Fréttablaðið - 21.01.2016, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 21.01.2016, Blaðsíða 50
Frumsýningar KviKmyndir Babysitting 2/Út og suður HHHHH Leikstjórar: Philippe Lacheau, Nicolas Benamou Aðalleikarar: Philippe Lacheau, Alice David, Vincent Desagnat Út og suður, opnunar-mynd Franskrar kvik-myndahátíðar í ár, er ærslafull gamanmynd sem segir frá Franck nokkrum sem fer í skemmtiferð til Brasilíu með kærustunni og nokkr- um vinum. Franck ætlar sér að biðja um hönd kærustunnar, en ákveðnir atburðir fylla hann efasemdum og hann fer í frumskógarævintýri með félögunum til að drekkja sorgum sínum. En þeir enda á að villast í frumskóginum og hefst þá mikið ævintýri. Á frummálinu er Út og suður titluð Babysitting 2 þar sem hún er framhald af myndinni Babysitt- ing. Það er eilítið furðulegt að þessi mynd sé sýnd hér í bíó þótt fyrsta myndin hafi aldrei verið sýnd hér- lendis en þegar horft er á hana kemur það lítið að sök, myndin stendur að mestu á eigin fótum. En þótt það sé ekki ruglingslegt að hafa ekki séð fyrstu myndina gengur Út og suður ekki upp að nokkru öðru leyti. Fyrir það fyrsta er enginn að passa börn í henni en helsta vandamál hennar er þó að hún er ekki vitund fyndin. Þótt hún sé frá árinu 2015 virð- ist húmorinn í henni hafa verið fluttur með tímavél frá 1970 þar sem hann gengur ítrekað út á það hvað það er ógeðslega fyndið að hafa samkynhneigðar kenndir og svo er hann stundum hreinlega rasískur. Hér eru brandarar um karlmenn í g-strengjum og karl- menn sem eru bitnir í klofið af eitruðum köngulóm og ristir það ekki dýpra en það. Myndin er eins og einn stór „gay-panic“ brandari. Ekki hjálpar að hún viðheldur líka afar íhaldssömum hugmynd- um um kynin sem koma líka frá 1970 enda gengur söguþráður hennar að stóru leyti út á það að hetjan vill sanna fyrir ástinni sinni að hann geti verið sterkur karl- maður sem er fær um að vernda konuna sína. Karlarnir í þessari mynd eru eins stereótýpískir og hægt er, annaðhvort uppfullir af hormónum eða klaufskir aular, og konurnar eru litlu skárri og lítið meira en augnayndi sem þurfa karlmenn til að láta bjarga sér. Út og suður má líka vel kalla ras- íska. Myndin gerist í Brasilíu en er nánast öll á frönsku og innfæddir koma hér aðallega fram sem eitt- hvað skraut í bakgrunninum og þeir Brasilíubúar sem fá stærsta hlutverkið hérna eru „villimenn“ úr frumskóginum með bein í gegnum nefið. Til viðbótar við allt þetta þá er Út og suður frekar illa gerð. Klipp- ingin í myndinni er oft afkáraleg, myndatakan frekar flöt (miðað við að myndin gerist í hinu litríka landi Brasilíu) og tónlistin alveg skelfileg, allar „hjartnæmar“ senur í myndinni eru gerðar enn verri með tónlist sem hamrar rosalega mikið á því hvað áhorfandanum eigi að finnast. Það sem þessi mynd sannar er að Frakkar eru ekkert síðri í því að gera lélegar formúlumyndir en Bandaríkjamenn. Atli Sigurjónsson niðurstaða: Ófyndin, hómófóbísk og rasísk mynd sem virðist stöðnuð í húmor og siðferði frá 1970 eða svo, en eflaust mjög skemmtileg fyrir fólk sem elskar gamaldags hommagrín. Frönsk tímaskekkja Franska kvikmyndin Babysitting 2 er opnunarmynd Franskrar kvikmyndarhátíðar í ár. Dirty GranDpa Gamanmynd Aðalhlutverk: Robert De Niro, Zac Efron og Zoey Deutch. Frumsýnd: 29. janúar IMDb 7,4/10 the revenant Drama Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Tom Hardy og Will Poulter. Frumsýnd: 22. janúar IMDb 8,3/10 – Rotten Tomatoes 82% CreeD Drama Aðalhlutverk: Michael B. Jordan, Sylvester Stallone, Graham McTavish og Phylicia Rashad. Frumsýnd: 22. janúar IMDb 8,0/10 – Rotten Tomatoes 94% 2 1 . j a n Ú a r 2 0 1 6 F i m m t u d a G u r34 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð bíó 2 0 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 3 9 -3 F D 0 1 8 3 9 -3 E 9 4 1 8 3 9 -3 D 5 8 1 8 3 9 -3 C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.