Víkurfréttir - 13.12.2012, Side 14
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR14
JólablaðIð 2012
háspennulínu til Suðurnesja og þau möstur
sem Magnús og félagar hafa verið að hanna
ráða vel við þá línu.
„Það er mikil og góð framtíð í trefjastyrktu
plasti (glertrefjar/koltrefjar/basalttrefjar).
Við erum í dag að leita að samstarfsaðilum
til að fjármagna framleiðslu frumgerða sem
fara í kerfisbundna prófun í Þýskalandi“.
Magnús segir mjög rótgróin öfl á þessum
markaði sem hafa hag af því að viðhalda
óbreyttu ástandi og kæra sig ekki um breyt-
ingar. Samningur um hönnunina eina og sér
getur numið hundruðum milljóna í stórum
verkefnum.
„Við höfum því orðið fyrir árásum af hálfu
þeirra sem halda um markaðinn og vilja fá
að hanna „hefðbundin“ línumöstur í friði.
Einn góður kostur við trefjamöstur er að þau
ryðga ekki. Mögulega endum við uppi með
sömu stöðu á Suðurnesjum og við höfum á
Hellisheiði – mikil ryðmyndum í gömlum
sem nýjum möstrum – ef einhver jarðvarma-
virkjananna sem nú eru á teikniborðinu
verða að veruleika. Það er þó erfitt að ráða í
það allt saman í dag“.
Þessi nýja lausn er samkeppnisfær í verði við
hina hefðbundnu lausn þegar allir þættir eru
teknir inn í dæmið, í sumum tilvikum meira
að segja hagkvæmari, segir Magnús.
„Þá eru gæðin miklu meiri. Hér þarf vitaskuld
að horfa til langs tíma. Ennfremur, ákveðið
lágmarksmagn þarf að vera til staðar eins og
eðlilegt er í fjöldaframleiðslu. Það góða við
markaðinn með háspennumöstur er að þar er
um gríðarlega mikið magn að ræða almennt
séð og því auðvelt að ná inn aftur upphafsfjár-
festingunni ef rétt er að farið,“ segir Magnús
Rannver Rafnsson að endingu.
„Þetta snýst um að þróa háspennumöstur
sem gerð eru úr trefjastyrktu plasti. Trefja-
styrkt plast er að sækja mjög á á mörgum
sviðum verkfræðinnar, þetta er eitt þeirra.
Það er mikil uppsöfnuð þörf fyrir breytingar
þegar kemur að háspennumöstrum,“ segir
Magnús í samtali við Víkurfréttir.
„Hönnun háspennumastra hefur ekki breyst
í grunninn í 80 ár. Hönnun þeirra hefur
byggt á sömu aðferðum og Eiffel turnsins,
en byggingu hans lauk 1889. Það er leitun
að sviði innan verkfræðinnar þar sem breyt-
ingar hafa orðið jafn litlar á jafn löngum
tíma. Nú er kallað eftir nýjum lausnum á
þessu sviði og við ákváðum bara að bregðast
við því“.
Fyrirtækið Línudans ehf starfar með inn-
lendum og erlendum aðilum. Þeir eru m.a.
Háskólinn í Reykjavík, Universität Stuttgart,
verkfræðistofan Verkís, THG Arkitektar og
verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar sem
eru sérfræðingar í háspennu. Magnús hefur
svo leitt þetta verkefni frá upphafi og sam-
ræmt samstarfið.
„Við höfum fengið fjöldann allan af styrkjum,
m.a. frá Rannís (Tækniþróunarsjóði) auk
styrkja í Noregi. Línudans ehf. er fyrst og
fremst verkfræðifyrirtæki í vöruþróun.
Við höfum séð fyrir okkur að koma upp
framleiðslu á Suðurnesjum og þurfum þegar
fram í sækir 70-80 stöðugildi m.v. núver-
andi áætlanir,“ segir Magnús þegar hann er
spurður um hvert hann stefni með Línu-
dans ehf. Hann segir markað fyrir háspennu-
möstur fyrst og fremst vera erlendis. Nú
sé hins vegar umræða hér heima um nýja
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
n Suðurnesjamaðurinn Magnús Rannver Rafnsson:
Hannar háspennumöstur
úr trefjastyrktu plasti
Suðurnesjamaðurinn Magnús Rannver Rafnsson starfar
sem lektor við HiST University College í Þrándheimi í Noregi
þar sem hann kennir „mechanics“ og hönnun burðarvirkja.
Hann hefur einnig undanfarin ár unnið að hönnun og þróun
háspennumastra. Sú vinna hefur leitt af sér fyrirtækið Línudans
ehf. Mösturin myndu henta fyrir nýja Suðurnesjalínu en nýverið
var samþykkt að falla frá því að línan fari í jörð í landi Voga.
Endaði uppi á miðju hringtorgi
Ökumaður fólksbifreiðar endaði för sína uppi á miðju hring-torgi við Bolafót í Njarðvík á mánudagsmorgun. Ekki er vitað
hver ástæðan var fyrir því að bíllinn endaði uppi á hringtorginu en
hann stöðvaðist á stóru grjóti skammt frá vörðunni sem þar er. Ekki
var hálka á vegum þegar óhappið varð.
Dráttarbíll var kallaður á staðinn til að koma bílnum af vettvangi. Ekki
urðu nein slys á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR