hefur ekki peninga í dag fyrir
þau útgjöld sem því fylgir.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Já, það er tímabært að skoða það mjög
vel til að sjá hvað er með og á móti að fá
aðild að esb. til þess að fara í aðild þarf
það að vera yfirgnæfandi jákvætt fyrir
íslensku þjóðina.“
Hvernig geta Íslendingar bætt
samskipti sín við Breta?
„Það sé ég ekki alveg fyrir mér á þessari
stundu, en það verður samt að halda
áfram viðræðum út af þeirri stöðu sem
er komin upp í dag og freista þess að
lausn náist sem allra fyrst. Það verður að
leysa þetta ófremdarástand sem ríkir á
milli þjóðanna.“
Telur þú mögulegt að Rússar fái að
hafa herstöð á Miðnesheiði?
„Nei, það er ekki inni í myndinni af
minni hálfu. Það þarf ekki að hugsa um
eða ræða það frekar.“
Fjármálaráðherra
Laufey Þorsteinsdóttir, símastúlka hjá
Hreyfli.
Hvernig ætlar þú að bregðast við 10
prósenta atvinnuleysi?
„Ég ætla að reyna eftir fremsta megni að
skapa ný atvinnutækifæri.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Já, hiklaust. Ég tel að það yrði gott fyrir
okkur.“
Værir þú tilbúin að skuldbinda
íslenska ríkið vegna inneigna
útlendinga í Icesave?
„að sjálfsögðu.“
Kæmi til greina að taka tvö núll aftan
af krónunni?
„Já, það kæmi vel til greina.“
Hvort telur þú heppilegra að mæta
samdrætti í þjóðfélaginu með
skattahækkunum eða samdrætti í
rekstri ríkisins?
„samdrætti í rekstri ríkisins, án efa.“
Félags- og
tryggingamálaráðherra
Sigurður Kristjánsson, húsasmiður.
Hvernig á velferðarkerfið að
bregðast við fjöldaatvinnuleysi og
skertum kjörum lífeyrisþega?
„Ég myndi vilja tryggja því fólki, sem á
við erfiðleika að stríða í sambandi við
lánin, aðstoð. sennilega þyrfti að fella
niður stóran hluta af lánum til að gefa
fólki kost á því að geta borgað eitthvað,
það er fólk sem á engan pening og það
þarf að finna meðalveg. Þetta er það
versta sem getur komið fyrir nokkurn
mann.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„ekki sækja um en ræða málin í botn,
finna kosti og galla og fara svo með það
í þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Munt þú beita þér fyrir því að þeir
sem eru með bílalán í myntkörfu fái
frystingu eins og þeir sem eru með
húsnæðisskuldir?
„Nei, ég er ekki á þeirri skoðun í
sambandi við bíla. Þú kemst ekki af án
þess að vera með þak yfir höfuðið en
bíls er hægt að vera án.“
Kemur til greina að lækka barnabæt-
ur til þess að bregðast við nýrri
skuldastöðu ríkisins?
„Nei, ég held við eigum að reyna að
halda í barnabæturnar.“
Munt þú reyna að koma með
einhverju móti til móts við þá sem
horfa nú fram á skertan lífeyri vegna
bankahrunsins?
„Já, við getum tekið af þeim sem njóta
lífeyris því hann er ekki svo hár fyrir. við
eigum að reyna að verja hann í lengstu
lög.“
Viðskiptaráðherra
Haraldur Guðjónsson, tæknimaður.
Ber Fjármálaeftirlitið ekki mesta
ábyrgð á bankahruninu sökum
andvaraleysis? Ef svo, á að reka
yfirmenn þess og stjórn?
„Það er náttúrlega vitað mál að
Fjármálaeftirlitið hefur verið í molum
eða ekki verið virkt. Það sem helst ber
að segja er að fólk er orðið of tengt
hvert öðru, eins og það sé að fylgjast
með sjálfu sér. Það virkar ekki, því
miður.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Já, það er auðvitað tímabært að sækja
um. Það tekur tíma og ekkert víst að við
fáum inngöngu því esb hefur ekki verið
áfram um að taka inn skuldsett ríki. en
það sakar ekki að reyna. Það er
gáfulegra en að reyna að komast inn í
öryggisráð sÞ eins og staðan er í dag. “
Hvað á að gera við ríkisbankana þrjá,
Glitni, Landsbanka og Kaupþing? Á
ríkið að selja þá eða eiga áfram?
„Það á að sameina þá í einn banka og
ríkið á að eiga þá áfram. svo á að opna
fyrir erlenda bankaþjónustu. Það er
greinilegt að við ráðum ekki við okkur
sjálf og við þurfum aðra til að hjálpa
okkur.“
Ætlar þú að láta Breta komast upp
með að sverta ímynd Íslands með
hryðjuverkalögum?
„Ég veit það ekki. almenningur er ekki
nógu vel upplýstur. Ég trúi því ekki að
þeir hafi gert þetta að vanhugsuðu
máli. Það hlýtur eitthvað að hafa gerst.
Okkur er ekki sagt neitt. Þeir hljóta að
hafa eitthvað fyrir sér. Fólk þarf að anda
aðeins með nefinu áður en því er slegið
föstu að þetta hafi bara verið einhliða
ákvörðun.“
Munt þú beita þér fyrir því að eignir
auðmanna úti í heimi verði sóttar og
notaðar upp í þær skuldir sem útrásin
hefur kostað þjóðina?
„Það er ekki hægt nema að því gefnu að
þeir hafi brotið af sér en að öðrum kosti
held ég að það sé ekki neinn fótur fyrir
því að það sé hægt að gera það.“
Umhverfisráðherra
Haraldur Óskarsson, netagerðarmaður
í vestmannaeyjum.
Ætti að láta umhverfisverndarsjónar-
mið víkja fyrir uppbyggingu stóriðju
til að efla atvinnulíf?
„Ég held að það sé ekkert annað í
stöðunni. við verðum að nýta allt til
þess að rétta úr kútnum. Það er mín
skoðun.“
Ísbjörn gengur á land og veldur
skelfingu. Hvernig bregst þú við?
„Það gengur ekkert að forða sér. við
verðum að skjóta þá ef svo ber undir. en
mér fannst stórsniðug hugmynd að
reyna að fanga þá og koma þeim til síns
heima. en það verður að vega og meta
það í hvert skipti.“
Hvert er mikilvægasta verkefni
umhverfisráðuneytisins?
„Í sjálfu sér verðum við að hugsa vel um
landið okkar en við þurfum að nýta
okkur allt sem í boði er, hvort sem það
er stóriðjustefna eða eitthvað annað.
stóriðja hefur hjálpað mikið til, en
auðvitað má ekki ganga um landið og
skemma það. Ég hef farið á þessa staði
sem verið er að virkja og það er farið vel
með þessa staði, eins og til dæmis
Kárahnjúka.“
RíkisstjóRn alþýðunnaR
Forsætisráðherra Utanríkisráðherra Fjármálaráðherra Félags- og tryggingamála-
ráðherra
Viðskiptaráðherra Umhverfisráðherra Heilbrigðisráðherra