Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 14
14
Fyrirverandi skipsfélagar á
varðskipinu Óðni og vildarvinir
varðskipsins hittast reglulega
um borð í skipinu í svokölluðu
Óðinskaffi, fá sér kaffi og
kökur og rifja upp liðna tíma.
Óðinn er sem kunnugt er orð-
inn safn við Grandagarð þar
sem gestir og gangandi geta
komið og séð með eigin aug-
um þetta sögufræga skip sem
tók þátt í öllum landhelgis-
stríðunum vegna útfærslu í 12
mílur, 50 mílur og 200 mílur.
Varðskipið Óðinn hefur á
vissan hátt orðið tákn fyrir
sigur Íslendinga í sögulegum
átökum. Skipið tók þátt í
þremur þorskastríðum þar
sem yfirráðin yfir landhelg-
inni voru í húfi og Bretar,
sem lengi höfðu ráðið heims-
höfunum, sendu herskip á
vettvang til að gera að engu
ákvarðanir sem þjóðin hafði
sameinast um. Saga Óðins er
því þjóðarsaga og hluti af
heimssögunni, skýrt dæmi
um það hvernig litlar þjóðir
náðu að sigrast á ofurefli og
breyttu um leið ásýnd verald-
arinnar. Áhafnir Óðins á
þessum tíma voru sannkall-
aðar þjóðhetjur á þessum
tíma, okkar menn. Óðinn
kom til landsins 1960 og fór
síðustu ferðina til Bretlands
árið 2006, þá sem hluti af
fylgdarliði forseta Íslands. Til-
gangur ferðarinnar var að
minnast íslenskra og breskra
sjómanna sem létust eða var
komið til bjargar við strendur
Íslands og björgunarmanna
þeirra.
Hrikalegasta ferð Óðins
fyrr og síðar er líklega björg-
unarleiðangur í Ísafjarðar-
djúpi í febrúar 1968 en þá
gekk mikið fárviðri yfir land-
ið. Tvö skip sukku í Djúpinu
vegna ísingar og eitt hraktist
á land. Togararnir Ross
Cleveland og Nott County
höfðu leitað vars undir
Grænuhlíð. Ross Cleveland
fórst og aðeins einn skipverji
komst af, Harry Eddom.
Hann rak inn á Seyðisfjörð
og fannst þar. Notts County
strandaði á Snæfjallaströnd en
þar var unnið mikið björgun-
arafrek þegar stýrimennirnir
Sigurjón Hannesson og Pálmi
Hlöðversson sóttu áhöfn
breska togarans á gúmmíbát.
Í þessu veðri fórst báturinn
Heiðrún frá Bolungarvík þeg-
ar reynt var að sigla bátnum
til Ísafjarðar í þessu aftaka-
veðri.
Guðmundur Kjartansson var um árabil bátsmaður og háseti á Óðni.
S A G A N
Litið inn í Óðinskaffi
Hópurinn sem mættur var til skrafs í borðsal Óðins þann 22. maí sl.
hvert er þitt hlutverk?
Gold Enterprise Resource Planning
Silver Independent Software Vendor (ISV)
TM
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
- snjallar lausnir
Wise sérhær sig í viðskiptalausnum,
sem einfalda þér þitt hlutverk.
Wise - snjallar lausnir