Víkurfréttir - 13.12.2012, Side 36
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR36
JólablaðIð 2012JólablaðIð 2012
Víkurfréttir tóku ferðaþjónustubóndann og varaþing-
manninn Birgi tali og spurðum hann af kynnum hans
af dr. Thurber.
„Ég kynntist Thurber þegar ég var í framhaldsnámi í
alþjóðasamskiptum í Washington D.C. í Bandaríkj-
unum. Thurber er fyrrum kennari minn við Amer-
ican University. Hann er einn helsti sérfræðingurinn í
Bandaríkjunum í forsetaembættinu, forsetakosningum
og kosningabaráttu vestra. Thurber er sérlega skemmti-
legur fyrirlesari, viskubrunnur og mikill húmoristi.
Hann hefur fengið fjölmörg verðlaun fyrir kennslu.
Ég hef sjaldan setið jafn áhugaverða fyrirlestra og hjá
Thurber,“ segir Birgir.
„Eftir að ég lauk náminu hefur haldist ágæt vinátta
milli okkar. Þau hjónin eru miklir Íslandsvinir og
afar hrifin af Vatnsleysuströndinni. Vilja helst hvergi
annars staðar vera. Thurber er einnig áhugasamur
um íslensk stjórnmál. Fyrir tveimur árum flutti ég
þingsályktunartillögu á Alþingi um fríverslun við
Bandaríkin. Thurber kom þar við sögu, þegar ég vann
að undirbúningi tillögunnar. Hann útvegaði mér
fundi í Washington með skömmum fyrirvara. Með
öldungadeildarþingmanni og háttsettum embættis-
mönnum, sem höfðu með málið að gera en Thurber
er virtur innan Bandaríkjaþings. Ég fann fyrir miklum
áhuga vestra fyrir auknum samskiptum ríkjanna. Frí-
verslunarsamningur yrði mikil lyftistöng fyrir Ísland.
Stjórnvöld hér heima eru hins vegar ekki áhugasöm
um málið og er það miður. Það er ánægjulegt að Ísland
eigi svona áhrifamikinn bandamann í Washington.
Við þurfum á því að halda,“ segir Birgir.
Birgir og Anna Rut reka ferðaþjónustu að Minna-
Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd. Þar eru þau með 12
gistirými og bjóða m.a. upp á íbúð sem flokkuð er sem
lúxus-gisting. Einnig eru þau með sumarhús á svæðinu
þar sem boðið er upp á gistingu.
Þau fengu fyrir skömmu viðurkenningu frá TripAdvi-
sor og einnig Smarter Travel Media LLC.
Birgir segir það góðan árangur miðað við að hafa ein-
ungis verið með starfsemi í 2 ár en gistiaðstaðan þeirra
er fyrsta ferðaþjónustan á Vatnsleysuströnd.
„Við erum í samstarfi við Ferðaþjónustu bænda og
síðan með markaðssetningu á netinu. Á veturna koma
margir til að sjá norðurljósin og er það toppurinn að
slaka á í heita pottinum og horfa á norðurljósin. Það
má segja að við njótum góðs af því að vera í sveitakyrrð
við sjóinn en stutt er til Reykjavíkur, í Bláa lónið og á
flugvöllinn,“ segir Birgir að endingu.
Heimasíða gistingarinnar á Vatnsleysuströnd er: www.
oceanfronticeland.is
n Helsti sérfræðingur heims í bandarískum kosningum:
Dáir Vatnsleysuströndina
Dr. James A. Thurber prófessor við American University í höfuð-
borginni Washington er einn af helstu sérfræðingum heims í
bandarískum kosningum og tíður gestur á sjónvarpsstöðvum
vestra. Thurber flutti nýverið fyrirlestur í Háskóla Íslands og
spáði þar Obama réttilega sigri. Thurber er mikill Íslands-
vinur. Hann hefur áður komið til landsins og flutt fyrir-
lestra um bandarísk stjórnmál og kosningar. Fáir
vita hins vegar að Thurber dvelur ávallt á Vatns-
leysuströnd þegar hann er á Íslandi. Nánar
tiltekið að Minna-Knarrarnesi
þar sem hjónin Birgir Þórarins-
son og Anna Rut Sverrisdóttir
reka ferðaþjónustu.
„Við erum í samstarfi við Ferðaþjónustu bænda og síðan með mark-
aðssetningu á netinu. Á veturna koma margir til að sjá norðurljósin
og er það toppurinn að slaka á í heita pottinum og horfa á norður-
ljósin. Það má segja að við njótum góðs af því að vera í sveitakyrrð
við sjóinn en stutt er til Reykjavíkur, í Bláa lónið og á flugvöllinn.“
Birgir Þórarinsson og Dr. James A. Thurber í sveitinni við Minna-Knarrarnes.