Fréttablaðið - 21.01.2016, Blaðsíða 34
Hugbúnaðarfyrirtækið dk hugbúnaður er
leiðandi fyrirtæki á sviði viðskiptahugbún-
aðar hér á landi fyrir smærri og meðalstór
fyrirtæki.
Starfsemin hefur farið ört vaxandi und-
anfarin ár og í dag vinna 46 starfsmenn hjá
fyrirtækinu, þar af sjö sem starfa í þjón-
ustu við afgreiðslukerfi. Sú deild hefur
stækkað töluvert á síðustu árum meðfram
vaxandi hlut dk hugbúnaðar á íslenska af-
greiðslukerfamarkaðnum að sögn Haf-
steins Róbertssonar, kerfisfræðings og
sérfræðings í afgreiðslukerfum hjá fyrir-
tækinu.
„Nú er svo komið að afgreiðslukerfi eru
sett upp á alls kyns vélbúnaði hjá fyrir-
tækjum og verslunum, m.a. á iPhone-far-
símum og iPad-spjaldtölvum, þannig að
starfsumhverfið í afgreiðslukerfadeild-
inni er í stöðugri þróun. Undanfarið höfum
við séð mikla aukningu í notkun á spjald-
tölvum og einnig hefur komið á markað
mikið af jaðarbúnaði sem hægt er að nota
með þessum tækjum, til dæmis prentar-
ar og posar. Þessi nýlegu tæki ásamt af-
greiðslukerfi okkar bjóða því upp á mikil
þægindi og aukin tækifæri fyrir viðskipta-
vini okkar.“
dk hugbúnaður býður meðal annars upp
á bókhalds- og afgreiðslukerfi í áskrift.
„Við bjóðum bæði upp á afgreiðslukerfi í
hefðbundnar afgreiðslutölvur en líka fyrir
iPhone-síma eða iPad-spjaldtölvur.“
Vildarkerfi fyrir verslanir
Mikil þróun hefur átt sér stað á dk POS af-
greiðslukerfinu á síðustu tíu árum að sögn
Hafsteins. „Á þessu ári komu til dæmis
nýjungar á borð við nýtt og öflugt vildar-
kerfi fyrir verslanir auk þess sem sjálft
afgreiðslukerfið fékk nýtt viðmót sem
gerir allt söluferlið fljótlegra og skilvirk-
ara. Einnig hafa komið tengingar við alla
nýja greiðslumiðla og posa sem komið hafa
fram á sviðsljósið á árinu, svo sem Netgíró,
Pyngjuna og Dalpay-posa.“
dk iPOS afgreiðslukerfið
Hafsteinn segir markaðinn hafa kall-
að eftir snjalltækjalausnum og hafi
dk hugbúnaður svarað því kalli. „dk
POS pantanaappið fyrir iPad hefur t.d.
notið mikilla vinsælda hjá veitinga-
stöðum síðan það kom út fyrir þrem-
ur árum. Nú hefur dk tekið þá lausn
lengra og gert að fullgildu afgreiðslu-
kerfi sem við köllum afgreiðslukerfi
dk iPOS. Með því er hægt að vera með
afgreiðslukassann bókstaflega í vas-
anum því hægt er að vera með kerf-
ið á bæði iPhone-símum eða iPad-
spjaldtölvum. Við þessi tæki er síðan
hægt að tengja jaðarbúnað á borð við
þráðlausa prentara og greiðsluposa frá
Dalpay.“
Öll sala í dk iPOS afgreiðslukerfinu og
samskipti við dk-bókhaldskerfið fer fram
í gegnum skýjaþjónustu dk (vistun). Um-
sýsla birgða er leikur einn og salan bókast
sjálfkrafa í dk fjárhagsbókhaldi. „Einfald-
ara verður það ekki fyrir viðskiptavini
okkar,“ segir Hafsteinn að lokum.
Nánari upplýsingar
má finna á www.dk.is.
Leiðandi í viðskiptahugbúnaði
Þjónusta við afgreiðslukerfi er sífellt stærri hluti af starfsemi dk hugbúnaðar. Nú er hægt að setja afgreiðslukerfi í farsíma og spjaldtölvur
sem býður upp á mikil þægindi og tækifæri fyrir viðskiptavini. Þá býður dk hugbúnaður upp á bókhalds- og afgreiðslukerfi í áskrift.
„Við bjóðum bæði upp á afgreiðslukerfi í hefðbundnar afgreiðslutölvur en líka fyrir iPhone-síma eða
iPad-spjaldtölvur,“ segir Hafsteinn Róbertsson, kerfisfræðingur og sérfræðingur í afgreiðslukerfum
fyrirtækisins. MYND/STEFÁN
dk hugbúnaður
Bæjarhálsi 1
110 Reykjavík
S: 510-5800
www.dk.is
debet | kredit
Bókhaldskerfi
dk iPOS er hagkvæm afgreiðslulausn
sem eykur hraða og skilvirkni í sölu.
dk iPOS afgreiðslukerfið er tengt
bakvinnslukerfi og dk bókhaldskerfi.
dk | Snjalltækjalausnir
Snjalltækjalausn
dk iPOS í afgreiðslu
dk viðskiptahugbúnaður er
að öllu leiti þróaður á Íslandi
með íslenskar aðstæður í
huga. Sérfræðingar okkar í
þróun eru sífellt að bæta
kerfið í takt við nýja tíma og
nýjungar í tækni s.s. aðlögun
að spjaldtölvum og snjall-
símum.
dk POS afgreiðslukerfið er
eitt öflugasta afgreiðslukerfið
á markaðnum í dag.
dk iPOS | í áskrift
dk hugbúnaður ehf | Bæjarhálsi 1 | 110 Reykjavík | Hafnarstræti 53 | 600 Akureyri | www.dk.is | 510 5800
kaSSakERFi og SjóðSVéLaR kynningarblað
21. janúar 20164
2
0
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
9
-4
9
B
0
1
8
3
9
-4
8
7
4
1
8
3
9
-4
7
3
8
1
8
3
9
-4
5
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K