Fréttablaðið - 05.12.2014, Qupperneq 48
10 • LÍFIÐ 5. DESEMBER 2014
H
ún er uppalin í Eyja-
fjarðarsveit, gekk í
sveitaskóla alla sína
grunnskólagöngu og
er miðjubarn í fimm
systkina hópi sem öll eru fædd á
einungis átta árum. Hún æfði á
fiðlu, píanó, var yfirmáta forvitin
og fyrirferðarmikið barn að eigin
sögn. „Við erum fimm systkin-
in, en þar stend ég í miðjunni, það
eru einungis átta ár á milli elsta
og yngsta systkinis míns svo það
var þröng á þingi og mikið fjör í
kring um mig á uppeldisárunum.
Ég hef svolítið haldið í fjörið og ég
passa mig alltaf að vera ekki verk-
efnalaus. Hvort sem það kemur frá
uppeldinu eða einfaldlega frá pers-
ónuleika mínum veit ég ekki, gæti
verið hvort tveggja,“ segir hár-
greiðslukonan, vöruhönnuðurinn
og metsölubókahöfundurinn Theo-
dóra Mjöll Skúladóttir Jack.
Sterkari eftir ofbeldið
Þegar Theodóra var unglingur
lenti hún í aðstæðum sem breyttu
sýn hennar á lífið um ókomna tíð.
„Á unglingsárum lenti ég í kyn-
ferðislegu ofbeldi sem brengl-
aði algerlega sýn mína á lífið og
ég átti mjög erfitt á þessum tíma.“
Með þungan bagga á bakinu leit-
aði okkar kona sér hjálpar hjá góðu
fólki. „Um tvítugt fór ég til Stíga-
móta og á ég þeim svo mikið að
þakka. Þær hjálpuðu mér að ná
áttum og koma lífi mínu aftur á
rétta braut. Þær kenndu mér að
skoða sjálfa mig og að lifa ekki
sem fórnarlamb heldur sem bar-
áttukona sem ég hef reynt að gera
síðan. Það er mjög skrítið að segja
það, en vegna ofbeldisins hef ég
orðið sterkari manneskja og kann
betur á sjálfa mig. Ég hef ávallt
neitað að lifa sem fórnarlamb, en
ég held að það sé ein hættuleg-
asta braut sem hægt er að feta í líf-
inu, fórnarlambsbrautin. Ég tek
allt sem ég hef lent í, komið mér
í, farið og gert sem mikilvægan
part í því að þroskast sem persóna
og tek allt það neikvæða í kring-
um mig og reyni að horfa á það já-
kvætt. Stundum er það erfitt, en á
endanum tekst það þó,“ segir þessi
hugrakka og duglega kona sem
lætur fátt koma sér úr jafnvægi.
„Ég tek allt á hörkunni, þrjóskunni
og slatta af kæruleysi. Ég hef þurft
að berjast fyrir öllu mínu alla
tíð en ég flutti að heiman aðeins
fimmtán ára gömul til Reykjavíkur
og hef þurft að sjá mikið fyrir mér
sjálf síðan.“
Tilviljun réði för
Theodóra er alin upp í akadem-
ísku umhverfi og fyrir tilstuðl-
an foreldra sinna, sem eru tann-
læknir og hjúkrunarfræðingur, sá
hún fyrir sér að verða dýralækn-
ir eða sjúkraþjálfi. Það átti þó ekki
eftir að verða hennar braut og var
það hálfgerð tilviljun að hún fór
þann veg sem hún fetar í dag. „Það
vildi svo skringilega til að sumar-
ið þegar ég var 17 ára vantaði mig
vinnu og ég keyrði á gömlu Toyota-
druslunni minni niður Laugaveg-
inn til að athuga hvort það væri
ekki einhver skemmtilegur staður
sem ég gæti sótt um vinnu á. Þegar
ég beygði inn á Laugaveginn sá ég
hárgreiðslustofuna Toni&Guy og
hugsaði með mér að það væri flott
að byrja bara efst og fara svo niður
með Laugaveginum til að auka lík-
urnar á vinnu. Ég lagði fyrir utan
og labbaði inn, sótti um nemastarf
og var beðin um að mæta daginn
eftir í prufu sem ég og gerði. Þann-
ig var það. Ég í raun fann það ekki
fyrr en að ári liðnu hvað þetta lá
vel fyrir mér en ég var mjög óhefl-
uð og að vera nemi í svo ströngu
umhverfi, eins og Toni&Guy var,
var mikil áskorun,“ segir hún.
Tveimur árum síðar skráði Theo-
dóra sig í Iðnskólann og það var
augljóst að hún var komin á rétta
braut. „Eftir að hafa unnið þarna í
tvö ár gekk mér svo vel að ég fann
þá fyrir alvöru hvað þetta átti vel
við mig. Ég tók þátt í öllum sam-
keppnum sem voru í boði og vann
oftar en ekki gullpening fyrir.“
Listsköpunin liggur víða
Theodóra er með eindæmum hæfi-
leikarík og hefur mikla þörf fyrir
að skapa og búa til. Til þess að upp-
fylla þessa þörf skráði hún sig á
hönnunarbraut Iðnskólans í Hafn-
arfirði þar sem hún tók nokkra
hönnunarkúrsa. „Ég hef gríðar-
lega mikla þörf fyrir að skapa og
hef mikla útrásarþörf. Ef mér dett-
ur eitthvað sniðugt í hug þá titra
ég öll og verð að koma því í verk
á stundinni eða niður á blað, ann-
ars get ég ekki sofið. Ég hef alltaf
litið á hárið sem efni. Rétt eins og
við, stál, garn og fleira og fannst
ég mjög heft að fá að vinna bara
með eitt efni. Það erfiðasta við
þetta efni, hárið, er að það er fast
við persónu með skoðanir, en ég
vil helst fá að ráða hvað ég geri og
prufa mig áfram án þess að þurfa
að díla sérstaklega við persón-
una. Þrátt fyrir það, þá þykir mér
mjög vænt um kúnnana mína og
fæ mjög mikið út úr því að vinna
á Rauðhettu & úlfinum einu sinni
í viku sem ég geri enn.“ En Theo-
dóra lét ekki staðar numið eftir að
hafa lokið kúrsum í Iðnskólanum
heldur sótti hún um nám í vöru-
hönnun í Listaháskóla Íslands.
„Ég tók allt draslið sem ég hafði
búið til og setti í möppu og skil enn
þann dag í dag ekki hvernig þeim
datt í hug að hleypa mér inn í skól-
ann. Það eru einungis níu manns
sem komast inn ár hvert svo þeir
hafa greinilega séð eitthvað í mér,“
segir hún og hlær. „Í Listaháskól-
anum lærði ég að hugsa upp á nýtt,
ég lærði gagnrýna hugsun sem
mér þykir svo nauðsynleg og ég
lærði að standa með sjálfri mér og
því sem ég geri.“
Disney-ævintýrið
Á öðru ári í Listaháskólanum
varð Theodóra ólétt að sínu fyrsta
barni, Ólíver Jack, með eiginmanni
sínum, Emil Örvari Jónssyni lög-
fræðinema. Þar sem okkar kona
býr yfir ótrúlegri framtakssemi og
orku þá sat hún ekki auðum hönd-
um í barneignarleyfinu heldur
gaf hún út sína fyrstu bók, Hárið.
Sú bók varð metsölubók og seld-
ist í tólf þúsund eintökum sama
ár. „Hugmyndin að Hárinu, minni
fyrstu hárbók, var í raun ekkert
ný af nálinni. Hárbækur og fléttu-
bækur hafa verið gerðar og gefnar
út í marga áratugi, en eftir að hafa
„Ég var einnig að frétta
í gær að hún er bók
nr. 1 á lista Amazon
yfir „Amazon Hot
New Releases“ sem er
fáránlega magnað.“
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins
MEÐ
ÞÚSUND OG
EINN HLUT Í
OFNINUM
THEODÓRA MJÖLL er sveitastelpa sem
flutti að heiman til höfuðborgarinnar aðeins
15 ára gömul. Hún slysaðist inn í hárgreiðslu-
heiminn og hefur nú gefið út bækur um hár sem
selst hafa í mörg þúsund eintökum bæði hér
á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Theodóra Mjöll
Skúladóttir Jack
planar lífið út frá
tilfinningum.
MYND/SAGA SIG.
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.