Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 36
36
Fáanlegur sem X-band og S-band radar.
Ný TEF tækni bætir virkni á styttri skölum og
aðgreiningu endurvarpa.
Kortaoverlay á radarmynd og sýnir AIS skip.
Öllum aðgerðum stjórnað með mús eða lyklaborði.
Nýlegur radar sem hefur hlotið mikið lof notenda.
Ný fjarskiptalína sem er einföld í notkun.
Allar talstöðvar með upptöku á
kölluðum skilaboðum.
Sónar er eini viðurkenndi sölu-
og þjónustuaðili SAILOR á Íslandi.
FREMSTIR Í FJARSKIPTUM
LEITARKASTARAR OG VINNULJÓS
JMA-5300 MK2 RADAR
WASSP FJÖLGEISLA DÝPTARMÆLIR
Alger bylting í dýptarmælatækni.
Fáanlegur í 80 kHz — meira langdrægi.
Sýnir 120° þversnið í rauntíma undir skipinu.
Safnar botnhörku og sýnir í mismunandi lit.
Einfaldur í notkun — valmyndir á íslensku.
Tranberg er rótgróið fyrirtæki sem hefur framleitt
siglingaljós og leitarkastara í yfir 90 ár.
Vönduð hágæða vara — byggð til að endast
við erfiðustu aðstæður.
Leitarkastarar fyrir allar stærðir skipa.
Siglinga- og vinnuljós í miklu úrvali.
w
w
w
.godverk.is
– ekki sætta þig við annað!
gæðatæki
Fáðu rétta
heildarmynd
– af botni og
fiskitorfum!
Láttu ljós þitt
skína!
FRÁBÆ
R VIÐ
MAKRÍL
LEIT!
HEILDARLAUSN
í siglingatækjum
Sónar ehf
Hvaleyrarbraut 2
220 Hafnarfjörður
Sími 512 8500
sonar@sonar.is
www.sonar.is
K J A R A M Á L
árið 1992 þar eru nú skráð 35
skip, fæst í færeyskri eign.
„Hvað hafa íslensk stjórn-
völd gert til þess að stuðla að
því að þessi fáu kaupskip
sem enn eru gerð út af ís-
lenskum aðilum séu skráð
hér á landi?“ spyr Helgi og
svarar að bragði; „ekkert.
Helgi segir að á liðnu vor-
þingi hafi bæði fjármálaráð-
herra og samgönguráðherra
lagt fram frumvörp um ís-
lenska alþjóðlega skipaskrá,
IIS og þær skattabreytingar
sem nauðsynlegar eru til þess
að útgerðir kaupskipa sjái
hag í að skrá skipin hér á
landi.
- Hver urðu örlög þessa
frumvarps?
„Líklega er hægt að segja
sorgleg. Í þann mund sem
samgöngunefnd Alþingis var
að afgreiða bæði frumvörpin
frá sér sendi ASÍ inn óum-
beðna umsögn vegna þeirra
og óskaði í framhaldinu eftir
fundi með nefndinni. Til þess
fundar mættu forsetinn, fram-
kvæmdastjórinn og yfirlög-
fræðingurinn. Þeir lögðust al-
farið gegn texta í 11. gr.
frumvarpsins um IIS þar sem
gert er ráð fyrir að erlendir
sjómenn taki kaup og kjör
samkvæmt kjarasamningum
viðkomandi landa sem for-
ysta ASÍ taldi ígildi guðlasts
ef ekki eitthvað enn skelfi-
legra. Um kjör skipverja í
áhöfn kaupskips fer eftir
þeim kjarasamningum sem
gerðir hafa verið við stéttar-
félög viðkomandi ríkja þar
sem skipverji á lögheimili.
Kjarasamningur gildir einung-
is fyrir félaga í því stéttar-
félagi og ríkisborgara þess
ríkis sem stéttarfélag á lög-
heimili í, enda eru þeir ekki í
öðrum stéttarfélögum sem
gerður hefur verið kjarasamn-
ingur við.“
ASÍ gerði lögin einskisnýt
Sama ákvæði er í lögum
hinna Norðurlandanna um
þeirra alþjóðlegu skipaskrár.
Nefnt ákvæði var, að kröfu
ASÍ, fellt úr frumvarpinu sem
varð að einskisnýtum lögum
því ekkert íslenskt kaupskip
hefur til þessa verið skráð í
IIS. Í maí á liðnu ári voru ís-
lensku kaupskipin 12 þannig
skráð að fimm voru í Anticua,
fjögur í Noregi NIS og þrjú í
Færeyjum FAS.
„Það skiptir útgerðirnar
ekki höfuðmáli hvar skipin
eru skráð, þær eru búnar að
bíða aðgerða í tuttugu ár; gáf-
ust upp og hafa með ærnum
kostnaði komið sér fyrir er-
lendis. Lái þeim hver sem
vill,“ segir Helgi. „Aftur á
móti gengur þetta fyrirkomu-
lag ekki hvað varðar íslensku
sjómennina. Þeirra réttur í al-
mannatryggingakerfinu er í
einhverjum tilvikum enginn
og í öðrum tilvikum mjög
óljós.
Í þessu máli eru afskipti
ASÍ á margan hátt afar sér-
kennileg ekki síst vegna þess
að til þessa hefur forysta ASÍ
ekki átt andvökunætur vegna
áhyggja af því þegar íslensku
kaupskipin fóru undir er-
lenda fána með tilheyrandi
áhrifum á atvinnuöryggi ís-
lenskra sjómanna. Ég tel að
réttarstaða íslenskra sjómanna
skipti ASÍ engu máli, menn
eru ekki stórhuga ef tryggja á
sjómönnum láglaunaland-
anna íslensk kjör um borð í
íslenskum skipum.“
- Hefurðu gefið upp alla
von um að hér verði stofnuð
marktæk íslensk skipaskrán-
ing?
„Alls ekki. Það er ekki
minn háttur að leggja árar í
bát þegar ég tel að hægt sé
að leiða þetta mál til betri
vegar fyrir sjómenn á íslenska
kaupskipaflotanum. Og að ís-
lensk stjórnvöld fái skatta af
þeim sjómönnum á kaup-
skipaflotanum sem eru ís-
lenskir ríkisborgarar og eiga
sínar fjölskyldur hérlendis,“
segir Helgi Laxdal.