Víkurfréttir - 13.12.2012, Qupperneq 12
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
JólablaðIð 2012
Ég hringdi í hana og var mikið niðri fyrir
„ég er búin að klúðra þessu, ég féll á IKEA-
prófinu og er nokkuð viss um að hann
hefur aldrei samband aftur“.
„Heyrðu vinkona, róa sig aðeins – farðu
bara í gegnum þetta með mér og svo
greinum við þetta í sameiningu“.
Sko, við fórum í bíltúr og ég segi „ertu til
í að kíkja við í IKEA, ég ætla að
hlaupa inn og kaupa sprittkerti.
Ódýrast að kaupa pakka með
svona 50 stykkjum, alltaf að spara
jú sí“.
Ég var meðvituð um að þetta
var í fyrsta skipti sem við fórum
þangað saman og því skipti miklu
máli að vanda sig. Ef það er ein-
hvern tímann verið að prófa
mann í þrautseigju, staðfestu og
þolinmæði þá er það þarna. Jæja,
við komum inn í verslunina og
ég geri fyrstu mistökin, tek stóru
innkaupakerruna og hann segir
„uh, ætlaðir þú ekki bara að kaupa
einn pakka af kertum“. Ég fann að ég var
komin á fallbraut og svaraði í vörn og
svolítið kuldalega „það gæti nú vel verið
að ég sæi eitthvað fleira sem mig vantar,
er það glæpur eða!!“. Var einungis búin
að taka nokkur skref þegar ég „datt‘íða“.
Þarna voru glösin sem mig vantaði, mjólk-
urflóarinn ómissandi, servíettur á áður
óþekktu tilboði, klemmur á poka og pokar
sem hægt var að klemma saman, koddinn
sem mundi skila mér nýjum og fallegri
draumum, pottalepparnir, viskustykkið
og svuntan, allt í stíl, lampinn í svefnher-
bergið og mottan fyrir framan rúmið. Ég
fann hvernig augun hans boruðu sig inn í
bakið á mér þar sem hann elti mig þungur
á brún en ég skellti mér í afneitun og hélt
mínu striki – ég átti þetta svo skilið. Þegar
ég kom í kertadeildina til að kaupa spritt-
kertin náði ég nýjum hæðum; jólakertin
komin......í stað þess að kaupa 50 kerti var
ég komin með 170 stykki í öllum stærðum
og gerðum enda eina vitið að kaupa þetta í
svona magnpakkningum. Ég var á þessum
tímapunkti í vandræðum með að ýta kerr-
unni á undan mér - andardrátturinn fyrir
aftan mig varð hærri og þyngri og augun
við það að bora gat á herðablöðin.
OK þetta var orðið gott, nú var bara að
loka augunum og labba eftir minni að
kössunum til að borga. En IKEA er nú
einu sinni hannað þannig að þar er ekki
hægt að labba eftir minni – þetta er eins
og völundarhús og verið hægðarleikur að
nota húsnæðið við upptökur á kvikmynd-
inni Shining. Ég neyddist því til að hafa
augun hálf-opin en við áttum EFTIR að
labba í gegnum „jóladeildina“. HVAÐA
snillingur skipulagði þetta – að labba í
gegnum jóladeildina svona rétt í lokin, er
svipað og þegar labbað er með börnin í
gegnum nammideildina í stórmörkuðum
rétt áður en komið er að kössunum. AUÐ-
VITAÐ missti ég mig þar líka og í öllum
látunum tókst mér að reka grenigrein í
augað HANS og þegar ég ætlaði að sýna
vinarhót og klappa honum á kinnina tókst
mér að skilja þar eftir væna glimmerk-
lessu. Þetta kallaði á hláturskast á versta
tíma – svona geðshræringar hláturskast
þar sem ég hló og táraðist og benti á kinn-
ina á honum á sama tíma. Hann horfði
á mig furðu lostinn og ég fann að hann
hugsaði: hver er þessi kona??
Við komumst með erfiðismunum að köss-
unum og biðin reyndi á þolinmæðina. Ég
stóð sjálfa mig að því að réttlæta allt sem
ég var með í körfunni og lét eins og ég tæki
ekki eftir ískyggilega þungum andardrætt-
inum, eldrauða auganu sem var að byrja
að bólgna og svarta skýjastróknum fyrir
aftan mig – hann var orðinn samviskan
mín holdi klædd.
Við tróðum dótinu inn í bílinn og hann
keyrði mig heim – bárum inn draslið og
svo sagðist hann þurfa að drífa sig. Ég
ákvað að brjóta ísinn, horfði í óskaddaða
augað hans á sama tíma og ég brosti blítt
og sagði: þú veist hvað þeir segja – jólin
byrja í IKEA!
Miðað við hvernig hann spólaði í burtu er
eitthvað sem segir mér að það sé ekki von
á honum aftur í bráð!
Vinkonan hafði hlustað án þess að grípa
inn í en sagði svo; Anna Lóa, það er
nokkuð ljóst, þú ERT fallin!
Þangað til næst – gangi þér vel!
Anna Lóa
Fylgstu með mér – http://www.
facebook.com/Hamingjuhornid
Fallin!!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Anna Lóa
Var einungis
búin að taka
nokkur skref
þegar ég
„datt‘íða“
H
F
IÐAVÖLLUM 6 - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 421 4700 - FAX 421 3320
Sendum Suðurnesja-
mönnum bestu óskir um
gleðileg jól og
farsælt nýtt ár.
Þökkum viðskiptin
á árinu
Lísa Einars
með tónleika
í Keflavíkur-
kirkju
Söngkonan Lísa Einars verður með jólatónleika í Keflavíkur-
kirkju þann 18. desember næst-
komandi. Þetta er í fyrsta sinn
sem hún heldur slíka tónleika en
þess má geta að tónleikadagur-
inn er jafnframt afmælisdagur
hennar.
Á boðstólum verða jólalög sem
hafa verið í miklu uppáhaldi hjá
Lísu í gegnum tíðina og spannar
dagskráin allt frá vinsælum dægur-
lögum til hátíðlegra kirkjusálma.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og verður
miðaverði stillt í algjört hóf, ein-
ungis 1500 krónur.
Lilja Þorsteinsdóttir, Háseylu 32 í Njarðvík hlaut Icelandair ferðavinning til Evrópu í fyrsta úr-
drætti í Jólalukku Víkurfrétta. Dregið var úr Jóla-
lukkumiðum sem skilað var í verslunum Nettó og
Kaskó. Annar úrdráttur verður næsta laugardag.
Tveir aðrir glæsilegir vinningar í þessum fyrsta úr-
drætti af þremur kom í hlut þeirra Jolanta Zdancewicz
Sóltúni 18 Keflavík og Agnieszka Dabrowska, Bjarkar-
dal 28. Þær fengu hvor um sig 15 þús. kr. gjafabréf í
Nettó Njarðvík.
Sextán verslanir og fyrirtæki í Reykjanesbæ eru þátt-
takendur í Jólalukku VF. Þeir sem versla fyrir 5000
kr. eða meira hjá eftirtöldum aðilum fá skafmiða sem
getur innihaldið vinning en 5200 vinningar eru í Jóla-
lukkunni í ár.
Þessir aðilar eru með í jólalukku VF í ár:
Nettó, Kaskó, Kóda, K-sport, Gallerí Keflavík, Georg V.
Hannah, Skóbúðin, Lyfja, Efnalaugin Vík, Eymunds-
son, Lyf og heilsa, Krummaskuð, Omnis, SI verslun,
Heilsuform og Bílahótel.
Lilja vann Icelandair ferðavinn-
ing í fyrsta úrdrætti Jólalukku VF
Auglýsingasíminn er 421 0001
Kiwanisklúbburinn Keilir er með sína árlegu jólatréssölu í Húsasmiðjunni og Blómavali eins og undan-farin ár og bjóða glæsilegt úrval af lifandi trjám. Auk trjáa eru í boði leiðiskrossar og skreyttar greinar.
Jólatréssalan hefur verið ein stærsta fjáröflun þeirra Kiwanismanna en allur ágóði rennur til líknarmála. Það
er opið alla daga til jóla til kl. 21. Á myndinni eru Kiwaniskapparnir Guðni Pálsson og Bragi Eyjólfsson.
Kiwanismenn
selja jólatré