Víkurfréttir - 13.12.2012, Qupperneq 4
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
JólablaðIð 2012
PÁLL KETILSSONvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Er NorEgur málið?
Fjöldi Íslendinga hefur á undanförnum árum
flutt til Noregs í ljósi atvinnuástands hér á landi
eftir bankahrun. Þar á meðal eru margir Suður-
nesjamenn. Í fjölbreyttu og stóru jólablaði Vík-
urfrétta er að finna viðtöl við Suðurnesjamenn
sem hafa flutt til frændfólks okkar í Noregi.
Sögur okkar fólks, sem eru annars vegar hjónin
Guðrún Eiríksdóttir og Halldór Halldórsson,
og hins vegar íþróttakappinn Gestur Gylfason,
eru athyglisverðar svo um munar. Hjónin hafa síðan
2009 búið á þremur stöðum, þar af á tveimur fámennum
eyjum í Noregi. Á annarri eyjunni leið þeim mjög vel en
á hinni lentu þau í óskemmtilegri reynslu sem þau lýsa í
viðtalinu: „Okkur leið ekki vel þarna. Það stóðst ekkert
af því sem okkur hafði verið lofað af hálfu eigandans
hvað laun og húsnæði varðaði og framkoma hans gagn-
vart starfsfólki sínu var fyrir neðan allar hellur. Þetta
var bara ljótt í alla staði og illa farið með þetta fólk.“
Keflvíkingurinn Gestur Gylfason, smiður, lék lengi knatt-
spyrnu í efstu deild með Keflavík en einnig með Njarðvík
í neðri deildum. Hann er mjög sáttur í Noregi, þjálfar
kvennalið í smábæ sem hann býr í og leikur einnig sjálfur
knattspyrnu þó hann sé kominn á fimmtugsaldur. „Ég
myndi segja að yfirhöfuð væru Norðmennirnir
mun ánægðari en við Íslendingar. Hér upplifi
ég allt annað viðhorf gagnvart lífinu og allir
eru mjög hressir. Ef maður nennir að vinna og
leggja hart að sér þá taka Norðmenn vel á móti
manni, við erum varla útlendingar í þeirra
augum. Fólk hefur það gott hér en stundum
blöskar manni þó verðlagið hér í Noregi.“
Það er einnig ótrúlegt að sjá magnaðar ljósmyndir
Óla Hauks Mýrdal, ljósmyndara úr Keflavík en hann
tók ljósmyndagræjurnar með í ferðalag til Eþíópíu
og heimsótti, ásamt Garðari bróður sínum, ætt-
bálka í OMO dalnum. Óli lýsir frábærum móttökum
sem hann fékk í þessu sérstaka landi en verið er
að hrekja ættbálkana í burtu af landi sínu.
Það er því óhætt að segja að Suðurnesjamenn séu að
láta til sín taka um allan heim en einnig hér heima.
Það er alltaf úr nógu að moða fyrir okkur á Víkurf-
réttum en það gerist einnig með góðri tengingu
við íbúa svæðisins sem eru duglegir að láta okkur
vita af áhugaverðu efni og skemmtilegu fólki.
Nýjar áherslur í gruNNskóla
Ný aðalnámskrá
Ný aðalnámskrá hefur verið gefin
út og á að vera komin að fullu í
framkvæmd 2015. Meginmarkmið
nýrrar námskrár er að rækta með
markvissum hætti þá þekkingu,
leikni og viðhorf sem styrkja hæfni
einstaklinga til að verða gagnrýnir,
virkir og hæfir þátttakendur í jafn-
réttis- og lýðræðissamfélagi.
Hlutverk grunnskólanna er að
mennta nemendur sína fyrir nútíð
og framtíð. Enginn veit hver fram-
tíðin verður. Þó má leiða líkum
að því að tæknin verður stór hluti
af henni. Þáttur tækninnar er nú
þegar farin að hafa töluverð áhrif
á daglegt líf fólks, þar á meðal
menntakerfið. Til að mynda er nú
talað um nýja tegund læsis, stafrænt
læsi, sem vísar til þeirrar kunnáttu
sem fólk þarf að tileinka sér til þess
að geta notað tölvu- og nettækni
til samskipta og efnissköpunar.
Tölvur og stafræn samskiptatækni
eru víða ómissandi þáttur í daglegu
lífi fólks og þykja sjálfsögð verkfæri
í skólastarfi. Nemendur okkar eiga
að öðlast hæfni til þess að afla sér
upplýsinga, meta, gagnrýna og
vinna úr þeim á skapandi hátt.
Starfsfólk Heiðarskóla er að vinna
að innleiðingu nýrrar námskrár
og í því sambandi hefur það sótt
marga fyrirlestra um áhersluatriði
námskrárinnar. Á dögunum fór
hópurinn til Akureyrar að kynna
sér útfærslu kennara Giljaskóla á
nýrri nálgun á námsmati og hlusta
á fyrirlestur í Háskólanum á Akur-
eyri um lestur, sem bar heitið
„Lestrarhestamennska, skyldu-
íþrótt skólabarna“.
Ný nálgun á námsmat
Í aðalnámskrá segir að í náms-
mati grunnskóla skuli leggja mat á
hæfni nemenda innan hvers náms-
sviðs og einnig lykilhæfni sem er
sameiginleg öllum námssviðum.
Lykilhæfni byggir á grunnþáttum í
menntun og áhersluþáttum grunn-
skólalaga. Hæfni eins og ábyrgð,
dugnaður, seigla, samskipti og
tjáning verða þungamiðjan í náms-
matinu og þannig er hægt að fagna
árangri út frá hverjum nemanda
fyrir sig. Þrautseigja og dugnaður
er eitt það mikilvægasta sem ein-
staklingur getur tileinkað sér, án
þessara tveggja hæfniþátta er hætt
við því að nemandinn missi tökin
á sínu námi.
Spjaldtölvur í skólastarfi
Stærðfræðikennarar og náttúru-
fræðikennarinn á unglingastigi í
Heiðarskóla hafa fengið iPad tölvur
til að nýta í sinni kennslu. Með til-
komu spjaldtölva í kennslu fá kenn-
arar tækifæri til að nýta tæknina,
sem nemendur alast upp með og
þekkja. Þá geta kennarar sett efnið
fram á áhugaverðan hátt og skapað
fjölbreytni í kennslu og vinnu nem-
enda. Allar innlagnir kennarans er
hægt að vista og því möguleiki á að
kalla þær fram til upprifjunar eða
til að bæta við þær. Fyrsta skrefið
var tekið á síðasta skólaári þegar
tveir stærðfræðikennarar komu
með sína eigin iPada til að nota í
kennslu. Tækið reyndist góð við-
bót við þá aðferðafræði sem stærð-
fræðikennarar Heiðarskóla hafa
stuðst við undanfarin ár; að vinna
með hugtök í gegnum leiðarbók,
hugtakakort og úrlausnir verkefna.
Kennarar hafa nýtt sér Mentor
til að koma leiðarbókarfærslum
til nemenda, sem voru ekki við-
staddir í tímanum. Þetta er ein
útfærsla að „speglaðri kennslu“,
þar sem nemendur fá innlögnina
heima og vinnan fer fram í skól-
anum. Möguleikar til að búa til
sín eigin kennslumyndbönd með
iPad og þannig nýta þessa hug-
myndafræði er svo sannarlega til
staðar. En það þarf að stíga rólega
til jarðar í þessum efnum og útfæra
þetta þannig að þetta verði öllum
nemendum til góða. Mikið er til af
smáforritum sem nýtast í kennslu
og gera kennsluna áhugaverðari og
myndrænni.
Sköpun
Sköpun er veigamikill þáttur í öllu
námi. Hún byggir á gagnrýnni
hugsun og aðferðum sem opna
sífellt nýja möguleika. Vinnubrögð
í listsköpun einkennast gjarnan
af sköpunargleði, frumkvæði og
frumleika og mikilvægt er að nem-
endur fái sem oftast tækifæri til að
vinna slíka vinnu. Nú á haustönn-
inni voru menningarstundir og
þemadagar í Heiðarskóla, þar sem
mikil sköpunargleði ríkti og nem-
endur skiluðu frábærri vinnu.
Ánægja af lestri
Það er margsannað að sterkt
samband er á milli bóklesturs og
árangurs í lesskilningi og námi.
Ánægja af því að lesa bók hefur
sterkustu tengslin við lesskilning.
Rannsóknir sýna að börn sem lesa
bækur daglega eru að jafnaði einu
og hálfu skólaári á undan þeim, í
lesskilningi, sem ekki lesa daglega.
Stjórn á eigin árangri og ánægja
af bóklestri er lykillinn að góðum
námsárangri í íslensku hjá báðum
kynjum.
Jákvæð umræða
um skólastarf
Við berum öll ábyrgð á menntun
nemenda okkar. Skólinn, foreldr-
arnir, nemandinn sjálfur og sam-
félagið. Það hlýtur því að vera sam-
félagsleg skylda okkar allra að skapa
jákvæða umræðu um skólastarf og
hlúa að því eins og kostur er. Að
hvetja börnin okkar til að setja sér
markmið, vera dugleg, leggja sig
fram og gera alltaf sitt besta, er
farsælasta veganesti sem við getum
veitt börnunum okkar. Hrósum
fyrir dugnað og þrautseigju en ekki
fyrir greind, það eykur líkurnar á
því að barnið verði leitandi í sínu
námi og vilji takast á við erfið og
krefjandi verkefni.
Mesti árangurinn byggist ekki á
því að mistakast aldrei, heldur á
því að gefast aldrei upp.
Nelson Mandela
Haraldur Axel Einarsson,
Ragnheiður Guðný Ragnars-
dóttir, Sóley Halla Þórhalls-
dóttir og Gunnar Þór Jónsson,
skólastjórnendur Heiðarskóla.
stærðfræðikennarar og náttúrufræðikennarinn á
unglingastigi í heiðarskóla hafa fengið iPad tölvur
til að nýta í sinni kennslu. með tilkomu spjaldtölva
í kennslu fá kennarar tækifæri til að nýta tæknina,
sem nemendur alast upp með og þekkja.