Víkurfréttir - 13.12.2012, Page 20
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR20
JólablaðIð 2012
Daníel Leó Grét-arsson er 17 ára
Grindvíkingur sem
leikur knattspyrnu með
meistaraflokki þar í bæ.
Fótboltinn á hug hans
allan en hann hefur þó
gaman af skólanum
líka, þá sérstaklega
félagslífinu. Daníel er
á náttúrufræðibraut í
FS og Haukur Ægis er
eftirlætis kennarinn
hans. Daníel er FS-ingur vikunnar að þessu
sinni.
Af hverju valdir þú FS?
Styst að keyra frá Grindavík.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Mjög gott oftast einhvað um að vera.
Áhugamál?
Fótbolti númer eitt tvö og þrjú held ég.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Auðvitað stefnir maður út að spila fót-
bolta, annars hef ég ekki hugmynd.
Ertu að vinna með skóla?
Kíki einstaka sinnum til pabba að mála.
Hvað er skemmtilegast við skólann?
Félagslífið er mjög gott eins og áður segir.
Hvar heldur þú þig í eyðum og frímínútum?
Það vill nú svo til að stundataflan mín hefur
engar eyður, en kíki oftast í ræktina í hádegis-
matnum eða heim til kærustunnar í heitan mat.
Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum
tómstundum?
Æfi fótbolta.
Hvað borðar þú í morgunmat?
Ristað brauð með bláberjasultu og osti.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða
frægur?
Hann heitir Nemanja Latino-
vic (stjörnulögfræðingur).
Hvað fær þig til að hlæja?
Oftast vinirnir en svo er einn ákveð-
inn hlátur sem ég hlæ alltaf með.
Hvað er heitasta parið í skólanum?
Jón axel og Guðlaug Björt bera þann titil.
Hvert fara FS-ingar í hádegismat?
Langbest, Subway, Pandan, KFC o.fl.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir
skólameistari í FS?
Ég myndi hætta með umsjónartíma,
þeir eru tilgangslausir.
Eftirlætis:
Sjónvarpsþættir:
Community, Vampire diaries
og Big Bang Theory
Vefsíður:
Kíki reglulega inn á Fotbolti.net
og Facebook
Flík:
Joggingbuxurnar mínar
Skyndibiti:
Subway bjargar mér stundum
Kennari:
Haukur Ægis fær þann titil
Fag:
Íþróttir
Tónlistin:
Mumford and sons og
Ásgeir Trausti myndi ég segja
Hvaða tónlist fílarðu í laumi
(guilty pleasure)?
Bítlarnir eru alltaf jafn góðir
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Árni Gunnar Þor-steinsson er í 10.
bekk í Gerðaskóla. Hans
uppáhalds jólalög eru
Snjókorn falla og Þú komst
með jólin til mín. Eftir-
minnilegasta gjöfin hans
er fyrsti iPodinn hans og
hann langar í föt þetta árið.
Fyrstu jólaminningarnar?
Þegar afi var alltaf að segja
að það kæmi púki í spilin ef
maður spilaði á jólunum.
Jólahefðir hjá þér?
Það er að fara með kortin
á aðfangadag og hjálpa
mömmu að laga til.
Ertu duglegur í eldhúsinu yfir
hátíðirnar?
Ég vaska upp eftir matinn
á aðfangadagskvöld með
systkinum mínum.
Jólabíómyndin?
Polar Express er besta
jólamyndin.
Jólatónlistin?
Snjókorn falla og Þú komst
með jólin til mín er flott líka.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Það er bara misjafnt.
Gefurðu mikið af jóla-
gjöfum?
Bara kærustunni, for-
eldrum og systkinum.
Ertu vanafastur um jólin,
eitthvað sem þú gerir alltaf?
Horfi alltaf á jólamynd-
ina Polar Express.
Ertu mikið jólabarn?
Já ég tel mig vera það.
Besta jólagjöf sem þú hefur
fengið?
Get ekki gert uppi á
milli gjafanna sem ég hef
fengið, alltaf ánægður.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Jólasnjór og horfa á Polar
Express með Hallfríði
Ingólfsdóttur yndislegu
kærustunni minni.
Hvað er í matinn á aðfanga-
dag?
Það er hamborgar-
hryggur á aðfangadag.
Eftirminnilegasta gjöfin?
Örugglega fyrsti
iPodinn minn.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Mig langar í föt.
Horfi alltaf á Polar Express
n Árni Gunnar Þorsteinsson // UNG UmSJón: PÁll oRRI PÁlSSon • PoP@VF.IS
Umsjónartímar
tilgangslausir
Aþena Eir Jónsdóttir Elizondo er grunn-
skólanemi í 10. bekk
í Gerðaskóla. Henni
finnst stuð jólalög best
og verslar gjafirnar í
Reykjavík. Jólaskrautið,
baksturinn og jólalögin
koma henni í jólaskap.
Fyrstu jólaminningarnar?
Þegar jólasveinninn kom
með gjöf handa mér á að-
fangadagsmorgni.
Jólahefðir hjá þér?
Á aðfangadag vakna ég,
bíð spennt allan daginn, fer
með síðustu jólagjafirnar,
geri mig skvísulega, borða
matinn og opna pakkana.
Ertu dugleg í eldhúsinu yfir
hátíðirnar?
Haha nei ég er best
geymd við matarboðið.
Jólabíómyndin?
Ætli það sé ekki Home
Alone og Last Holiday.
Jólatónlistin?
Öll stuð jólalög eru mér í hag.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Reykjavík City baby!
Gefurðu mikið af jóla-
gjöfum?
Tja ætli það ekki. Ég gef
fjölskyldunni, vinum
mínum og kæró.
Ertu vanaföst um jólin, eitt-
hvað sem þú gerir alltaf?
Spilum spil og borðum
ís um kvöldið.
Ertu mikið jólabarn?
Já ég elska jólin!
Besta jólagjöf sem þú hefur
fengið?
Já nú veit ég ekki.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Jólaskrautið, bakstur-
inn og jólalögin.
Hvað er í matinn á aðfanga-
dag?
Hamborgarhryggur, ekki
alveg í uppáhaldi hjá mér.
Eftirminnilegasta gjöfin?
Það var þegar ég og Diljá
frænka mín vorum litlar
og fengum barnastóla
fyrir babyborn ohhh við
vorum svo glaðar!
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ætli iPod sé ekki efst á
listanum þessa dagana.
Er best geymd við matarborðið
n aÞena eir JónsDóttir // UNG UmSJón: PÁll oRRI PÁlSSon • PoP@VF.IS
Birta Dís Jónsdóttir og Helga Sóley Halldórsdóttir, nemendur í 10.
bekk í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ,
fara ótroðnar slóðir til að styrkja starf
UNICEF. Þær munu raka af sér hárið
þann 18. desember næstkomandi og
safna nú áheitum. Þessar 15 ára stúlkur
leggja mikið á sig fyrir gott málefni enda
ekki margar stúlkur á þessum aldri sem
gætu ímyndað sér það að láta raka af
sér allt hárið og þurfa auk þess að fara í
gegnum jólahátíðirnar án þess að setja
upp jólagreiðslu.
Söfnun þeirra Birtu Dísar og Helgu
Sóleyjar hefur farið fram úr björtustu
vonum en þær hafa nú safnað 100 þúsund
krónum. Þær eru alveg óhræddar við að
missa hárið. „Við erum ekkert smeykar
við að missa hárið. Það er jú vont að missa
hárið út af kuldanum úti en maður setur
þá bara á sig góða húfu,“ segir Helga
Sóley. „Ég hlakka eiginlega bara til að
raka þetta af. Þá þarf ég ekki að hugsa
um hárið næstu mánuðina,“ segir Birta
Dís. Hugmyndin kom mjög óvænt upp að
sögn þeirra stúlkna.
„Ég var eitthvað að fara í gegnum hárið á
Helgu. Hún er með rakað hár öðru megin
og ég sagði þá hvað það væri þægilegt að
hreinlega snoða sig. Vinkona mín sagðist
heita á okkur 10 þúsund krónum ef við
myndum snoða okkur og þá kviknaði
hugmyndin að styrkja eitthvað gott mál-
efni. Við höfðum einmitt séð auglýsingu
frá UNICEF deginum áður og ákváðum
að styrkja það starf,“ segir Birta Dís.
Alveg þess virði
Þær Birta Dís og Helga Sóley opnuðu
Facebook síðu þar sem þær auglýstu eftir
áheitum. Sú áheitasöfnun hefur hrein-
lega slegið í gegn og eru þær löngu búnar
að ná markmiði sínu. „Markmiðið var
50 þúsund í upphafi en núna erum við
komnar með 100 þúsund sem er frábært.
Ég held að hárið á okkur sé alveg 100
þúsund króna virði,“ segir Birta Dís og
hlær. Þær óttast ekkert að geta ekki sett
upp glæsilegar jólagreiðslur. „Við hugsum
þetta þannig að það er fullt af börnum úti
í heimi sem hafa ekkert til að borða um
jólin en það er auðvelt fyrir okkur að vera
ekki með neitt hár um jólin. Þetta verður
alveg þess virði.“
„Fjölskyldan hefur tekið vel í þetta.
Mamma sagði strax já en pabbi var svo-
lítið smeykur. Systur mínar hafa ekki
verið alveg eins jákvæðar en flestir hafa
hvatt okkur áfram. Við erum spenntar,“
segir Birta Dís.
Þeir sem vilja heita á þessar hugrökku
ungu stúlkur er bent á að hægt er að leggja
fram frjáls framlög inn á bankareikning
sem þær hafa stofnað. R.nr.: 0142-05-
071036, kt.: 230197-2969. Einnig má
finna frekari upplýsingar á Facebook síðu
þeirra stúlkna.
Raka af sér hárið til styrktar UNICEF