Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Side 40
föstudagur 7. nóvember 200840 Sport
Sport Harry fær ekki gulldrenginn sinn fáum leikmönnum hef-ur Harry redknapp, knattspyrnustjóri tottenham, hælt meira en franska miðjumanninum Lassana diarra. Í stjórnartíð Harrys hjá Portsmouth kepptist hann við að lofa frakkann sem hann fékk frá arsenal. talið var að redknapp ætlaði sér að fá diarra til tot-tenham í janúar en hefur nú fengið samkeppni frá auðjöfrunum í manchester City. City ætlar að bjóða fimmtán milljónir punda í miðjumanninn þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar og verð-ur Harry því líklega að halda áfram að horfa á diarra í sjónvarpinu.
alessandro del Piero er einn besti knattspyrnumaður samtímans. Vegna óheiðarleika forsvarsmanna Juv-
entus féllu liðið og Del Piero af stjörnuhimninum um stund á meðan liðið lék í næstefstu deild. Del Piero yfir-
gaf Juventus ekki og hefur hjálpað liðinu að komast aftur þangað sem það á heima. Á meðal þeirra bestu.
Hann er elskaður og dáður um alla Ítalíu. Kallaður hið sanna undur af stuðningsmönnum sínum.
Mörk Alessandros Del Piero gegn
Real Madrid í meistaradeildinni í
vikunni voru númer 247 og 248 hjá
honum fyrir Juventus. Hann er fyrir
löngu orðinn leikjahæstur hjá félag-
inu frá upphafi og einnig sá marka-
hæsti. Þegar dómaraskandallinn reið
yfir Ítalíu og Juventus var fundið sekt
um að hafa mútað dómurum var liðið
sent rakleiðis niður í næstefstu deild.
Þá búinn að vera hjá í félaginu í
þrettán datt Del Piero ekki í hug að
fara og hjálpaði liðinu aftur upp í seríu
A. Á fyrsta tímabili þar eftir skandal-
inn varð liðið í þriðja sæti og komst
inn í meistaradeild Evrópu aftur í ár.
Keppni sem það hefur aðeins unn-
ið einu sinni. Hinn 33 ára Del Piero
hefur sjaldan verið betri eins og Real
Madrid fékk að kenna á í vikunni.
Þessi magnaði leikmaður verður auð-
veldlega settur í hóp með sönnum
snillingum og félagsmönnum eins og
Ryan Giggs og Raúl.
Byrjaði í marki
Af verkafólki kominn hafði Del Piero
alltaf mikinn áhuga á knattspyrnu
og lét varla boltann frá sér. Hann lék
með heimaliðinu, San Vendemiano,
og byrjaði sem markvörður þannig
að hann fengi að vera sem mest með
boltann. Bróðir hans sem lék smá-
tíma sem atvinnumaður benti for-
eldrum sínum á að Del Piero væri
mun betri sem framherji og var hann
látinn skipta. Ákvörðun sem enginn
sá eftir.
Árið 1988 fór Del Piero að heim-
an aðeins þrettán ára gamall og gekk
í raðir B-deildarliðsins Padova. Þar
fékk hann tækifæri þremur árum
seinna en tímabilið 1992-1993 lék
hann tíu leiki. Þar skoraði hann sitt
fyrsta mark sem atvinnumaður og í
þessum fáu leikjum gerði hann nóg
til að heilla eitt stærsta félag á Ítalíu.
Juventus. Hann gekk í raðir „gömlu
frúarinnar“ 1993 og hefur verið uppá-
hald allra nánast allar götur síðan.
Titlasöfnun
Þrátt fyrir aðeins fjórtán leiki á sínu
fyrsta ári sló Del Piero strax í gegn.
Hann skoraði sitt fyrsta mark í sínum
öðrum leik en bauð svo upp á þrennu
í þriðja leik sínum fyrir Juventus. Árið
eftir var hann svo orðinn lykilmað-
ur í liðinu og vann sinn fyrsta meist-
aratitil. Síðan þá hefur hann unnið til
fjögurra meistaratitla til viðbótar með
Juventus, sjö samanlagt en tveir voru
teknir af liðinu fyrir dómaraskandal-
inn.
Þrátt fyrir að vera næstum reglu-
legur gestur í úrslitum meistaradeild-
arinnar á 10. áratugnum tókst Ju-
ventus aðeins einu sinni að hampa
titlinum. Þar var Del Piero í byrjunar-
liðinu þegar Juventus lagði Ajax, 1-0, í
háspennuleik.
Marka- og leikjahæstur
Alls hefur Del Piero leikið 572 leiki
fyrir Juventus. Hann er sá eini í sögu
félagsins sem hefur náð 500 leikjum
en það gerðist þegar liðið lék í seríu
B fyrir tveimur árum. Sérstök treyja
með nafni hans og númerinu 500
hengur uppi í höfuðstöðvum félags-
ins. Þrátt fyrir að leika í stöðunni fyrir
aftan framherjann hefur aldrei verið
skortur á mörkum frá Del Piero.
Hann hefur skorað 248 mörk í
572 leikjum fyrir Juventus þótt hans
helsta vopn sé að búa til fyrir liðsfé-
lagana. Þeir hafa heldur ekki verið
af verri endanum. Markamaskínur á
borð með Fabrizio Ravenelli, Gianlu-
ca Vialli, Filippo Inzaghi, Davor Suker
og marga fleiri. Það má segja að þessi
mörk hafi komið jafnt og þétt hjá Del
Piero því á fimmtán ára ferli sínum
hefur hann aðeins einu sinni orðið
markahæsti leikmaður seríu A. Og
það er ekki styttra síðan en á síðasta
tímabili. Með marki gegn Sampdor-
ia í lokaleik síðasta tímabilsins kom
hann sér upp í tuttugu mörk og vann
með því sinn fyrsta gullskó.
Heimsmeistari
Með mark í nærri öðrum hverjum
leik fyrir Juventus er árangurinn ekki
mikið slakari með ítalska landsliðinu.
Með því hefur hann skorað 27 mörk í
91 leik síðan hann fékk fyrst tækifærið
í vináttuleik gegn Rúmeníu 1995. Del
Piero lék á sínu fyrsta stórmóti í Evr-
ópukeppninni 1996. Tveimur árum
síðar komst hann ekki í liðið fyrir
heimsmeistarakeppnina í Frakklandi
1998. Þá var hann að jafna sig af erfið-
um meiðslum og maðurinn sem hon-
um hefur alltaf verið líkt við, Roberto
Baggio, tók sætið.
Ítalía var ævintýralega nálægt því
að verða Evrópumeistari árið 2000
áður en Mónakó-félagarnir, Thierry
Henry og David Trezeguet, urðu hetj-
ur Frakka með marki á lokamínútu og
gullmarki í framlengingu. Í þeim leik
fór Del Piero illa með tvö góð færi og
sagði hann í bók sem hann gaf út að
hann hefði ekki sofið í margar vikur
eftir leikinn.
Allt skánaði þó 2006 þegar ít-
alska landsliðið gleymdi skandaln-
um heima fyrir og varð heimsmeist-
ari eftir sögulegan úrslitaleik gegn
Frökkum. Del Piero skoraði úr sinni
vítaspyrnu í vítaspyrnukeppninni og
skoraði einnig í undanúrslitaleiknum
gegn Þýskalandi.
Herramaðurinn, lærlingurinn
og undrið
Fyrir utan óumdeilanlega knatt-
spyrnuhæfileika er Alessandro Del
Piero mikill herramaður, bæði innan
sem utan vallar. Svo mikill herramað-
ur að hann hefur hlotið verðlaun fyrir
það í þrígang frá ítalska knattspyrnu-
sambandinu. Hann hefur einnig unn-
ið til „Gullfótarins“, verðlaun sem veitt
eru fyrir persónuleika innan og utan
vallar.
Hann var alltaf miðaður við Ro-
berto Baggio og kallaði fyrrverandi
eigandi Juventus, Gianni Agnelli, Del
Piero alltaf „Pinturicchio“ sem var
nafn lærlings hins merka málara Per-
ugino. Stuðningsmenn Juventus hafa
einfaldari skýringu á hlutunum. Fyr-
ir þeim er þessi herramaður, fyrirliði
og andlit Juventus aðeins eitt. Hann
er sanna undrið og undir því stendur
hann enn í dag.
TÓMas ÞÓr ÞÓrÐarsOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Herramaðurinn
og undrið
sanna undrið del Piero er
guð í augum stuðnings-
manna Juventus.
Þetta er maðurinn del
Piero nýtur ómældrar
viðringar allra leikmanna.
alltaf kátur del Piero er jafnan
mjög ánægður inni á vellinum og
gerir lítið af því að tuða.
Mynd afP