Fréttablaðið - 05.12.2014, Side 76
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
séum óþolinmóð. Ef þér finnst ekk-
ert vera að ganga upp, þá er eitthvað
að hjá þér því allt hefur sinn tíma,“
bætir hún við. adda@frettabladid.is
„Þetta er viðarskífa sem þú getur
haft um hálsinn eða hengt upp í
gluggann eða utan um baksýnis-
spegilinn í bílnum, eins konar
verndargripur. Síðan er tónlistin
á kóða sem er prentaður í lokið á
kassanum utan um verndargrip-
inn,“ segir tónlistarkonan Kristín
Björk Kristjánsdóttir, einnig þekkt
sem Kira Kira.
Hún hefur nú gefið út óvenjulega
smáskífu með bandaríska raftón-
listarmanninum Eskmo sem hægt
er að nálgast í Mengi og í gegnum
Kirakira.bandcamp.com.
„Okkur langaði að gefa eitt-
hvað út sem heiðraði alla þá góðu
strauma sem við settum í verkin
okkar tvö, Call it Mystery eftir mig
og Perspective eftir Eskmo. Mér
finnst smáskífan mjög heiðarlegt
og flott útgáfuformat, það setur
gott „spott“ ljós á tónlistina og
býður líka upp á útgáfuryþma sem
er mjög heilbrigður. Það er eitthvað
fallegt við að hella öllu sem í manni
býr í eitt lag og deila því svo tafar-
laust með fólki,“ segir Kristín en
skífurnar eru skornar úr lerkitré
úr Heiðmörk. Hún muldi svo þrjár
mismunandi týpur af kristöllum í
útskurðinn en hún þakkar Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur sérstak-
lega fyrir aðstoðina.
Eskmo og Kira Kira spiluðu
saman á Airwaves í ár og tóku upp
plötu í hljóðveri Alex Somers og
Jónsa í Sigur Rós. „Við lokuðum
okkur af í 15 tíma í hljóðveri þeirra
í Þingholtunum en svo erum við
líka með eitthvað af efni sem við
tókum upp í Los Angeles í fyrra-
sumar og í síberískum sumarbú-
stað í Hvalfirði,“ segir Kristín. - þij
Gefa út viðar-smáskífu
sem verndargrip
Kira Kira og Eskmo sameinast fyrir óvenjulega útgáfu.
KIRA KIRA Þakkar Skógræktarfélagi Reykjavíkur sérstaklega fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Fólk stendur yfirleitt við trönurn-
ar þegar það er að mála módel, en
ég sit í stólnum og þá kemur annað
sjónarhorn á módelin,“ segir Edda
Heiðrún Backman sem opnaði mál-
verkasýningu í Gallerýi Bakaríi síð-
astliðinn laugardag.
Á sýningunni eru myndir sem
Edda teiknaði eftir lifandi módelum.
„Ég var með blaðið á gólfinu og mál-
aði myndirnar með löngum bamb-
us. Það var mjög gaman að reyna
við þetta enda ofsalega góð teikni-
æfing,“ útskýrir Edda, en hún notar
munninn þegar hún málar myndirn-
ar.
Ásamt því að halda sýninguna
gefur Edda einnig út bókina Úr
fórum mínum, en þar má sjá yfir
sjötíu myndir sem hún hefur málað
síðan 2010.
„Þetta er kaflaskipt bók, hún
skiptist í olíumálverk, vatnslitaverk,
portrettmyndir, módelteikningar
og drauma og minningar. Stundum
dreymir mig einhver form og þá
verð ég að drífa mig að mála þau,
annars bara gleymi ég þeim,“ segir
Edda.
Bókin kemur út í takmörkuðu
upplagi og gefur Edda hana sjálf út.
Aðspurð hvort listin gefi henni ekki
mikið játar hún því.
„Í þessari athöfn, að mála, þá fer
maður í eins konar heilunarástand
og stundum er eins og hugmyndirn-
ar hrynji niður. Þetta er eiginlega
eins og íhugun fyrir mig. Ég á það
til að detta alveg út þegar ég er að
mála og heyri ekki einu sinni þegar
er kallað á mig,“ segir hún og hlær.
Að mála með munninum er mikil
þolinmæðisvinna og segir Edda að
sjúkdómurinn hafi kennt henni þol-
inmæði. „Mér leist ekkert á blikuna
fyrst, en þetta er bara mikil þolin-
mæðisvinna. Sagt er að þolinmæði
sé sú kennd sem sýnir okkur að við
Fer í heilunarástand
er hún málar myndir
Edda Heiðrún Backman gefur út bókina Úr fórum mínum. Í henni er að fi nna
yfi rlit yfi r verk síðustu fj ögurra ára, en þau málaði hún öll með munninum.
LEIST EKKERT Á BLIKUNA FYRST Edda hefur málað myndir í fjögur ár.
MYND/OLGA HELENA
ÞOLINMÆÐISVINNA Hér má sjá
myndir eftir Eddu á sýningunni í
Gallerýi Bakaríi.
Sagt er að þolin-
mæði sé sú kennd
sem sýnir okkur að við
séum óþolinmóð. Ef þér
finnst ekkert vera að
ganga upp, þá er
eitthvað að hjá þér
Næsta James Bond-mynd heitir
Spectre. Leikstjórinn Sam Mend-
es tilkynnti þetta í gær en mynd-
in er væntanleg í október 2015.
Margir aðdáendur breska njósn-
arans eru hæstánægðir með nafn-
ið enda vísar það í hryðjuverka-
samtök sem Ernst Stavro Blofeld
stjórnaði í gömlu Bond-mynd-
unum. Spectre kom fyrst fyrir í
skáldsögunni Thunderball sem
kom út árið 1961 og í fyrstu Bond-
myndinni Dr. No ári síðar með
Sean Connery í aðalhlutverki.
Daniel Craig leikur James Bond
í Spectre og fyrr á árinu var til-
kynnt að franska leikkonan Léa
Seydoux yrði Bond-stúlkan.
Christ oph Waltz fær einnig hlut-
verk í myndinni sem illmennið
Oberhauser, auk þeirra Monicu
Bellucci, Davids Bautista og And-
rews Scott.
Næsta Bond-mynd heitir Spectre
Margir aðdáendur breska njósnarans 007 eru hæstánægðir með nafnið. Christ-
oph Waltz leikur illmennið Oberhauser og Léa Seydoux verður Bond-stúlkan.
BOND OG FÉLAGAR Daniel Craig, Christoph Waltz, Léa Seydoux og Monica Bellucci
á blaðamannafundi í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
SKÍFAN Hægt er að hafa skífuna um
hálsinn.
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn ·
Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi | Kræsingar & kostakjör
ÓVEÐUR OG TAÍLENSKUR ÞÝÐINGARTEXTITÍST VIKUNNAR
Logi
Bergmann
@logibergmann
Ok. Skil ég þetta
rétt að hápunkturinn í veðr-
inu hafi verið að Dominos
gat ekki sent pizzur? 91
var ekki búið að finna upp
Dominos á Íslandi.
Bergur Ebbi
@bergurebbi
Ég held að ég
hafi mögulega
verið skotinn fyrir ca. átta
árum síðan og aldrei gert
neitt í því. Skotið var af
löngu færi.
Þóra
Tómasdóttir
@thoratomas
Það örlar á ánægju
hjá mér eftir að hafa lokið
verkefni sem fól í sér að setja
tælenskan þýðingartexta á
vídjó um kynferðisofbeldi.
#léttir
Árni
Vilhjálmsson
@cottontopp
Sál mín er þakin
fönn. Langar svo að taka
mynd af því og sýna ykkur.
Þið óheppin að geta ekki
séð.
Hildur
Lilliendahl
@snilldur
Hverfa-
grúppur á Facebook:
bara fyrir týnda ketti
og auglýsingar frá
jesúhoppurum.
LÍFIÐ
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR