Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 35
Föstudagur 7. Nóvember 2008 35Helgarblað
Munt þú beita þér fyrir því að hægt
verði að kaupa vetnis- og aðra
umhverfisvæna bíla á góðum
kjörum?
„að sjálfsögðu. Ég vona að vetni og
rafmagn verði til famtíðar.“
Kemur til greina að falla frá ákvörðun
um sameiginlegt umhverfismat til
þess að flýta framkvæmdum við
álver á Bakka?
„Já, það er mín skoðun. Þetta er
lífsspursmál fyrir þetta fólk á þessu
svæði að fá traust fyrirtæki til að skapa
atvinnu.“
Heilbrigðisráðherra
Ellert Alexandersson, framkvæmda-
stjóri á Álftanesi.
Er einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
það sem koma skal og dregið getur
úr kostnaði við rekstur heilbrigðis-
kerfisins?
„einkarekstur að hluta til er af hinu
góða.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Já, ég held að við ættum að kanna
hvað okkur býðst í esb með því að hefja
viðræður sem fyrst.“
Hvað vilt þú gera með áform um
byggingu nýs sjúkrahúss við
Hringbraut, svokallaðs hátækni-
sjúkrahúss?
„Hætta við Hringbraut, en byggja nýtt
hátæknisjúkrahús í Fossvogi.“
Hvar telur þú helst mögulegt að
spara í heilbrigðisþjónustunni?
„um 70 prósent af kostnaði við
heilbrigðisþjónustu er launakostnaður,
því þarf að skoða þennan lið fyrst.“
Hvernig má útrýma biðlistum eftir
aðgerðum á sjúkrahúsum?
„við útrýmum ekki biðlistum, við
styttum þá.“
Iðnaðarráðherra
Eygló Lind Egilsdóttir, starfar hjá
borgarneskirkju.
Er aukin stóriðja lausn á kyrrstöðu í
atvinnulífinu?
„Nei, tilfinning mín er við verðum að
gera eitthvað en mér finnst ekki rétt að
horfa til stóriðju. við erum í neyð og
getum ekki lifað á einhverri fjallagrasa-
hugmynd, en ég er samt ekki hrifin af
því að auka stóriðju. við eigum að fara
okkur hægt.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Nei, ég tel það ekki tímabært. við
ættum frekar að halla okkur meira að
Norðurlöndunum.“
Er mögulegt að reyna að halda
fyrirhugaðri orkuútrás áfram í ljósi
aðstæðna á mörkuðum hér heima og
erlendis?
„við eigum fyrst og síðast að nýta
orkuna hér á landi til að skapa atvinnu
en ekki að hafa einhverja gróðahugsun
þar á bak við. Það er algjört grundvallar-
atriði.“
Vilt þú reisa olíuhreinsistöð á
Vestfjörðum?
„Nei. Ég veit að það vantar atvinnu á
vestfjörðum en ég tel þetta ekki réttu
leiðina.“
Kemur til greina að selja Kárahnjúka-
virkjun upp í skuldir ríkisins?
„Já, því ekki? en þá myndi ég samt ekki
vilja selja hana til erlendra aðila heldur
einhverra Íslendinga.“
Samgönguráðherra
Oddný Sigríður Kristjánsdóttir, starfar
í verslun á akureyri.
Er rétt að auka vegaframkvæmdir og
jarðgangagerð þegar illa árar eins og
nú?
„Nei það mætti klára hringveginn fyrst.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Ég er ekki búin að mynda mér skoðun
á því.“
Hverjar eru brýnustu samgöngubæt-
urnar?
„Ég myndi bara vilja klára að malbika í
kringum allt Ísland áður en við færum
að huga að einhverju öðru.“
Hvað á að gera við Reykjavíkurflug-
völl?
„Það á að leyfa honum að vera áfram í
skerjafirðinum. Það myndi allavega
henta mér best þegar ég er að fljúga
suður, ekki myndi ég nenna að keyra í
bæinn frá Keflavík.“
Kemur til greina að einkavæða
Íslandspóst?
„Ég er ekki búin að mynda mér skoðun
á því.“
Dómsmálaráðherra
Guðrún Jónína Sveinsdóttir,
þroskaþjálfi og heilsunuddari í
Neskaupstað.
Hvern mundir þú ráða sem lögreglu-
stjóra á Reykjanesi?
„Pabba minn, svein einarsson, hann
hefur ríka réttlætiskennd og er
sanngjarn maður.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Ég hef sveiflast fram og til baka í
skoðunum mínum á því máli en ég er
farin að halda að það sé frekar orðið
óhjákvæmilegt heldur en tímabært.“
Er tímabært að vopna lögregluna
með rafbyssum?
„Já. Ég hef fylgst vel með ofbeldinu í
reykjavík og því sem gengur á í
handrukkaraheiminum og annað slíkt
svo mér finnst fólki hætta búin í dag.“
Hvernig viltu tryggja öryggi hins
almenna borgara?
„til að byrja með myndi ég sennilega
hætta að fjársvelta lögregluna og fjölga
þar. auk þess er mér hugleikin spillingin
innan stofnana sem varða almenning
og stjórna högum almennings. til dæm-
is finnst mér mikilvægt að manni líði
eins og það sé traust til staðar þar sem
það eykur vellíðan fólks, öfugt við það
sem er að gerast í dag. Það er ekkert
traust og maður veit ekkert hverjum
maður á að treysta það eykur vanlíðan.“
Hvernig vilt þú reyna að stemma
stigu við flæði eiturlyfja inn í landið?
„Nú er ég búin að fjölga í lögreglunni
og ég veit að landið flýtur í eiturlyfjum
sem fer bara versnandi og ég held
meðal annars að lögreglunni gangi illa
því þeir eru alltof fáir og það er alltof
mikil spilling í þessu blessaða landi. Ég
myndi líka fara í einhvers konar herferð
gegn eiturlyfjum. Ég þekki ágætlega til í
þessum heimi og ég held að við
sökkvum bara tvívegis, bæði með
krónunni og í eiturlyfjunum því
ástandið er svo slæmt í landinu.“
Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
Guðmundur Ragnarsson, kennari.
vilt þú auka þorskkvótann?
„Já, ég vil það. Náttúrulega innan
skynsamlegra marka en ég myndi
hækka hann frá því sem hann er núna.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Já. Ég held að það sé tímabært en ekki
sem leið út úr því ástandi sem er núna.
Ég vil sækja um aðild að því gefnu að
við náum sérsamningum um fiskimiðin.
Þessi gjaldmiðill okkar er ekkert til að
halda upp á.“
Hvað á að gera í hvalveiðum?
„Hætta þeim. Ég tel að þær valdi okkur
meiri skaða en ávinningi.“
Er tímabært að afnema tollavernd á
landbúnaðarvörum?
„Nei, ég held að það sé ekki tímabært.“
Er ráðlegt að taka aðeins mið af
niðurstöðum einnar vísindastofnun-
ar um fiskveiðiráðgjöf?
„við höfum bara eina stofnun sem hefur
séð um þetta mat. spurning hvort það
ætti að vinna rannsóknir um sóknarþol í
samvinnu við nágrannaþjóðir okkar.
Noreg til dæmis.“
Menntamálaráðherra
Björn Þórisson, nemi í reykjavík.
Hvernig er hægt að bregðast við
hremmingum 3000 námsmanna
erlendis sem mega nú þola verulegar
skerðingar og gjaldeyrisvanda?
„ríkissjóður yrði ljánasjóður náms-
manna. eða að ríkissjóður veitti
lánasjóði námsmanna allavega lán til
þess að styðja við bakið á þeim í þessu
erfiða ástandi. mikilvægast er þó að
koma gjaldeyrisviðskiptum í lag. svo
námsmenn hafi aðgang að fjármunum
sínum og geti flutt þá milli landa.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„ekki að svo stöddu. Fleiri atriði þyrftu
að liggja fyrir. Ég styð ekki beina aðild
en kannski myntsamstarf.“
Er réttlætanlegt að RÚV keppi við
frjálsa fjölmiðla á auglýsingamark-
aði?
„Ég myndi telja það, já.“
Á að auka fjárframlög ríkisins til
skóla eða auka heimildir til inn-
heimtu skólagjalda ef auka þarf
fjárheimildir skólanna?
„Ég myndi segja að ríkissjóður ætti að
leggja meira af mörkum í þessu ástandi,
þar sem atvinnuleysi eykst. Þá er
mikilvægt að nýta tímann til menntun-
ar. að fólk hafi kost á að fara í skóla. en
svo er spurning hvort til séu peningar til
að gera það.“
Hvernig sérðu fyrir þér að hægt verði
að ljúka við byggingu Tónlistarhúss-
ins eftir að Landsbankinn var
þjóðnýttur?
„Persónulega myndi ég loka húsinu.
gera það fokhelt og bíða til betri tíma.
sjá hvernig staðan er á næsta ári.“
Seðlabankastjóri
Valdís Beck, 33 ára lyfjafræðingur í
reykjavík.
Hvort á að hækka eða lækka
stýrivexti til að ná okkur á flot aftur?
„Lækka, held ég. Hitt hefur ekki virkað
hingað til.“
Hvað hefðir þú gert ef þú hefðir séð
blikur á lofti í rekstri bankanna fyrir
átta mánuðum?
„reynt að koma í veg fyrir að við
hefðum lent í svona mikilli ábyrgð og
íslenska þjóðin myndi gjalda þess.“
Telur þú tímabært að sækja um aðild
að ESB?
„Ég myndi ekki gera það strax en íhuga
það sterklega þegar frá líður. Fyrst
þurfum við að gera okkur grein fyrir
hver nákvæmlega staðan er. mér finnst
við almenningur ekki ennþá hafa fengið
að vita það.“
Myndir þú mæla með að krónan yrði
styrkt eða tekinn upp nýr gjaldmið-
ill?
„mér líst betur á nýjan gjaldmiðil. Ég
myndi skoða eitthvað annað en evruna
til að byrja með því mér heyrist við
þurfa að fórna ýmsu til að taka hana
upp.“
Þurfa seðlabankastjórar að vera þrír?
„Nei, mér finnst að það ætti að vera einn
seðlabankastjóri. Og þá maður með
góða menntun og góða ráðgjafa með
sér, eins og þegar við erum að hugsa
um stjórnun einkafyrirtækja.“
RíkisstjóRn alþýðunnaR
„Já, ég held að
við ættum að
kanna hvað
okkur býðst í
ESB með því að
hefja viðræður
sem fyrst.“
Iðnaðarráðherra Samgönguráðherra Dómsmálaráðherra Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
Menntamálaráðherra Seðlabankastjóri