Víkurfréttir - 13.12.2012, Page 32
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR32
JólablaðIð 2012
„Það að gerast au pair var það
næsta sem mér datt í hug,“ en
Ernalind fann frábæra fjöl-
skyldu til að búa hjá með að-
stoð frá foreldrum sínum.
Ernalind útskrifaðist úr FS síðast-
liðið vor en sá ekki fram á að fara
í háskóla strax og langaði til þess
að upplifa smá ævintýri. „Ég var
ekki á leiðinni í háskóla, því ég
hafði ekki hugmynd um hvað ég
vildi læra næst. Ég sá því fram
á að vera ekki bundin í neinu
fram á næsta haust þannig að
þetta var í rauninni fullkominn
tími til að komast aðeins í burtu
og gera eitthvað skemmtilegt
áður en alvaran tekur við.“
Fjölskyldan sem Ernalind býr hjá
er að hluta til íslensk og hún segir
þau vera mesta indælis fólk.
„Maðurinn sem ég bý hjá er ís-
lenskur en konan hans er amerísk
og þau eiga einn strák sem verður
2 ára í janúar. Ég kann rosalega vel
við þau og við náum öll mjög vel
saman. Ég er svo ótrúlega heppin
með að hafa lent á svona fólki því
það hefur gert það svo miklu auð-
veldara að vera frá fjölskyldunni
minni og vinum,“ segir Ernalind.
Hvað muntu dvelja lengi þarna?
„Þar sem ég er ekki að fara á
vegum au pair-síðu getum við
spilað svolítið eftir okkar eigin
reglum. Planið var einfaldlega að
ég myndi koma og vera nokkrar
vikur og við myndum sjá hvernig
það gengi. Ég hef núna verið hérna
„Ég var örugglega í grunnskóla þegar ég vissi að mig langaði að
prufa að búa á öðrum stað og upplifa nýja hluti í nýju umhverfi.
Mig langaði alltaf að fara sem skiptinemi en þegar ég lét loksins
verða af því að fara út var ég orðin of gömul fyrir það,“ segir Er-
nalind Teitsdóttir tvítug Njarðvíkurmær sem dvelur nú við bjartar
strendur Los Angeles borgar í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna.
ALSÆL
Í BORG ENGLANNA
í tæpa þrjá mánuði sem hafa
gengið ótrúlega vel og eins og er
kem ég heim um miðjan desember.
Svo gæti verið að ég fari aftur
eftir áramót en við ætlum bara að
skoða það þegar að því kemur.“
Það eru óneitanlega mikil við-
brigði að flytja frá Reykjanesbæ í
stórborg eins og Los Angeles og
þá sérstaklega hvað varðar mann-
mergðina og umferðina. „Traffíkin
hérna er rosaleg en það kom mér
mjög á óvart hvað hún vandist
fljótt hjá mér. Ég er hætt að kippa
mér upp við það að þurfa að keyra
í hálftíma og lenda á 5 rauðum
ljósum til að komast í ræktina,
á meðan það tekur mig t.d. bara
7 mínútur að labba í ræktina
heima á Íslandi. Hálftími í bíl
líður svo miklu hraðar hérna.“
Fjölbreytt mannlíf
og opinskátt fólk
Hvernig er fólkið og menningin
þarna miðað við hérna heima?
„Ísland er svo lítið að það eru í
rauninni allir eins, sérstaklega
í Reykjanesbæ. Sami fatastíll,
sami tónlistarsmekkur o.s.frv.
og maður ósjálfrátt dettur í þá
gryfju að þurfa að fylgja hinum.
Hérna er svo ótrúlega mikið af
alls konar fólki og það gerir það
miklu auðveldara að vera maður
sjálfur og hafa ekki áhyggjur af
öðrum. Bandaríkjamenn eru líka
svo allt öðruvísi en Íslendingar.
Ég hef komið oft til Bandaríkjanna
svo ég vissi það alveg áður, en
núna er ég að umgangast þau á
allt annan hátt. Fólkið hérna er
svo ótrúlega opið og skemmtilegt
og svo auðvelt að tala við það. Ég
hef lent í hörkusamræðum við
bláókunnugt fólk sem ég hitti úti
í búð. Íslendingur myndi aldrei
labba upp að þér og segja þér hvað
þú ert í ótrúlega flottum fötum, þó
svo að honum/henni finnist það.
Svona hlutir gerast oft á dag hérna
í LA og í rauninni á öllum stöðum
í USA sem ég hef komið til. Við
Íslendingarnir mættum alveg
taka okkur þau til fyrirmyndar að
þessu leyti og hætta að vera svona
lokuð og leiðinleg og henda einu
hrósi í hvort annað öðru hvoru.“
Verð ekki Lakers aðdáandi
Ernalind segist vera búin að skoða
flesta þessa klassísku staði sem
borgin hefur upp á að bjóða.
„Hollywood-skiltið, Hollywood
boulevard, Beverly Hills, Rodeo
drive og Malibu beach. Fyrir utan
þessa túristastaði hef ég fengið að
heimsækja tökustaði auglýsinga,
kíkt í Universal Studios og farið að
sníkja nammi á Halloween. Mér
fannst líka mjög gaman að sjá tvær
leikkonur úr Pretty little liars,“
sem er einn af hennar uppáhalds-
þáttum. „Hostpabbinn minn er líka
búinn að segjast ætla að fara með
mig á NBA leik og gera mig að La-
kers aðdánda, sem er aldrei að fara
að gerast. En ég mun glöð mæta á
leikinn,“ segir Ernalind sem er sjálf
aðdáandi Lebron James sem leikur
með meisturum Miami Heat.
Gæturðu hugsað þér
að búa þarna?
„Það er alltaf draumurinn að búa
í USA og ég verð að segja að L.A.
kæmi vel til greina. Ég gæti alveg
vanist þessu veðri allt árið. Ég
þyrfti samt að koma heim um jólin,
mér finnst ég missa af jólunum ef
ég fæ ekki að eyða þeim í snjó,“ Er-
nalind ætlar að hitta mömmu sína
í New York á leiðinni heim og ætla
þær mæðgur að skoða jólastemn-
inguna í þeirri mögnuðu borg.
Einhvers sem þú saknar
að heiman kannski fyrir
utan fjölskyldunnar?
„Ég get ekki beðið eftir að fá
mér íslenskan blandípoka og
komast á körfuboltaleik,“ segir
Ernalind Teitsdóttir að lokum.
Eftirlætis
Flík:
Jeffrey Campbell skópörin
mín og svo þykir mér ótrúlega
vænt um röndótta skyrtu sem
langamma mín átti og gaf mér.
Matur:
Ég elska allan mat, en jóla-
maturinn stendur alltaf aðeins
meira upp úr en annað.
Drykkur:
Vatn!
Skyndibiti:
Heima er það Subway. Hérna
úti er ekkert sem toppar
frönskurnar á McDonalds.
Sjónvarpsþættir:
Family guy, Grey's anatomy,
Pretty little liars, Gossip girl og
Community eru uppáhalds.
Annars er ég að fylgjast
með 7 þáttum til við-
bótar, ég er þáttasjúk!
Bíómynd:
Pulp fiction, Back to the future
myndirnar og svo er ég ennþá
að ná andanum eftir Dark
knight rises, hún var svo góð!!
Hlutur:
Síminn minn og vatns-
brúsi sem fylgir mér allt.
Ernalind lengst til
hægri ásamt ís-
lenskum vinkonum
við Hollywood-
skiltið fræga.
Á „settinu“ við gerð bílaauglýsingar.
Hverfið þar sem fjölskyldan býr.
Pretty Little Liars stjörnur.