Fréttablaðið - 21.01.2016, Blaðsíða 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ásdís Erlingsdóttir
sundkennari,
frá Bjargi v/Sundlaugaveg,
lést á heimili sínu sunnudaginn
17. janúar. Jarðarförin fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 27. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Úlfar H. Nathanaelsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sverrir Jónatansson
húsasmíðameistari,
Grænumýri 6, Seltjarnarnesi,
lést mánudaginn 11. janúar
á hjúkrunarheimilinu Grund.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 22. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
Sverris er bent á Blindrafélagið.
Fyrir hönd ástvina,
Sigrún Árnadóttir
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð
við andlát og útför
Antoníu Sigríðar Jónsdóttur
frá Steinaborg, Berufjarðarströnd.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í
Norðurbrún 1, Reykjavík, fyrir umönnun
hennar síðustu árin.
Antonía Sveinsdóttir
Anna María Sveinsdóttir
Helga Haraldsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur sonur minn, bróðir
og mágur, frændi og vinur,
Jens Daníel Holm
Skipagötu 6, Suðureyri,
er lést á heimili sínu þann 14. janúar,
verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju
föstudaginn 22. janúar kl. 13.00.
Mortan Chr. Holm Judith Christiansen
Jóhannes Már Gunnarsson Óskar Þór Óskarsson
Jónína Daníella Holm Vignir Bergmann
Örn Sævar Holm Bryndís Knútsdóttir
Unnur Agnes Holm Vikar Freyr Oddsson
og systkinabörn.
Okkar ástkæra
Pálína Oddsdóttir
fv. skrifstofustjóri Sjónvarpsins,
Unnarbraut 28a, Seltjarnarnesi,
lést 13. janúar. Útför hennar fer fram
frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn
25. janúar, og hefst athöfnin kl. 15.00.
Oddrún Kristjánsdóttir, Leifur Magnússon
Kristján Leifsson, Fanney Ída Júlíusdóttir
Magnús Leifsson, Melkorka S. Magnúsdóttir
og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Halldór Sigmundsson
andaðist föstudaginn 15. janúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 28. janúar kl. 13.00.
Ingibjörg Loftsdóttir
Ásgerður Halldórsdóttir Kristján Guðlaugsson
Sigmundur Halldórsson Eileen Chua Yao
Anna Guðrún Halldórsdóttir Gunnar Biering
og barnabörn.
Elskuleg systir okkar,
Margrét Anna Kaaber
fv. bankastarfsmaður,
sem lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 14. janúar síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 22. janúar kl. 13.00.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11E og
líknardeildar Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýju.
Már V. Jónsson
Thomas Kjartan Kaaber
Sverrir Örn Kaaber
Björn Gylfi Kaaber
og fjölskyldur.
Bandaríski tennisleikarinn John McEnroe
var dæmdur úr leik á Ástralíumótinu í
tennis í Melbourne á þessum degi árið
1990. Var það í fyrsta sinn í 27 ár sem
slíkt hafði gerst á stórmóti í tennis.
McEnroe var atkvæðamikill tennis-
leikari í upphafi níunda áratugarins og
var þekktur fyrir mikið skap. Hann sigraði
þrisvar á Wimbledon og fimm sinnum á
Opna bandaríska mótinu á árunum 1979
til 1984.
Árið 1990 hafði hinn þrítugi McEnroe
ekki sigrað á stórmóti síðan árið 1984.
Í leik við hinn sænska Mikael Pernfors
var honum gefin viðvörun fyrir að horfa
illilega á einn línuvörðinn. Aðra viðvörun
fékk hann þegar hann kastaði spaðanum
harkalega í jörðina þegar leikurinn gekk
ekki eftir hans höfði. Síðar í leiknum
grýtti hann spaðanum í bræði sinni og
spaðinn brotnaði. Dómarinn dæmdi
hann enn brotlegan og þegar tennis-
leikarinn brást við með fúkyrðum var
McEnroe dæmdur úr leik.
Þ etta g e r ð i st : 2 1 . ja n úa r 1 9 9 0
John McEnroe dæmdur úr leik
„Mér hefur fundist frábært að vita af
Brynju þarna úti, jafnöldru með svo
gott sem sömu lífsklukkuna. Móðir
hennar hefur verið í sömu sporum og
mín fyrir fjörutíu árum og við tvær svo
aftur í sömu sporum fyrir rúmum sex
árum þegar við báðar eignumst hvor
um sig miðjubörnin okkar. svo búum
við í göngufæri frá hvor annarri, sem
rammar inn allar þessar tilviljanir og
góða sögu,“ segir gunnhildur arna
gunnarsdóttir glöð í bragði. gunn-
hildur fagnar fertugsafmæli í dag
og það gerir nágrannakona hennar,
Brynja Lóa sigurðardóttir, einnig.
Þær gunnhildur og Brynja hittust
fyrst í gæsun sameiginlegrar vinkonu
og barst þá sameiginlegur afmælis-
dagur þeirra til tals, auk þess sem þær
eignuðust barn á sama degi og búa
steinsnar frá hvor annarri.
„Mjög mikið,“ segir Brynja Lóa
hlæjandi þegar hún er spurð að því
hvort hún sé mikið afmælisbarn. „Það
skemmtilegasta sem ég geri er að halda
upp á afmælið.“ Í dag ætlar hún að
hafa það notalegt með fjölskyldunni
og stefnir svo á að halda en frekar upp
á tímamótin um helgina með góðum
gestum.
gunnhildur er einnig spennt fyrir
áfanganum og segist í raun alltaf verða
það fyrir stórafmælum. „Ég hélt upp á
tuttugu og fimm ára afmælið, þrítugs-
afmælið og ætla núna að hafa örlitla
fjölskylduveislu. Þegar ég var þrjátíu
og fimm ára var ég komin á steypirinn
þannig að þá náði ég nú ekki að sletta
úr klaufunum,“ segir hún og skellir upp
úr.
Þegar gunnhildur er spurð um eftir-
minnilegt afmæli er hún fljót til svars:
„tuttugu og fimm ára afmælið var ansi
gott. Við héldum upp á það saman ég
og vinkona mín sem höfum fylgst að
í gegnum lífið. Við fórum með alla
vini okkar óvænt á æskustöðvarnar,“
segir hún og lýsir því þegar þær vin-
konur smöluðu vinahópnum saman í
reykjavík og skelltu honum í langferð.
„Við settum þau upp í rútu í reykjavík
og brunuðum með hópinn til Hólma-
víkur. Fólk var orðið ansi ringlað þegar
rútan stoppaði.“ gydaloa@frettabladid.is
Fagna fertugsafmæli í dag
Í dag fagna þær Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir og Brynja Lóa Sigurðardóttir
fertugsafmæli. Þær eru þó alls óskyldar en eiga fleira sameiginlegt en afmælisdaginn.
Þær Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir og Brynja Lóa Sigurðardóttir eiga báðar stórafmæli í dag. FréttABLAðið/SteFán
Mér hefur fundist
frábært að vita af
Brynju þarna úti, jafnöldru með
svo gott sem sömu lífsklukkuna.
Gunnhildur Arna Gunnardóttir
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r28 T í M a M ó T ∙ F r É T T a B L a ð I ð
tíMaMót
2
0
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
9
-6
C
4
0
1
8
3
9
-6
B
0
4
1
8
3
9
-6
9
C
8
1
8
3
9
-6
8
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K