Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 72
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 48
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR
ALKÓHÓLISMINN
TÓK HÁAN TOLL
Ari Matthíasson, nýráðinn þjóðleikhússtjóri, segist vera venjulegur
fimmtugur kall í Vesturbænum en hann á sér skrautlega sögu sem mark-
ast af alkóhólisma og missi allt frá barnæsku og þangað til fyrir tíu árum.
Pennavinur
fanga á dauðadeild
Gunnhildur Halla Carr skrifast á við unga
fanga sem hafa verið dæmdir til dauða í
Bandaríkjunum. Hún byrjaði sextán ára að
skrifa og var það henni mikið áfall þegar
fyrsti pennavinurinn var tekinn af lífi.
Var líka
minn besti vinur
Fyrir ári lést útvarpskonan
Valdís Gunnarsdóttir eftir
skammvinn veikindi. Hrafn
Valdísarson segir sögu
móður sinnar og hvernig
hann tókst á við móðurmiss-
inn 19 ára gamall.
Erfitt að fá
vinnu við hæfi
Innflytjendum reynist
oft erfitt að fá nám
sitt metið eða fá störf
sem hæfa menntun.
Nokkrir sem hafa
staðið í þeim sporum
segja sögu sína.
HVAÐ? HVENÆR?
HVAR?
5. DESEMBER 2014
Tónleikar
12.00 Í dag verða fluttir ljóðadúettar
eftir R. Schumann og F. Mendelssohn
á hádegistónleikum í Laugarneskirkju.
Einnig fá þýsk jólalög að hljóma. Flytj-
endur eru Lilja Eggertsdóttir, sópran,
Kristín Sigurðardóttir, mezzosópran og
Guðríður Sigurðardóttir, píanóleikari.
1.500 krónur inn.
12.00 Hádegistónleikaröð Tónlistar-
félags Akureyrar í Hofi, Föstudags-
freistingar, er löngum orðin þekkt
meðal Akureyringa. Að þessu sinni
koma fram Lára Sóley Jóhannsdóttir og
Hjalti Jónsson og syngja og spila hug-
ljúfa aðventutónlist sem allir þekkja.
1862 Nordic Bistro matreiðir súpu sem
tónleikagestir geta notið á meðan tón-
leikum stendur. 2.500 krónur inn.
19.30 Í kvöld mun kór Neskirkju ásamt
Stúlknakór Neskirkju, barokkhljómsveit
og fjórum einsöngvurum ráðast í það
þrekvirki að flytja Jólaóratoríu Bachs.
20.00 Jólatónleikar Borgardætra á Café
Rosenberg.
20.30 Stefán Hilmarsson flytur lög af
nýju jólaplötunni sinni í Salnum í Kópa-
vogi ásamt efni frá plötunni Ein handa
þér. 5.900 krónur inn.
20.30 Gissur Páll Gissurarson og Árni
Heiðar Karlsson halda sína árlegu jóla-
tónleika í Landsbókasafninu. 3.500
krónur inn.
21.00 Svíinn Adam Evalds treður upp á
Dillon. 1.000 krónur inn.
21.00 Foxtrain Safari troða upp á Fred e-
riksen Ale House í kvöld.
21.00 Í Mengi verða flutt vídeóverk og
tónlistatriði sem tengjast ferð þeirra Áka
Ásgeirssonar og Halldórs Úlfarssonar á
seglskútu um Breiðafjörð sumarið 2012.
Halldór tók upp myndbönd sem sýnd
verða við raftónlist Áka. Að auki leika
þeir saman á Dórófón og önnur rafræn
hljóðfæri.
22.00 Psychedelic Extravaganza tónleikar
á Gauknum. Sushi Submarine byrjar
ballið, síðan tekur við Bob og loks The
Electric Space Orchestra. 500 krónur inn.
23.00 Rokksveit Jonna Ólafs heldur
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da í kvöld.
21.00 DJ Kári & Basem troða upp á
einni hæð Paloma en DJ Dauði & Elsa
á annarri.
21.00 Trúbadorarnir Ingvar og Gísli
spila á Dubliner.
21.00 DJ Alfons X spilar á Kaffibarnum.
21.00 Trúbadorarnir Ingi Valur og Biggi
troða upp á English Pub.
22.00 DJ Sunna Ben og Gunni Ewok
þeyta skífum á Prikinu.
22.00 DJ KGB þeytir skífum á Bar
Ananas.
22.00 DJ Ívar Pétur þeytir skífum á
Húrra.
Leiklist
20.00 MP5 er ný íslenskt lo-fi sci-fi
satíra unnin af meðlimum Sóma þjóðar.
Verkið er skrifað, leikið og því leikstýrt
af Hilmi Jenssyni og Tryggva Gunnars-
syni. Frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld.
MP5 gerist um borð í alþjóðlegri geim-
stöð í nálægri framtíð. Lífið í geimnum
er ljúft, enda samanstendur þetta litla
afmarkaða samfélag af vel menntuðum,
víðsýnum, friðsömum og umburðar-
lyndum einstaklingum. En þegar slys
á sér stað um borð og MP5-hríðskota-
byssa kemur upp úr neyðarkassanum
vaknar spurningin hvort, og þá hvernig,
best er að nota byssuna.
Opið hús
16.00 Opnar vinnustofur um helgina á
vinnustofum meðlima í SÍM á Seljavegi
32, Samband íslenskra myndlistar-
manna. Á föstudagskvöldinu leikur
Reynir Jónasson á harmonikku af sinni
alkunnu snild frá klukkan 17.30.
Bækur
17.00 Útkomu bókarinnar MMM,
Matreiðslubókar Mörtu Maríu,
verður fagnað í bókabúð Forlagsins
á Fiskislóð í dag. Boðið verður upp
á veitingar úr bókinni og svo enginn
ofþorni nú verða glæsilegar veitingar
frá Vífilfelli í formi léttvíns og bjórs.
Heppnir gestir geta unnið bókina.
17.30 Andlag útgáfa býður vinum og
vandamönnum til útgáfuhófs í dag
til að fagna útgáfu Hrímlands eftir
Alexander Dan. Fögnuðurinn verður
á Lofti Hosteli í Bankastræti 7a og
boðið verður upp á léttar veigar. Höf-
undur mun lesa stuttlega upp úr bók-
inni en Árni Bergur Zoëga tónskáld
samdi tónlist sérstaklega fyrir bókina
sem verður í gegnumgangandi spilun
um kvöldið. Tónverkið mun fylgja
með bókinni á geisladisk. Einnig mun
Rakel Erna Skarphéðinsdóttir vera
með listaverk til sýnis. Bókin verður
til sölu beint frá höfundi.
Myndlist
10.00 Verk eftir Gylfa Gíslason
heitinn verða sýnd á Mokka Kaffi í
tilefni af endurútgáfu bókar hans
Grjótaþorpið.
20.00 Átta ungir listamenn opna Hina
konunglegu teiknisýningu í Ekkisens
gallerýi, Bergstaðastræti 25B. Lista-
mennirnir eru Arngrímur Sigurðsson,
Arnór Kári Egilsson, Gylfi Freeland
Sigurðsson, Héðinn Finnsson, Karl
Torsten Ställborn, Matthías Rúnar
Sigurðsson, Sigurður Ámundason og
Sölvi Dúnn Snæbjörnsson.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is