Víkurfréttir - 13.12.2012, Qupperneq 2
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
JólablaðIð 2012
sími 421-5566 - www.bilahotel.is
ALÞRIF: VERÐ FRÁ 8.500,-
VIÐ SÆKJUM OG SKILUM
Litskrúðugur vatnstankur
Jólaljósunum fjölgar hratt þessa dagana. Vatnstankur við Reykjanesbraut ofan Njarðvíkur hefur verið lýstur upp með marglitum ljósum og er án efa flottasti og litskrúðugasti vatnstankurinn í Reykja-
nesbæ. Ljósin sem lýsa upp tankinn minna mjög á ljósaskreytingar við orkuver HS Orku í Svartsengi, sem
hefur verið lýst á sama hátt undanfarin jól.
VF-mynd: Hilmar Bragi
JÓLATÓNLEIKAR
TÓNLISTARSKÓLA REYKJANESBÆJAR
Jólatónleikaröð skólans 13. - 20. desember.
Fram koma nemendur úr söngdeild og öllum
hljóðfæradeildum skólans.
Sérstaklega skal getið um eftirtalda
hljómsveitatónleika:
Á sal skólans við Austurgötu:
Stofutónleikar yngstu Lúðrasveitarinnar
mánudaginn 17. desember kl.15.00
Stofutónleikar mið Lúðrasveitarinnar
þriðjudaginn 18. desember kl.15.00
Jólatónleikar Rytmadeildar
þriðjudaginn 18. desember kl.18.00
Í Bíósal Duushúsa:
Jólatónleikar Söngdeildar
þriðjudaginn 18. desember kl.18.00
í Ytri Njarðvíkurkirkju:
Jólatónleikar Strengjasveitarinnar
þriðjudaginn 18. desember kl.18.00
Allir velkomnir!
Nánari upplýsingar á tonlistarskoli.reykjanesbaer.is
og á skrifstofu skólans Austurgötu 13 sími 421-1153
Skólastjóri
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
Síðasti kennsludagur fyrir jólaleyfi er
fimmtudagurinn 20. desember.
Kennsla hefst skv. stundatöflu
mánudaginn 7. janúar 2013.
Skólastjóri
KRAKKASKÁKMÓT
Krakkaskák í samstarfi við Samsuð
(félagsmiðstöðvar á Suðurnesjum) halda skákmót
fyrir börn og unglinga í KK húsinu, Vesturbraut 17,
laugardaginn 15. desember kl. 13.00 - 17.00.
ATH! skráning á fjorheimar.is (skilyrði er að skrá sig).
Keppt verður í flokkum 7 - 10 ára og 11 - 16 ára.
Glæsileg verðlaun í boði og allir fá verðlaunapening
fyrir þátttökuna.
Skilyrði fyrir þátttöku er að kunna mannganginn.
(sjá krakkaskak.is)
Keppt verður með skákklukku og
umhugsunartíminn er 10 mínútur
Ekkert þátttökugjald.
Samþykkt var einróma á bæjarstjórnarfundi í Vogum á Vatnsleysuströnd þann 28. nóvem-
ber síðastliðinn að ráðast í víðtækt átak gegn mis-
notkun á félagslegri aðstoð sveitarfélagsins. Þróun
útgjalda á vettvangi félagsþjónustu er áhyggjuefni
en mikil aukning er í greiðslu húsaleigubóta, fjár-
hagsaðstoðar, barnaverndarmála o.s.frv.
Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar, segir
í samtali við Víkurfréttir að á árinu 2012 hafi fjár-
hagsaðstoð hjá sveitarfélaginu verið um 2,7 milljónir
króna en samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir að þessi upphæð muni fimmfaldast og
fara í um 15 milljónir króna.
„Lítil sveitarfélög eru varnarlaus gagnvart t.d. rangri
lögheimilisskráningu, rangri skráningu hjúskapar-
stöðu og skipulögðu bótasvindli,“ segir Inga Sigrún.
„Þetta leiðir til þess að útsvarstekjur skila sér ekki.
Um leið eru niðurgreiðslur sveitarfélagsins og fjár-
hagsaðstoð misnotuð. Það er erfitt fyrir jafn lítið
sveitarfélag og Voga að búa við svo miklar sveiflur eins
og raunin sýnir. Það verður ekki við unað að sveitar-
félagið hafi ekki ráð til að bregðast við misnotkun á
nauðsynlegri neyðaraðstoð sveitarfélagsins. Mikil-
vægt er að sporna við svindli með samhentu átaki og
taka á því samfélagsmeini sem felst í svartri atvinnu-
starfsemi, rangri búsetuskráningu, rangri sambúðar-
skráningu o.s.frv.“
Inga Sigrún segir mikinn samhug innan bæjarstjórnar-
innar að taka á þessum málum. Skýringarnar á þessari
miklu hækkun í félagslegri aðstoð hjá sveitarfélaginu
liggja að stórum hluta í því að margir einstaklingar
muni missa rétt á atvinnuleysisbótum á næsta ári og
fara því yfir á framfæri sveitarfélaga.
„Það er mikilvægt að taka þetta mál upp á samstarfs-
vettvangi sveitarfélaganna á Reykjanesi, sem og við
lögreglu, skattayfirvöld og Hagstofu. Í litlum sveitar-
félögum er auðvelt að komast að því hverjir eru að
misnota félagskerfið. Hér þekkja allir alla. Misnotkun
getur haft þær afleiðingar að lækka þarf greiðslur til
þeirra sem raunverulega þurfa að aðstoðinni að halda
og það væri miður,“ segir Inga Sigrún.
Bæjarstjórn samþykkti því að fela bæjarstjóra að leita
samstarfs við lögreglu og önnur yfirvöld og hafa frum-
kvæði að öflugu átaki gegn misnotkun á félagslegri
aðstoð sveitarfélagsins.
Ráðast í átak gegn mis-
notkun á félagslegri aðstoð
n Bæjarstjórn sveitarfélagsins voga: