Víkurfréttir - 13.12.2012, Blaðsíða 43
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 13. desember 2012 43
JólablaðIð 2012
eða hvað
?
Baldursgata 14 - sími 421-3555
NÝTT NÝTT
Höfum opnað fyrir móttöku á fatnaði og
þvotti í hreinsun í Versluninni Gjafir og
Konfekt við Víkurbraut Grindavík
Það var mjög góð stemmning á útgáfutónleikum Geimsteins
á Ránni sl. fimmtudagskvöld en
þá komu margir tónlistarmenn
fram og sungu nokkur lög af
geisladiskum sem koma út fyrir
þessi jól.
Nokkur spenna var fyrir flutningi
Júlíusar Guðmundssonar sem
kemur fram undir nafninu Gálan
en níu lög á diski hans fyrir þessi
jól eru með textum eftir Rúnar
Júlíusson föður hans. Júlíus er
hæfileikaríkur tónlistarmaður og
söng nokkur lög sem féllu í góðan
jarðveg, greinilega fjölbreytt og
skemmtileg plata á ferðinni. En það
voru fleiri sem komu fram, Klass-
art, Hrafnar, Eldar, Bjartmar og
Keflavíkurmærin Elísa Newman
Geirsdóttir. Hún átti að margra
mati bestu frammistöðu kvöldsins
en nýi diskurinn hennar Heimþrá
er virkilega góður.
Góð aðsókn var á tónleikana og
nutu gestir góðrar tónlistar.
á útgáfutónleikum
Geimsteins 2012
Góð stemmning
Menn eltu blaðburðarkonu
Lögreglunni á Suðurnesjum barst á laugar-dagsmorgun tilkynning þess efnis að tveir
menn á dökkleitri bifreið hefðu verið að elta
blaðburðarkonu, sem var að störfum í Keflavík
snemma morguns.
Konan varð skelfingu lostin, tók til fótanna og bankaði upp á í næsta húsi,
þar sem hún dvaldi þar til lögreglan kom. Húsráðendur þar kváðust einnig
hafa séð bifreiðina lóna inn götuna.
Lögreglan rannsakar málið og biður þá sem kunna að geta gefið upp-
lýsingar um það að hafa samband í síma 420-1800.
Myndavélum og 300 lítrum af olíu stolið
Fjögur þjófnaðarmál voru tilkynnt til lög-reglunnar á Suðurnesjum um helgina. GPS-
tæki var stolið úr bifreið í Njarðvík. Enn fremur
var númeraplötum stolið af bifreið, einnig í
Njarðvík. Þær fundust í næsta garði og var þá
búið að eyðileggja þær.
Þá var tveimur myndbandstökuvélum og einni myndavél stolið af kenn-
arastofu Keilis.
Loks var tilkynnt um þjófnað á 300 lítrum af olíu af vörubifreið í Grinda-
vík. Það athæfi átti sér stað fyrir nokkrum dögum, en hafði láðst að til-
kynna það fyrr en nú.
Ofangreind mál eru til rannsóknar hjá lögreglu, sem biður þá, er kunna að
geta gefið upplýsingar, að hafa samband í síma 420-1800.
LÖGREGLUFRÉTTIR