Fréttablaðið - 05.12.2014, Page 50
12 • LÍFIÐ 5. DESEMBER 2014
E
yþór Rúnarsson steig sín
fyrstu skref í sjónvarpi
sem einn af þremur dóm-
urum í Master chef Ís-
lands fyrir tveimur árum.
Hann snýr nú aftur á skjáinn og
nú með sinn eigin matreiðslu-
þátt sem að hann kallar Eldhús-
ið hans Eyþórs. Fyrsti þátturinn
fór í loftið í gærkvöldi og er lögð
áhersla á hátíðarmatinn núna
í desember. „Í þessum þremur
fyrstu þáttum elda ég jólamat
eins og ég vil helst hafa hann,
allt frá forréttum til eftirrétta.
Ég fer einnig í eina góða heim-
sókn í hverjum þætti þar sem ég
kynni mér áhugaverða hluti sem
tengjast mat og drykk,“ segir
Eyþór. Sjálfur er Eyþór alinn
upp í Suður-Þingeyjarsýslu þar
sem hefðin var að borða rjúpu í
hátíðarmatinn á heimilinu. „Ég
er alinn upp við að borða rjúpu
en konan mín hamborgarhrygg.
Við vorum búin að þrasa um
þetta í nokkur ár hvað við ættum
að borða en svo tók ég af skar-
ið fyrir einhver jólin og ákvað
að prufa að elda fyllta önd. Það
er nú gaman að segja frá því að
við höfum ekki haft annan jóla-
mat síðan og allir sáttir. Sonur
okkar, sem er fjögurra ára, er
alsæll með þennan jólamat en
nú reynir á hvað dóttirin segir
en þetta eru fyrstu jólin sem
hún fær jólamat,“ segir hann og
bætir við að hann komi til með
að elda öndina í næstu viku.
Öllu vanur
Eyþór er öllu vanur í eldhúsinu
og var hluti af kokkalandsliði
Íslands í sjö ár og fyrirliði þess
síðustu þrjú árin sín í liðinu.
„Ég fór í fjórar stórar keppn-
ir með liðinu á þessum tíma.
Það var gríðarlega skemmtileg-
ur og krefjandi tími. Mig lang-
ar að nota þetta tækifæri og
óska landsliðinu til hamingju
með frábæran árangur á nýaf-
stöðnu heimsmeistaramóti en
það náði 5. sæti, sem er besti
árangur Íslands hingað til,“
segir Eyþór, stoltur af kolleg-
um sínum.
Nýlega tók okkar maður við
stöðu yfirkokks á heilsuveit-
ingastöðum Gló og njóta við-
skiptavinir veitingastaðanna
góðs af hæfileikum Eyþórs.
„Það var kærkomin tilbreyting
að byrja að vinna á Gló og mat-
reiðslan öðru vísi en ég hafði
áður unnið við. Í dag eru veit-
ingastaðirnir fjórir en verða
fimm á næstu vikum.“ Það er
því nóg að gera hjá Eyþóri og
spennandi tímar fram undan
bæði í sjónvarpinu sem og á
Gló.
LAXATARTAR MEÐ
ESTRAGON-DRESSINGU
Á MELBA-BRAUÐI
6 msk. ólífuolía
4 greinar estragon
1 msk. rósapipar
200 g lax
1 stk. sellerístöngull (fínt
skorinn)
½ stk. skalottlaukur (fínt
skorinn)
1 stk. avókadó
2 msk. fínt rifin piparrót
½ appelsína, börkur
Blandið ólífuolíu og estragoni
saman í morteli og maukið vel.
Takið um 3 msk. af olíunni frá
og geymið til að setja á melba-
brauðið. Bætið rósapiparn-
um út í olíuna og brjótið hann
niður. Skerið laxinn niður í litla
bita og setjið hann í skál með
skal ottlauknum og selleríinu.
Skerið avókadóið langsum og
takið steininn úr því og skaf-
ið kjötið innan úr með skeið.
Skerið avókadóið í jafn stóra
bita og laxinn. Bætið piparrót-
inni og appelsínuberkinum út í
og smakkið til með salti.
ESTRAGONDRESSING
2 msk. majónes
½ sítróna, safi
1 msk. piparrót
1 msk. fínt skorið estragon
Sjávarsalt
Blandið öllu hráefninu saman og
smakkið til með salti.
ESTRAGONMELBA-BRAUÐ
3 msk. estragonolía
1 stk. langskorið brauð
Penslið brauðið með olíunni og
kryddið með salti. Setjið inn í 180
gráða heitan ofninn í 10 mín.
EPLA- OG APRÍKÓSUBAKA
MEÐ VANILLU-
MASCARPONE-KREMI
Fylling í böku
2 stk. epli, græn
250 g brómber
1½ msk. maizenamjöl
50 g sykur
Skrælið og skerið eplin í teninga
og setjið í skál með brómberjun-
um, hellið sykrinum og maizena-
mjölinu yfir eplin og brómberin
og blandið öllu vel saman.
Mascarpone-krem
250 g mascarpone-ostur
100 g hrásykur
1 stk. vanillustöng
1 stk. börkur af sítrónu
Þeytið allt saman þar til krem-
ið er orðið mjúkt og setjið í
sprautupoka.
Bökudeig
200 g smjör
200 g hrásykur
225 g hveiti (sigtað)
1 tsk. lyftiduft (sigtað)
Þeytið smjör og hrásykur saman
þar til það er orðið ljóst og létt.
Bætið þurrefnunum saman við
smjörið og sykurinn og bland-
ið varlega saman. Hitið ofninn
upp í 180 gráður. Setjið eplin og
brómberin saman í eldfast mót.
Sprautið mascarpone-kreminu yfir
eplin og brómberin og endið svo
á að hjúpa allt saman með böku-
deiginu. Bakið í 40 mín. eða þar
til skorpan er orðin gullinbrún.
MEISTARAKOKKUR Á SKJÁNUM
Eyþór Rúnarsson snýr aftur á Stöð 2 og kennir áhorfendum réttu tökin í hátíðareldhúsinu
Laxatartar
Jólagjöfin hennar
Ullarkápa
Stærð 10-20
Verð aðeins
24.900 kr.
Kjóll
Verð aðeins
9.900 kr.
Peysa
Verð aðeins
7.990 kr.