Víkurfréttir - 13.12.2012, Qupperneq 38
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR38
JólablaðIð 2012
n Óli Haukur Mýrdal fór ásamt Garðari bróður sínum á framandi slóðir í OMO dalnum í Eþíópíu:
Óli Haukur Mýrdal ljósmyndari úr Keflavík segir það hafa blundað í sér
lengi að fara á framandi slóðir til að taka
ljósmyndir. Árið 2009 fór hann í hálfgert
bakpokaferðalag um Indland og var þar á
ferðalagi í 10 daga þar sem hann fór m.a. til
heilögu borgarinnar Varanasi og myndaði
þar heilagt fólk og umhverfi þess.
Eftir Indlandsferðina vaknaði áhugi á að
fara í ferðalag til Eþíópíu og heimsækja
ættbálka í OMO dalnum. Það verkefni
varð að veruleika nú í október sl. þegar Óli
Haukur fór ásamt Garðari bróður sínum í
14 daga ferðalag til Eþíópíu.
Það varð þrautinni þyngri að komast inn
í landið því strax á flugvellinum í Eþíópíu
var ferð þeirra stöðvuð þar sem þeir höfðu
ekki rétta vegabréfsáritun inn í landið.
Bræðurnir urðu því að fara til baka til
London til að fá rétta áritun í sendiráði
Eþíópíu þar.
Þeir bræður fóru með mikið af búnaði með
sér til Eþíópíu. Stór stúdíóljós og rafhlöður
fylltu margar töskur. Við komuna til Eþí-
ópíu öðru sinni var þegar haldið af stað
með leiðsögumanni í átt að OMO dalnum
en ferðin þangað tekur tvo sólarhringa og
var sofið í bílnum á leiðinni.
HeImsóTTU FjóRa æTTbálKa
Óli Haukur myndaði fjóra ættbálka í ferð-
inni. Hann segir að alls staðar þar sem
þeir hafi komið hafi þeir fengið góðar
móttökur. Sumir ættbálkar eru eftirsótt-
ari en aðrir og þekkja orðið inn á forvitni
vestrænna ferðamanna. Þá eru þeir ætt-
bálkar sem Óli Haukur myndaði að hverfa
og má búast við að eftir 10 ár verði lífið
á svæðinu allt annað. Verið er að hrekja
ættbálkana í burtu af landi sínu. Það á að
koma upp sykurverksmiðjum með við-
eigandi sykurræktun. Þá á einnig að stífla
fljótið á svæðinu og virkja það.
Óli Haukur segir að hann hafi mikið langað
til að hitta þetta fólk og vera með því í
ákveðinn tíma. Þann tíma sem þeir bræður
voru á meðal ættbálkanna hafi þeir hjálpað
til við dagleg störf, enda þýði lítið að ætla
að setja sig á háan hest og best að gera allt
á jafningjagrundvelli. Hann segir að það
skipti máli að sýna þessu fólki virðingu
og með því fáist það margfalt til baka. Að
vera drullugur og hjálpa til skilaði rosalega
miklu, segir Óli Haukur.
sVáFU meÐ INNFæDDUm
Bræðurnir tóku með sér lítið kúlutjald til
að gista í. Það var ekki að virka vel, þannig
að þeir sváfu annað hvort undir berum
himni eða inni á gólfi í strákofunum. Óli
Haukur hlær þegar hann er spurður hvernig
það hafi gengið og svaraði því að eftir eina
Ibúfen að morgni hafi skrokkurinn verið
kominn í lag.
Þeir tóku með sér nóg af vatni og borð-
uðu túnfisk úr dós og gamalt brauð. Þeir
smökkuðu einnig á mat innfæddra, sem
byggist mikið upp á geitakjöti og grænmeti.
Það er hins vegar alltaf hætta á matareitrun
fyrir viðkvæma maga Vesturlandabúa.
HVeR æTTbálKUR
meÐ sÍNa sÉRsTÖÐU
Óli Haukur segir að myndatökurnar hafi
gengið vel. Fólkið á myndunum er eins
og það er í sínu daglega amstri og enginn
hafi verið klæddur upp sérstaklega fyrir
myndatökuna. Á meðal þessara ættbálka
tíðkast mikil líkamsmálning og að nota
litaða leðju í hárið. Þannig skapi þeir sér
einkenni og þannig megi þekkja ættbálk-
ana í sundur. Ættbálkarnir fjórir sem þeir
bræður heimsóttu eru Arbore-, Hamer-,
Karo- og Mursi-ættbálkarnir. Hver hefur
sinn stíl en Karo-ættbálkurinn er ættbálkur
stríðsmanna. Arbore er þekktur fyrir mikla
líkamsmálningu á meðan Hamer-fólkið
setur rauða leðju í hár sitt. Þá er Mursi-ætt-
bálkurinn þekkur fyrir líkamsgötun og að
konur í ættbálknum setja risastóra diska
í neðri vörina. Þetta var gert til að fæla
aðra frá og ættbálkurinn gerði í því að gera
konur sínar ljótar svo þeim væri ekki rænt.
Hjá Hamer-ættbálknum er síðan mikil
manndómsvígsla sem er nautastökk. Karl-
menn sem eru að komast til manns þurfa
að geta stokkið yfir 6 nautgripi. Geti þeir
það mega þeir giftast en að öðrum kosti eru
þeir útskúfaðir úr samfélaginu. Á meðan á
manndómsvígslunni stendur láta stúlkur
og konur úr fjölskyldunni hýða sig með
svipuhöggum á bak. Óli Haukur sagði þá
athöfn hafa tekið á og víða megi sjá ljót ör á
konum eftir þá athöfn.
Myndirnar úr ferð þeirra bræðra voru
settar upp á ljósmyndasýningu á Nauthóli
í Reykjavík. Óli Haukur segir að nú standi
til að gefa þær út í vandaðri bók.
Óli Haukur er þegar farinn að huga að
næsta verkefni. Hann langar nú að fara til
Papua New Guinea. Hann sé þegar farinn
að safna fyrir þeirri ferð, enda um dýrt
ferðalag að ræða á slóðir þar sem engin
ferðamennska sé stunduð.
Myndar deyjandi menningu
Bræðurnir Óli Haukur og Garðar fluttu með sér
mikið af búnaði í OMO dalinn. Hér er Óli Haukur við
jeppann þegar komið var til Hamer-ættbálksins.