Víkurfréttir - 13.12.2012, Page 19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 13. desember 2012 19
JólablaðIð 2012
Óskum félagsmönnum okkar og
Suðurnesjamönnum öllum
gleðilegra jóla með þökk
fyrir samskiptin á árinu
sem er að líða
Í ár selur Kiwanisklúbburinn Keilir jólatré í Húsasmiðjunni og Blómavali.
Salan fer fram í Húsasmiðjunni á Fitjum.
Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni
- leiðiskrossar- skreyttar greinar
Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála
Jólatréssala
Opið virka daga kl. 16–21
og um helgar kl. 14–21
hefst 8. desember kl. 14:00
Það var ljúf jólastemmning á árlegri jólasýningu mynd-
listarkonunnar Sossu en að þessu
sinni tóku tveir aðrir listamenn
þátt í sýningunni á vinnustofu
Sossu í Keflavík.
Gestalistamennirnir hjá Sossu voru
Halla Bogadóttir sem sýndi skart-
gripi og Ásta Guðmundsdóttir,
fatahönnuður sem sýndi úrval af
fatnaði sem hún gerir.
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur
er einn af fjölmörgum vinum Sossu
og hann kom og söng mörg lög sín
við hrifningu sýningargesta.
Sossa sagði í stuttu spjalli við VF að
hún væri ánægð með móttökurnar
á sýningunni en margir komu til
hennar. Á sýningunni voru þrjátíu
nýjar eða nýlegar myndir, stórar
og smáar.
En hvernig er líf listamannsins
nú fjórum árum eftir bankahrun?
Sossa segist ekki geta kvartað
enda hafi henni gengið vel. „Ég er
mjög sátt og hef t.d. getað haldið
úti vinnustofu í Kaupmannahöfn
sem mér finnst mjög gott. Það er
nauðsynlegt fyrir listamanninn að
víkka sjóndeildarhringinn.“
Guðrún Lovísa Magnúsdóttir eða
Lúlla í Lyngholti eins og hún er
oftast kölluð.
90 ára afmæli í Vogunum
Guðrún Lovísa Magnúsdóttir frá Sjónarhóli á Vatns-
leysuströnd eða Lúlla í Lyng-
holti í Vogunum fagnar 90 ára
afmæli 18. desember. Af því
tilefni verður hún með „Lúllu
kaffi“ í Tjarnarsal, Stóru-Voga-
skóla laugardaginn 15. desember
á milli kl. 14 og 18. Þeir sem
eitthvað þekkja til hennar eru
hjartanlega velkomnir til að
kasta á hana kveðju og þiggja
veitingar í hennar boði. Eigin-
maður Guðrúnar Lovísu var
Guðmundur Björgvin Jónsson (f.
1. okt. 1913 - d. 23. sept. 1998) frá
Efri-Brunnastöðum á Vatnsleysu-
strönd. Saman áttu þau 12 börn
og eru niðjar þeirra orðnir 113.
Margir sóttu Sossu
heim á jólasýningu
Sossa skæl-
brosandi fyrir-
sæta í glæsi-
legum kjól
frá Ástu Guð-
mundsdóttur
fatahönnuði.
Ef fólk vill gefa henni gjöf
þá verður „peningakassi“ í
anddyrinu merktur björgunar-
sveitinni Skyggni í Vogum,
aðrar gjafir vill hún ekki.