Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 5

Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 5
Hlutverk okkar er að veita skipum öryggi og þjónustu Grindavíkurhöfn hefur allra burði til þess að vera í allra fremstu röð. Hér er fram- sýn hafnarstjórn sem með góðum stuðningi bæjaryfirvalda hefur metnað til þess að tryggja öryggi sjófarenda og bjóða upp á góða þjónustu með sann- gjarnri gjaldskrá. Staðsetning hafnarinnar er góð og allar for- sendur til þess að auka umferð og þar með tekjur hafnarinnar. Ímynd hafnarinnar stendur henni helst fyrir þrifum; að innsiglingin sé varhugarverð. En sífellt hefur verið unnið að endurbótum hafnarinnar til þess að bæta öryggi sjófarenda, nú síðast með dýpkunar- framkvæmdum í sumar. „Með þessu höfum við gert innsiglinguna hjá okkur mun öruggari og betri, jafnframt því sem nú er orðið auðveldara fyrir stóru skipin að snúa hér inni í höfninni. Þetta gerir Grinda- víkurhöfn samkeppnishæfari í hafnarþjónustu og það er markmiðið,“ segir Sigurður A. Krist- mundsson, hafnarstjóri Grindavíkurhafnar um dýpkunarvinnu sem staðið hefur yfir að und- anförnu og er að ljúka þessa dagana. Með tilkomu ytri hafnargarðanna í Grindavík á sínum tíma var stigið stórt framfaraskref í hafnarmálum þar í bæ. Sigurður segir þessa grjótgarða hafa verið byltingu. „Já, það er engin spurning að Siglingastofnun skilaði okkur frábærri hönnun með þessum görðum eins og lagt var upp með. Og í raun er innsiglingin okkar alla jafna mjög örugg og greiðfær. Þeir sem lítið þekkja hér til hafa verið hikandi að koma inn hjálparlaust ef eitthvað er að veðri en nú þegar rennan er orðin mun breiðari þá ætti öllum að vera greiðfært hingað inn. Við sjáum því ekkert í þessu nema tæki- færi,“ segir Sigurður en dýpkunarframkvæmd- irnar hófust síðastliðið vor. Stærra athafnasvæði Endurbótum á höfninni inni í Grindavík er þó ekki lokið með dýpkuninni því nú eru hafn- ar framkvæmdir við landfyllingu sunnan Suðurgarðsins og stækka á þannig athafna- svæði hans um sem nemur 7000 fermetrum. Þetta svæði býður upp á ýmsa möguleika í framtíðinni. „Þetta athafnasvæði verður kærkomið til þjónustu hér við höfnina í framtíðinni en við erum líka að bæta ásýnd hafnarinnar með því að laga þetta svæði. Þetta verður algjör bylt- ing,” segir Sigurður. Einn helsti veikleiki Grindavíkurhafnar á síðustu árum hefur verið að engin almenn löndunarþjónusta hefur staðið skipum með aðra heimahöfn til boða. Við þessu hefur Löndunarþjónusta Þorbjarnar hf brugðist með því opna á almenna löndunarþjónustu fyrir önnur skip sem hingað vilja koma. Grindavíkurhöfn í allra fremstu röð Hvað segja skipstjórarnir? „Grindavíkurhöfn er orðin mjög góð, ekki síst eftir dýpkunarframkvæmdirnar í sumar. Allir frystitogarar og fiskiskip landsins geta komið hingað inn og landað, aðstæðurnar eru virkilega góðar,“ segir Sigurður Jónsson stýrimaður og skipstjóri á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255. Sigurður segir verk að vinna til að breyta viðhorfi til hafnarinnar. „Innsiglingin er góð og reyndar miklu betri en menn halda. Hér blasa við tækifærin, hér er komin löndunarþjónusta og verið að auka enn frekar athafnasvæðið,“ sagði Sigurður jafnframt. Góð reynsla af höfninni Viktor Jónsson, skipstjóri á smábátnum Maron GK 522, tekur í sama streng. Hann segir öryggið í höfninni orðið miklu meira. „Síðustu tíu árin hefur enginn skipstjóri farið oftar inn og út úr Grindavíkurhöfn en ég þannig að ég tala af reynslu. Í dag kemst ég alltaf á sjó þegar ég vil. Áður fyrr var það þannig að við komumst ekki út á sjó þegar eitthvað var að veðri. Núna komumst við alltaf á sjó og heim aftur. Munar þar mestu að nú fáum við ekki brot á okkur. Ég myndi því segja að mín reynsla af höfninni í dag væri mjög góð,“ sagði Viktor. GRINDAVÍKURHÖFN Seljabót 2a, 240 Grindavík • Sími: 426 8046 • 660 7305 • Fax: 426 7435 • ghofn@grindavik.is • www.grindavik.is Sigurður hafnarstjóri Velkomin til Grindavíkur! grindavikurhofn:grindavikurhofn 19.2.2013 15:37 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.