Víkurfréttir - 13.12.2012, Síða 18
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR18
JólablaðIð 2012
Dós af kókosmjólk (fjólubláa
dósin frá Coop hentar mjög vel)
0,5 dl graskersmauk
¼ tsk kanill (og jafnvel örlítið af
negul og engifer)
1-3 msk (fer eftir smekk, gæti
þurft minna eða meira) Stevia/
hunang/agave sýróp/sykur – það
er betra að nota minna magn en
meira ef notast er við fljótandi
sætu, annars verður kremið of
þunnt.
Galdurinn er að geyma dósina af
kókosmjólkinni yfir nótt inni í ískáp.
Þannig harðnar mesti hlutinn af
henni og daginn eftir er gott að taka
dósina úr ísskápnum, snúa henni
við, opna hana og láta vökvann sem
hefur ekki harðnað leka úr dósinni.
Setjið það sem eftir er í stóra skál og
hrærið restinni af innihaldsefnunum
saman við með handþeytara/hræri-
vél. „Lite“ kókosmjólk mun ekki virka
þar sem hún harðnar ekki. Hægt er
að leika sér með kókosmjólkina og
gera t.d. súkkulaðikrem og bæta þá
við sætu, kakó og vanillu. Ég set hér
mynd af svoleiðis kremi til þess að
sanna að það er virkilega hægt að
gera þykkt krem úr kókosmjólk.
HEIMABAKSTUR
í íþróttahúsinu við Sunnubraut kl. 13:00 og kl. 15:00.
Miðaverð er 1200 kr. fyrir 13 ára og eldri, 600 kr.
fyrir 12 ára og yngri en frítt fyrir yngri en 12 ára í fylgd
með fullorðnum.
Forsala fer fram í Íþróttaakademíunni
fimmtudaginn 13. desember frá kl. 16:00-18:30.
Jólakveðja,
þjálfarar og stjórn
Fimleikadeildar Keflavíkur
Jólasýning
Fimleikadeildar Keflavíkur
Hin árlega
15.
desember
Laugardaginn
i l i il fl í
Graskers cupcakes
með piparkökukeim
3,75 dl heilhveiti
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1 tsk kanill
1/2 tsk negull
1/2 tsk engiferkrydd
1,25 dl hunang
1,25 dl graskersmauk
1,25 dl mjólk
0,6 dl kókosolía
1 egg
Blandið blauta hráefninu vel saman
í stórri skál og þurrefnunum saman
í annarri skál. Hellið svo þurrefn-
unum út í stóru skálina og blandið
lauslega. Hellið í möffinsform, helst í
sílíkonform eða álform til þess að fá
flottu lögunina.
Bakið við 190° í 20-25 mín.
Gott er að hafa rjómaostakrem með
eða þá klassískt smjörkrem bragð-
bætt með hvítu súkkulaði. Annars
langar mig að segja ykkur frá snið-
ugri leið til þess að gera hollara krem
með kókosmjólk en mér finnst ég
verða að „vara“ við að þetta krem
bragðast alls ekki eins og sætt krem
sem flestir eru vanir. Þetta er samt
virkilega sniðug leið fyrir þá sem
vilja borða hollara, að fá krem á
kökuna sína (þó það þurfi alls ekki,
kökurnar eru ljúffengar einar og
sér).
Þessar bollakökur eru
jólalegar þar sem þær
innihalda piparköku-
kryddin kanil, negul og
engifer. Þær eru virkilega
mjúkar, þykkar í sér og
svakalega góðar. Upp-
skriftin er mjög einföld
ef þið eigið grasker,
annað hvort sem búið
er að sjóða og stappa en
einfaldast er að kaupa
grasker í niðursuðudós
sem fæst alla vega í
ameríska Kosti og Hag-
kaup. Einnig er hægt
að nota „butternut
squash“ en það hef ég
séð í matvöruverslunum
bæjarins. Þessar slógu í
gegn hjá vinkonunum í
Litlu-jóla saumaklúbbi.
Kökukremúr kókosmjólk
KEflAvíK og lAndSBAnKInn
SöMdU TIl TvEggjA áRA
Knattspyrnudeild Keflavíkur hélt á fimmtudag sína árlega jólahátíð þar sem styrktaraðilum er boðið til hangikjötsveislu.
Þjálfarar meistaraflokka, Zoran Ljubicic og Gunnar Oddsson hjá
karlaliðinu og Snorri Már Jónsson þjálfari meistaraflokks kvenna,
fóru yfir stöðu mála og ræddu næstu skref. Víðir Sigurðsson kynnti
bók sína Íslensk knattspyrna 2012.
Knattspyrnudeild Keflavíkur og Landsbankinn skrifuðu við þetta
tækifæri undir nýjan tveggja ára samstarfssamning en það voru þeir
Þorsteinn Magnússon formaður deildarinnar og Einar Hannesson
útibússtjóri sem skrifuðu undir samninginn.
Báðir lýstu þeir yfir mikilli ánægju með samninginn og samstarfið.
Einar hrósaði einnig knattspyrnudeild Keflavíkur fyrir mikið og gott
aðhald í peningamálum og lýsti jafnframt ánægju sinni með þá stefnu
félagsins að leyfa ungum leikmönnum að spreyta sig.