Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 42
42
Úthafskarfaveiðin byrjaði af
krafti 10. maí síðastliðinn en
þá máttu íslensku skipin
hefja veiðar. Veiðin var strax
góð og þegar best lét komust
menn í 10 tonn á tímann.
Tryggvi Eiríksson er stýri-
maður á Þór HF, einu af ís-
lensku skipunum sem hafa
verið á úthafskarfaveiðum.
Hann var í brúnni þegar Ægir
slógum á þráðinn og á leið á
heimamið eftir velheppnað
úthald og góðar veiðar. „Já,
við ætlum núna á heimamið
því við erum búnir með kvót-
ann okkar í úthafskarfanum,“
segir Tryggvi.
Samtals var kvóti Þórs að
þessu sinni 620 tonn en mikl-
ar skerðingar hafa verið á
aflaheimildum í úthafskarfan-
um. Tryggvi segir að veiðarn-
ar gefi þó ágætlega af sér
enda hafi verð á karfa haldist
gott þótt gengið hafi gefið
eftir.
„Veiðarnar hafa gengið
fantavel. Þetta er langbesta
vertíðin í heildina séð síðan
ég byrjaði að stunda úthaf-
skarfaveiðar en ég er á minni
13. úthafskarfavertíð núna.
Það eru alveg kjöraðstæður í
hafinu á þessu svæði þar sem
við höfum verið að veiða.
Kjörhitastig og mikill straum-
ur sem karfinn sækir í. Það er
greinilegt að allt aðrar að-
stæður eru núna heldur en í
fyrra.
Algengt er að við tökum
3-6 tonn á togtímann. Við
þær aðstæður eru skipin að-
S J Ó M E N N S K A N
Eðalsamfélag um
borð og allt til alls
Hluti áhafnar Þórs með aldamótakarfa af Mela-
sekk. F.v.: Axel Ólafsson, Bergur P. Sigurðsson,
Ágúst E. Gíslason, Kjartan Jónsson, Hermann
Bjarnason, Snorri Arason, Halldór Birgisson,
Ásgeir Jónsson, Þrúðmar Kári Ragnarsson.
Suðurhrauni 4 • 210 Garðabæ • Furuvellir 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
PÖKKUNARLAUSNIR
ALLT Á EINUM STAÐ FYRIR ATVINNUMENN OG HEIMILI
• Kassar og öskjur
• Arkir og pokar
• bakkar og filmur
• Pökkunarvélar
• Hnífar og brýni
• Einnota vörur o.fl.
• Aðgöngumiðar
• Límmiðar
• Plastkort
Skoðaðu vörulistan okkar á www.samhentir.is
LÍMMIÐAR • PLASTKORT
AÐGÖNGUMIÐAR OG
MARGT FLEIRRA....
P
R
E
N
T
U
N
.IS
SJÓMENN OG FISKVINNSLUFÓLK TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN