Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2012, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 13.12.2012, Blaðsíða 16
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR16 JólablaðIð 2012 „Fyrirtæki Ingva Þórs Sigríðarsonar, IÞ Tréfverk, sá alfarið um breytingar, lagfæringar og uppsetningu á predikunarstól, altari, altaristöflu og sálmatöflu. Ingvi Þór gaf vinnu sína til minningar um bróður sinn Árna Jakob Hjörleifsson og mágkonu sína Rut Gunn- arsdóttur og um Gunnar Jón Sigtryggsson og hjónin Þuríði Halldórsdóttur og Árna Bjarnmund Árnason. Á gjafabréfum sem hann afhenti prestum Keflavíkur- kirkju standa þessi ljóð eftir Rut Gunnarsdóttur: Menn, ást og trú Að mennirnir fara illa með trúna er ekki trúnni að kenna Að mennirnir fara illa með ástina er ekki ástinni að kenna Því hrein og óspillt er trúin von mannkyns. Og að elska er það besta sem lífið gefur og að vera elskaður er næstum jafn gott (Rut Gunnarsdóttir) Jólagjöfin Það eru jól. Á jólunum gefa menn gjafir. Gjafir mínar eru ekki af þessum heimi. Þær eru gjafir hugans. Ég tíndi stjörnur handa þér því blómin sofa vetrarsvefni. Gleðistjörnu, með gullnum draumum. Friðarstjörnu, með fegurð sálarinnar. Ástarstjörnu, með alheimsást. Hamingjustjörnu, með hugarró. Eilífðarstjörnu, með innri sýn, Þetta er fimm stjörnu gjöf og ég vef hana inn í norðurljós af því ég á engan pappír og búðirnar eru lokaðar. Svo skreyti ég með fallegri slaufu. Hún er ofin úr þræði örlaganna sem spinna endalaust þráð sinn í kringum okkur. Nóttu gjafa minna og ég mun gleðjast (Rut Gunnarsdóttir) Bryndís Guðmundsdóttir kennari við Akurskóla og fjölskylda hennar snæða krónhjört á aðfangadag og í forrétt er „Ris a la mande“. Henni er kærast að vera með sínum nánustu yfir hátíðirnar en veraldlegar gjafir skipta hana litlu máli. Fyrstu jólaminningarnar? Þegar ég var um tveggja til þriggja ára fékk ég dúkku í jólagjöf sem ég hljóp upp á bað með og skírði Gunnu. Það er líka greipt í minn- inguna þegar ég og Guðrún Birna systir mín fengum kasettutæki saman og þurftum að deila því. Grjónagrautur með saft kemur einnig upp í hugann og yndislegar samverustundir með fjölskyldunni. Jólahefðir hjá þér? Snemma í desember set ég alltaf upp jólaóróana frá Georg Jensen sem móðir mín gaf mér eftir að börnin mín fæddust. Börnin mín hafa síðan haldið áfram að gefa mér þá eftir að hún lést og þykir mér virkilega vænt um það. Fjölskyldan hefur líka frá því við bjuggum í Danmörku haft „Ris a la mande“ með kirsuberjasósu á aðfangadag. Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðirnar? Já, ég er það. Mér finnst mjög gaman að elda og enn skemmtilegra að útbúa góða eftirrétti. Jólamyndin? Sú mynd sem kemur fyrst upp í hugann er Jólaósk Önnu Bellu og svo er það Tröllið sem stal jólunum. Jólatónlistin? Ég hlusta mikið á Jólagesti Björgvins Halldórssonar og jóla- diskinn „Ein handa þér“ með Stefáni Hilmarssyni í desember. Hvar verslarðu jólagjafirnar? Þetta árið verslaði ég nokkrar jólagjafir í London en kláraði innkaupin á Íslandi. Gefurðu mikið af jólagjöfum? Já, frekar. Það eru mörg börn í fjölskyld- unni sem ég hef gaman af að gleðja. Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? Nei, ég er nú ekkert sérstaklega vanaföst en ég kveiki samt alltaf á RÁS 1 á aðfangadag og bíð eftir að jólin hringi inn klukkan 18:00. Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Besta jólagjöfin mín ár hvert eftir að ég varð fullorðin er að eiga heilbrigða fjölskyldu og að hafa fólkið mitt hjá mér. Hvað er í matinn á aðfangadag? Við borðum „Ris a la mande“ í forrétt, krónhjört í aðalrétt og eftir- réttinn snæðum við hjá tengdaforeldrum mínum. Þegar við höfum opnað gjafirnar er hefð að fara til tengdaforeldra minna og þar fáum við einhverja girnilega rétti. Tengdamamma mín er snilldarkokkur og ég hlakka alltaf til að borða kræsingarnar sem hún ber á borð. Eftirminnilegustu jólin? Jólin 2004 eru sterk í minningunni. Þá lá móðir mín á gjör- gæsludeild Landspítalans og við systurnar skiptumst á að dvelja hjá henni. Það var sérstök upplifun að dvelja á þeim stað yfir hátíðirnar þegar andi jólanna sveif yfir vötnum en innan veggja sjúkrahússins var fólk að berjast fyrir lífi sínu. Mér er líka ofarlega í huga síðustu jól þegar ég fór með eigin- manni og börnum til Florída, það var virkilega skemmtilegt. Hvað langar þig í jólagjöf? Þegar maður er komin á minn aldur skipta veraldlegar gjafir litlu máli. En mér finnst alltaf vænt um þær gjafir sem ég fæ því gjöfin sem slík tengir mig og hugsanir mínar við gefandann. Tæklum jólastressið… Hann getur verið ansi langur gátlistinn hjá okkur þegar nær dregur jólum og í góðri trú reynum við að töfra fram hin ‘full- komnu jól’ og stöndum okkur að því að þrífa allt hátt og lágt, baka heilan haug af smá- kökum, fara mi l l i búða og versla, mæta í boð og partý, o.s.frv. Vissulega er þetta allt af hinu góða og ánægjulegt fyrir margar sakir og hluti af okkar hefðbundna jólaundirbúningi, en stundum getur þetta orðið yfirþyrmandi og hreinlega endað í streitu, kvíða og jafnvel svefnleysi. Streita er eðlilegt viðbragð gegn ytra og innra áreiti en ef streitan verður langvinn og við náum ekki að losa um streituna þá magnast hún upp og fer að vera líkamanum skað- leg. Með því að vera meðvituð um áhrif streitunnar á heilsu okkar þá eru meiri líkur á að við látum þetta ekki ná tökum á okkur. Það eru nokkrar leiðir sem við getum nýtt okkur til að draga úr streitunni sem getur verið fylgifiskur jólahalds. 1) Fáum nægan svefn og hvíld. 2) Kyrrum hugann og notum drögum djúpt andann. 3) Notum hreyfingu og reglulega göngutúra. 4) Borðum vel og reglulega yfir daginn. 5) Höldum örvandi efnum eins og kaffi og koffíni í hófi. Með þessu móti náum við enn frekar að njóta líðandi stundar með bros á vör og gleði í hjarta :) Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.com/grasalaeknir Ásdís grasalæknir skrifar HEIlsUHoRnIð Vegleg gjöf í Keflavíkurkirkju Krónhjörtur í aðalrétt | www.flytjandi.is | sími 421 7788 | OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA 750KR.ALLT AÐ KG45

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.