Víkurfréttir - 13.12.2012, Side 30
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR30
JólablaðIð 2012
Daníel stundar mastersnám í íþróttasálfræði við Háskólann
í Lundi á meðan Linda hefur stundað sænskunám og annast
þrjú börn fyrir íslenska fjölskyldu. Daníel segist lengi hafa
haft áhuga á sálfræðilega þættinum í íþróttum og eftir að
hann útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík úr íþróttafræði
þá sá hann að hann vildi leggja þetta fyrir sig í framtíðinni.
Í náminu er farið djúpt í kenningar sem og í praktíska þætti
sem koma sér vel í framtíðinni að sögn Daníels, bæði sem
leikmaður, þjálfari eða sem ráðgjafi í íþróttasálfræði (íþrótta-
sálfræðingur). Daníel er nú einmitt að ljúka verknámi sínu
þar sem hann hefur unnið mikið með ungum körfuknatt-
leiksmönnum sem eru að taka sín fyrstu skref í meistara-
flokki. „Meðal annars hef ég verið að vinna með markmiðs-
setningu, slökunartækni og ímyndunarþjálfun en þetta hefur
verið mjög lærdómsríkt ferli,“ segir Daníel en fljótlega mun
athygli Daníels beinast að lokaritgerð sem hann á að skila í
vor og komandi foreldrahlutverki.
Í mínu besta formi
Daníel hefur alla tíð verið liðtækur körfuboltamaður og æfði
upp alla yngri flokka með Njarðvíkingum. Hann lék svo
með Breiðablik og Stjörnunni meðan hann stundaði nám í
Reykjavík. Hann spilar nú með IK Eos í næstefstu deild í Sví-
þjóð. Þeirri deild er skipt í tvo riðla, norður og suður, en eins
og er þá er lið Daníels á toppi suðurriðilsins. Daníel æfir nær
alla daga vikunnar og segir hann þetta vera kærkomið tæki-
færi til að spila körfubolta í fínum gæðaflokki samhliða námi.
Daníel ætlaði sér að spila með liðinu í fyrra en þá glímdi hann
við leiðinleg meiðsli í baki. Nú hefur hann jafnað sig og segist
aldrei hafa verið í betra formi. „Þetta er það skemmtilegasta
sem maður gerir, svo ég hlakka bara til framhaldsins.“
Daníel segist ekki viss um hvað taki við þegar heim kemur
en hann lék með Stjörnunni áður en hann hélt í víking. „Ég
þarf að skoða mig um og sjá, en vonandi kemur eitthvað
spennandi upp fljótlega. Ég er í mínu besta formi núna svo
ég hlakka bara til að stíga á parketið heima.“ Það sem af er
tímabili hefur Daníel verið að skora tæp 10 stig að meðaltali
með IK Eos en liðið hefur leikið 6 leiki og unnið þá alla.
Stórt Íslendingasamfélag
Einhver liðin í deildinni eru með atvinnumenn eða hálf-
atvinnumenn innanborðs og svo eru hin með leikmenn sem
eru einungis áhugamenn. „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að
bera hana saman við deildina heima en það eru nokkur lið
í deildinni minni sem gætu átt heima í Domino's deildinni,
mitt lið þar með talið. Við fengum m.a. tvo leikmenn til
okkar sem hafa leikið með unglingalandsliðum Svía og voru
í Basketligan (efsta deildin í Svíþjóð). Við vorum með fínan
hóp fyrir svo við erum nokkuð sterkir í vetur.“
Lundur er huggulegur bær staðsettur sunnarlega í Svíþjóð.
Þetta er lítill háskólabær en það eru um það bil 50 þúsund
nemendur sem eru búsettir í samfélaginu. „Ef maður vill
kíkja í stærri borgir þá fer maður bara yfir til Malmö eða
Kaupmannahafnar þar sem maður getur hitt góða vini sem
eru búsettir þar.“ Í Lundi er stórt samfélag Íslendinga og
segir Daníel að það sé vissulega notalegt að geta leitað til Ís-
lendinga ef eitthvað bjátar á.
Þjálfarinn talar bara sænsku
Hvernig hefur annars gengið að læra tungumálið og hvernig
eru frændur okkar Svíar?
„Þeir Svíar sem ég er að umgangast eru helst í körfunni og
í skólanum auðvitað. Þeir virka frekar vel á mig og taka vel
á móti manni hvert sem maður fer, það í rauninni setur
Svíþjóð ofarlega á listann hvað varðar staði sem maður gæti
hugsað sér að búa á utan Íslands í framtíðinni,“ segir Daníel
en hvað varðar sænskuna þá segist hann vel geta reddað sér.
„Þjálfarinn minn tók þann pól í hæðina að tala bara sænsku
á æfingum svo það hefur hjálpað mér að læra tungumálið
betur. Svo er maður með smá bakgrunn úr dönskunni frá
Guðrúnu dönsku í Njarðvíkurskóla og Rósu í FS, þannig að
það hefur auðveldað manni að lesa og skilja sænskuna.“
Daníel og Linda unnusta hans eru á heimleið fljótlega enda
er von á erfingja á nýju ári. „Við eigum von á barni í febrúar
svo við ætlum að flytja aftur á klakann í desember og ég
mun skrifa ritgerðina í rólegheitunum heima. Við kunnum
rosalega vel við okkur hérna í Svíþjóð og það væri spennandi
að búa í Stokkhólmi, en sú borg er frábær, það sem maður
hefur kynnst af henni. Útlöndin heilla yfirleitt og ef það býðst
eitthvað spennandi fyrir okkur erlendis í framtíðinni þá lokar
maður ekkert á það,“ segir Daníel að lokum.
Lukkuleg í Lundi
Njarðvíkingurinn Daníel Guðni Guðmundsson flutti út til Svíþjóðar í lok sumars
árið 2011 ásamt kærustu sinni, Grindavíkurmærinni Lindu Ósk Schmidt. Hann
ákvað að fara í nám í háskólabænum Lundi en þau skötuhjú voru spennt fyrir
því að búa erlendis og drekka í sig aðra menningu. Nú eru þau Daníel og Linda
á heimleið þar sem námi er lokið að sinni en auk þess er von á erfingja innan
skamms hjá parinu. Víkurfréttir náðu tali af Daníel á dögunum og spurðu út í
lífið í Svíaríki.
Daníel og Linda Ósk hafa það huggulegt í Svíþjóð.
Daníel ásamt Baldvini Jóhannssyni vini
sínum sem býr í Danmörku.
Daníel er í hörku
formi og hefur
leikið vel í vetur.