Víkurfréttir - 13.12.2012, Síða 40
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR40
JólablaðIð 2012
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Jólaball 16. desember kl.11:00.
Dansað í kringum jólatré og jólasveinn
sem á heima í fjallinu Keili mætir í
kirkjuna. Hann gefur öllum börnum
eitthvað gott til að hafa með sér heim.
Aðventusamkoma 16. desember kl.17:00.
Magni Ásgeirsson söngvari syngur nokkur
lög af nýrri plötu í bland við jóla- og
aðventulög. Börn frá Leikskólanum
Hjallatúni sýna helgileik. Eldey, kór eldri
borgara, syngur nokkur lög sem og Vox
Felix kór Fjölbrautaskóla Suðurnesja en
stjórnandi þeirra er Arnór Vilbergsson.
Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn Stefáns Helga
Kristinssonar organista.
Sjá nánar á njardvikurkirkja.is
Sendum íbúum Sandgerðis
bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt nýtt ár
SENDUM BÆJARBÚUM OKKAR
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Sæmundur Hinriksson,
Eðalrein M. Sæmundsdóttir, Hafliði R. Jónsson,
Kristín A. Sæmundsdóttir, Gunnar V. Ómarsson,
Lilja D. Sæmundsdóttir, Davíð Heimisson,
Íris D. Sæmundsdóttir, Vignir Óskarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auður Jóna Árnadóttir,
Framnesvegi 20, Keflavík,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar sunnudaginn 9. desember
á krabbameinslækningadeild 11E á LSH.
Jarðarförin fer fram mánudaginn 17. desember
kl.13:00 í Keflavíkurkirkju.
Einn af stórleikjum ársins í körfunni fer fram í kvöld
þegar Keflavík mætir grönnum
sínum í Njarðvík í Dominos-
deild karla í körfuknattleik.
Leikið er á heimavelli Keflvík-
inga, Toyotahöllinni, og má búast
við hörkuleik. Keflavík er í 6.
sæti deildarinnar með 10 stig en
Njarðvík í 10. sæti með sex stig.
Um er að ræða síðasta deildar-
leik liðanna fyrir jól og því munu
liðin væntanlega leggja allt
undir í kvöld. Víkurfréttir ræddi
við þá Val Orra Valsson hjá
Keflavík og Elvar Má Friðriks-
son hjá Njarðvík fyrir leikinn.
„Ég er mjög spenntur fyrir
þessum leik. Leikir á móti
Njarðvík eru skemmtilegustu
leikir tímabilsins ásamt kannski
bikarúrslitaleik,“ segir Valur Orri.
„Ég þekki vel til hjá Njarðvík
og var í tvö ár hjá félaginu. Ég
n Grannaslagur í Toyotahöllinni í kvöld – Síðasti deildarleikur fyrir jól:
Verða jólin blá eða græn?
þekki vel þessa stráka og á marga
góða vini í Njarðvíkurliðinu.“
„Við byrjuðum tímabilið fullrólega
en það gleymist kannski oft að
við byrjuðum tímabilið á móti
þremur mjög sterkum liðum. Við
unnum svo fimm leiki í röð sem
var mjög mikilvægt til að komast
aftur í toppbaráttuna. Því miður
áttum við hörmulegan leik gegn
Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð
og töpuðum stórt sem var slæmt.
Vonandi kveikir það í okkur fyrir
leikinn gegn Njarðvík.“ Valur segir
að það komi ekki til greina að tapa
fyrir grönnum sínum á heimavelli.
„Það getur auðvitað allt gerst
en við eigum ekki að tapa leik á
heimavelli. Þar eigum við að vera
óstöðvandi. Stuðningsmennirnir
yrðu ekki sáttir ef við myndum
tapa fyrir Njarðvík á heimavelli
þannig að við látum það ekki
gerast. Ef við vinnum þennan
leik þá getum við farið í jólafrí
frá deildinni í góðri stöðu.“
Til í að skora minna
ef Njarðvík vinnur
„Þetta er stærsti leikur tímabilsins.
Við leggjum allt undir í þessum
leik og verðum eiginlega að vinna,“
segir Elvar Már Friðriksson leik-
maður Njarðvíkur. Elvar hefur
leikið vel fyrir Njarðvík í vetur og
er stigahæsti leikmaður liðsins
með 18,3 stig að meðaltali. Njarð-
víkurliðinu hefur hins vegar ekki
gengið vel og er í botnbaráttunni.
„Gengi liðsins hefur verið dapurt.
Það eru margir leikir sem hafa
verið að tapast á síðustu mínút-
unum. Við erum að klúðra
leikjum á lokametrunum sem er
áhyggjuefni. Við eigum mikið inni
og ætlum að leggja allt í sölurnar á
móti Keflavík. Það eru ekki nema
tvö stig í 7. sætið og þurfum við
því nauðsynlega á sigri að halda,“
segir hinn 18 ára gamli Elvar Már.
„Ég hef verið að skora mikið í
vetur og er ánægður með það. Ég
væri hins vegar miklu frekar til í
að skora minna ef Njarðvík myndi
vinna leiki. Við vorum komnir
á skrið þegar við töpuðum fyrir
Tindastóli í síðasta leik þannig
að við erum ákveðnir í sigur. Ef
við ætlum að vinna Keflavík þá
þurfum við að spila okkar leik –
vera fastir fyrir og ákveðnir. Ósjálf-
rátt þá eru leikir á móti Keflavík
mjög fast spilaðir og mikil harka.“
Hvað segir sérfræðingurinn?
Víkurfréttir leituðu til helsta
körfuboltasérfræðings landsins,
Jóns Björns Ólafs-
sonar ritstjóra á
Karfan.is, og fékk
hann til að greina
grannaslaginn.
„Bæði lið töpuðu
í síðustu umferð
svo þau mæta
hungruð inn í El
Classico. Ég vona svo innilega að
liðsmenn beggja liða verði á tánum
og bjóði stuðningsmönnum sínum
upp á leik eins og þeir gerast
bestir. Bæði lið mega muna sinn
fífil fegurri, það er nokkuð ljóst.
Í rúmlega þrjá áratugi hafa þessi
tvö lið skipt Íslandsmeistaratitl-
inum sín á milli með stöku hléum
þar sem KR hefur aðallega náð
að troða sér inn í myndina ásamt
Grindavík, Haukum og Snæfelli.
Eins og flestir geri ég ráð fyrir
miklum slag, Craion og Marcus
Van munu vafalítið slá um sig með
tvennum í þessum leik. Þá ætti
einvígi Elvars og Stephens að verða
athyglisvert í fimmta gírnum. Ni-
gel Moore og Darrel Lewis munu
einnig bjóða upp á gott einvígi og
því býst ég við að Valur Orri Vals-
son og Magnús Þór Gunnarsson
fái á sig hávaxna varnarmenn eins
og Ágúst Orrason og Ólaf Jónsson
svo einvígin er að finna í hverju
horni. Við skulum ekki gleyma
turnunum, ætlar Almar að sýna
Friðriki hvernig nýja kynslóðin
gerir þetta eða mun Heimaklettur
pína hann með reynslunni?
Allt annað en fullt hús er óá-
sættanlegt, forsendurnar fyrir
epískum slag eru fyrir hendi og
í boði montrétturinn yfir jólahá-
tíðina. Njarðvík, að frátaldri
úrslitakeppni, hefur ekki unnið
venjulegan deildarleik í Keflavík
síðan 2. mars 2009. Grænir
ættu því að vera hungraðir en
stigin eru ekki auðsótt í Toyota-
höllina,“ segir Jón Björn.
„Þetta er stærsti leikur tímabilsins.
Við leggjum allt undir í þessum leik og
verðum eiginlega að vinna,“ segir Elvar Már
Friðriksson leikmaður Njarðvíkur.