Víkurfréttir - 13.12.2012, Side 34
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR34
JólablaðIð 2012
Guðmundur Garðarsson, fyrrverandi skipstjóri, hefur
ekki setið auðum höndum frá því
hann hætti að stunda sjóinn. Fyrir
rúmu ári síðan náði hann sér í
þekkingu í tréskurði og hefur nú
á einu ári skapað samtals 35 kon-
ur í rekaviðardrumba sem hann
hefur safnað að sér úr fjörum hér
á Suðurnesjum. Drumbana sækir
hann m.a. að Önglabrjótsnefi á
Reykjanesi en vopnaður sporð-
járnum og hamri verða þessar
kubbslegu konur til.
Það er ekki eins og það vanti konur
í líf Guðmundar, því hann á fimm
dætur og átta af níu barnabörnum
hans eru stelpur. Þá fjölgar kon-
unum sem hann sker í tré hratt.
Hluti þeirra er til sýnis í Svarta
pakkhúsinu við Hafnargötu í Kefla-
vík. Þar má einnig sjá lampa sem
Guðmundur smíðar, þar sem hann
sker andlit í trjárætur, eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum sem
Hilmar Bragi, ljósmyndari Víkur-
frétta tók á dögunum. Þar má sjá
Guðmund með sköpunarverk sín.
n Guðmundur Garðarsson, fyrrverandi skipstjóri, situr ekki auðum höndum
35 nýjar konur á einu ári
Listir
Í Svarta pakkhúsinu við Hafnargötu í Keflavík er mikið úrval listmuna og handverks eftir listafólk í Reykjanesbæ. Þar má fá allt frá agnarsmáu
handverki og skarti upp í stór málverk. Meðfylgjandi myndir voru teknar á
dögunum þegar þar var haldið konukvöld Svarta pakkhússins.