Víkurfréttir - 13.12.2012, Qupperneq 29
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 13. desember 2012 29
JólablaðIð 2012
— En líkt?
H: Mataræðið er að mörgu leyti
líkt, einnig tungumálið og ýmsir
siðir og venjur. Jólin eru t.d. mjög
lík þó gamlárskvöldið sé heldur
dauflegt miðað við heima. Mér
finnst þetta allt mjög keimlíkt
enda fellur þú í hópinn úti á götu
og enginn sér að þú ert útlend-
ingur nema þegar þú ferð að tala
íslensku. Fólk ber líka að hluta
sömu nöfn og á Íslandi. Allt
þetta gerir veru okkar hér mun
einfaldari og auðvelt að aðlagast.
Manni f innst maður ekkert
endilega vera í útlöndum. Þessar
þjóðir hafa þróast á svipaðan hátt
þar sem uppistaðan hefur verið
sjávarútvegur. Því er menning og
matarvenjur að mörgu leyti svip-
aðar. Stærsti munurinn er eigin-
lega þessi hugsunarháttur að eiga
líf og njóta þess, ekki að vinna
myrkranna á milli. Fyrirtækin hér
bera mikla ábyrgð og geta sætt
sektum fyrir að fólk vinni of mikla
yfirvinnu. Öll vinna er hugsuð út
frá sjö og hálfum tíma á dag og
frekar bætt við fólki en láta starfs-
menn vinna yfirvinnu, þó svo það
komi fyrir þegar það eru tarnir.
Svo lifum við mjög hratt á Íslandi,
allt verður að gerast strax. Þú ferð
í húsgagnaverslun og kaupir þér
sófa og ætlast til þess að fá hann
samdægurs. Hérna bíða menn
rólegir vikum saman eftir að fá
hlutinn afhentan.
— Hvernig horfir ástand mála á
Íslandi við ykkur séð héðan frá
Noregi?
H: Ég fylgist ekki mikið með. Finnst
umræðan svo neikvæð og er ekki að
velta mér mikið upp úr málunum
heima, sértaklega í ljósi þess að
ég á ekki möguleika á að flytja til
baka að svo stöddu. Menn eru ekki
bjartsýnir á að það séu einhverjar
lausnir í deiglunni. En auðvitað
tekur maður púlsinn á þessu annað
slagið með blaðalestri á Netinu.
G: Við erum Íslendingar og „heima
er best“ stendur einhvers staðar.
— Hvað mynduð þið ráðleggja
fólki sem stendur frammi fyrir
flutningi frá Íslandi til Noregs?
G: Facebook síðan „Íslendingar
í Noregi“ er orðin mjög öflug og
mikið af upplýsingum að fá þar.
Allir eru tilbúnir að hjálpa og
maður gerir það sjálfur ef maður
getur. Svo er fólk oft með fyrir-
fram ákveðnar skoðanir þegar það
kemur hingað, um landssvæði til
dæmis, myrkrið og kuldann fyrir
norðan, rigninguna fyrir vestan
og að það sé best að vera í suður-
hlutanum. En þetta er ekki alveg
svona einfalt. Til dæmis eru launin
hér á þessu svæði (kringum Osló)
bara lægri en víða fyrir norðan og
húsnæði miklu dýrara. Byggðirnar
fyrir norðan og vestan eru að veita
fólki ýmsa styrki til að flytja á
staðinn og greiða niður húsnæði.
En svo er ekki þar með sagt að þú
þurfir að setjast að til frambúðar
á þeim stað sem þú byrjar á og því
myndi ég ráðleggja fólki að koma
hingað meira með opinn hug.
H: Svo er best að vera kominn með
vinnu áður en fjölskyldan flytur
út því það getur tekið tíma. Það er
ekkert hlaupið að því að fá vinnu
og margir hafa þurft að snúa til
baka til Íslands eftir árangurslausa
atvinnuleit hér.
SPÁNN, NOREGUR
EÐA SIGLUFJÖRÐUR
— Hvaða augum lítið þið til fram-
tíðarinnar?
H: Framtíðin er óráðin því enginn
veit hvað morgundagurinn hefur
í för með sér en að svo stöddu er
ekki í sjónmáli að við komumst
heim alveg strax. Okkur líður vel
í Noregi en okkur leið líka vel á
Ólafsfirði og hefði það verið mögu-
legt hefði ég helst viljað vera þar
áfram, en við gátum það ekki vegna
veikinda Guðrúnar. Það tók tvö ár
að finna út með lyfjagjöfina og það
hefði aldrei gengið upp að sækja þá
læknisþjónustu alla leið að norðan.
G: Ja, ég er í nú í viðskiptanámi
í Háskólanum á Bifröst og ýmis-
legt sem kemur upp á borðið sem
gæti verið tilefni til að sækja um,
sumt hér sunnar í Evrópu. En svo
stendur líka til að byggja hótel á
Siglufirði. Hver veit nema maður
bara sæki um hótelstjórastöðu þar?
Maður veit aldrei og best að leyfa
góðum hlutum að koma til sín og
velja það besta úr.
SF
• Tekur þú omega fitusýrur, vítamín,
steinefni, andoxunarefni,
acidophilus og jurtir ?
• Tekur þú of mikið eða of lítið ?
• Hvaða bætiefni átt þú að velja og
hvað virkar fyrir þig ?
• Geta bætiefni hjálpað við flestum
kvillum ?
Gleðilega meltingu um jólin
Reykjanesbær
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti D.E.T.
verður í Ly�ju Reykjanesbæ að hjálpa
viðskiptavinum að velja réttu
vítamínin og bætiefnin.
Komdu í Lyfju Reykjanesbæ og Inga svarar
spurningum þínum, hvernig þú getur
haldið meltingunni góðri
um jólahátíðina.
Föstudaginn 14.desember
kl: 14-18
Eigum gleðileg jól.
SENDUM BÆJAR-
BÚUM OKKAR BESTU
ÓSKIR UM GLEÐILEG
JÓL OG FARSÆLT
KOMANDI ÁR
�������������������������
�������������������
��������������
����������������
�����������������
����������
Kvarøy. Grunnskólinn og leikskól-
inn stóðu fyrir leiksýningu.
Frá Kvarøy. Aron Ingi að
stinga sér til sunds, að sanna
að hann sé sannur víkingur.
Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is
ÞARFTU AÐ AUGLýSA?