Ægir - 01.04.2013, Blaðsíða 8
8
S J Ó M A N N A D A G U R I N N
Hátíðin Sjóarinn síkáti í
Grindavík hefur fest sig í
sessi sem ein öflugasta sjó-
mannadagshátíð landsins. Á
sama tíma og hefðbundin há-
tíðarhöld sjómannadagsins
hafa víða verið lögð niður
undanfarin ár hafa Grindvík-
ingar tekið þá stefnu af efla
Sjóarann síkáta enn frekar
enda Grindavík einn öflugasti
sjávarútvegsbær landsins.
Mikið er lagt upp úr því að
Sjóarinn síkáti sé fyrst og
fremst fjölskylduhátíð þar
sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi
en hátíðin fer fram 31. maí til
2. júní næstkomandi.
Valinn skemmtikraftur í hverju
rúmi!
Dagskráin verður, að sögn
Þorsteins Gunnarssonar, upp-
lýsingafulltrúa Grindavíkur-
bæjar, mjög fjölbreytt og
glæsileg. Líkast til hefur hún
aldrei verið glæsilegri.
„Við verðum með landslið
skemmtikrafta. Hátíðin hefst
með skemmtilegum tónleik-
um með Magga Eiríks og KK
og þá verður hljómsveitin
Skálmöld einnig með tónleika
þetta kvöld. Bubbi Morthens
verður með tónleika, Páll
Óskar verður á bryggjuball-
inu ásamt Rokkabillýbandi
Matta Matt þar sem Helgi
Björns verður sérlegur gestur.
Skítamórall verður með ball,
svo eitthvað sé nefnt. Sem
fyrr leggjum við upp úr fjöl-
breyttri fjölskyldudagskrá alla
helgina sem nær hámarki á
sunnudeginum, sjálfum sjó-
mannadeginum. Það besta
við þessa bæjarhátíð okkar
Grindvíkinga að mínu mati er
hversu margir koma að henni
og bjóða upp á fjölbreytta og
skemmtilegra viðburði til
heiðurs íslenska sjómannin-
um og fjölskyldu hans,“ segir
Þorsteinn .
Sjómanna- og vélstjórafé-
lag Grindavíkur kemur mynd-
arlega að hátíðinni, sérstak-
lega á sjómannadeginum
sjálfum þar sem verða heið-
ursviðurkenningar og kapp-
róður og margt fleira. Fimmta
árið í röð er svo bænum skipt
upp í fjögur litahverfi og síð-
an verður litaskrúðganga á
föstudagskvöldinu úr hverf-
unum fjórum að hátíðarsvæð-
inu við Kvikuna þar sem
verður hefðbundið bryggju-
ball. Grindvíkingar hafa
skreytt bæinn sinn hátt og
lágt og tekið virkan þátt í há-
tíðarhöldunum.
Margt fyrir börnin
Fyrir yngri kynslóðina verða
ýmis skemmtileg dagskrár-
atriði, s.s. dorgveiðikeppni
sem nýtur mikilla vinsælda,
Brúðubíllinn sívinsæli,
Sjóarinn verður
síkátur í Grindavík
„Þú skalt í sjóinn, góði!“ Þeir hlífa ekki hvorir öðrum, sjómennirnir í Grindavík.