Víkurfréttir - 13.12.2012, Qupperneq 46
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR46
JólablaðIð 2012
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja
Þórhallur Guðmundsson
verður með einkatíma
þriðjudaginn 18. desember.
Upplýsingar og
tímapantanir í
síma 421 3348
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 12. des. - 19. des. nk.
• Bingó • Gler-, keramik- og
leirnámskeið • Handavinna
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Línudans • Félagsvist • Bridge
• Hádegismatur • Síðdegiskaffi
Föstudaginn 14. desember
Léttur föstudagur kl. 14:00.
Flugfreyjukórinn undir stjórn
Magnúsar Kjartanssonar
Allir hjartanlega velkomnir
Nánari upplýsingar í
síma 420 3400 eða á
www.nesvellir.is/
www.vf.is
sMÁAUGLÝsiNGAR – 421 0000
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
Studíóíbúð í miðbæ Keflavíkur,
allur búnaður fylgir. Uppl. í síma
698 7626.
ÓSKAST
Óska eftir íbúð í Reykjanesbæ/
Sandgerði
Við óskum eftir 2-3 herb. íbúð sem
væri hugsanlega laus nú þegar eða
fljótlega. Við erum hæglát hjón
sem eru komin af léttasta skeiði og
vantar helst íbúð til langtímaleigu.
Uppl. í síma 770 5921.
ÝMISLEGT
Bryggjubásar - Skemmtilegur
markaður í Reykjanesbæ
Erum með opið föstud. frá kl. 16
til 20 og vikuna frá 17. des. laug-
ardaga og sunnudaga frá kl. 13 til
18. Skemmtileg markaðsstemmn-
ing. Básaleiga s. 666-3938.
Bílskúrsútsala
Verðum með bílskúrsútsölu að
Djúpavogi 1, Höfnum, 15. og 16.
desember. Gamalt og nýtt og svo
er heitt á könnunni. Upplýsingar í
síma 847-1499.
TIL SÖLU
Austin mini '91 árg.
Vel með farinn mini til sölu. Verð
450 þús. Uppl. s. 693-2463 Ragnar
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týndur köttur.
Grábröndótt læða hvarf frá heimili
sínu 13. nóv. í Innri-Njarðvík.Þeir
sem hafa séð hana látið vita í síma
821 5618.
Menntamálaráðuneytið hefur heimilað Fisktækniskóla Ís-
lands að taka inn nýnemahóp á
vorönn. „Eins og staðan er núna
stefnir í að við þurfum að setja
fólk á biðlista,“ segir Ólafur Jón
Arnbjörnsson, skólastjóri en ein-
ungis eru teknir inn um 12 nem-
endur í hóp.
„Við erum að kanna möguleika á að
koma fleirum fyrir, en auk nýnema
verður hópur nemenda Fjölbrauta-
skólans í kynningarnámi á vorönn.
Þá verður hópur nemenda í starfs-
þjálfun á vinnustað – tilraunas-
kennslu sem hófst haustið 2011 og
lýkur nú á vorönn,“ sagði Ólafur.
Samningurinn um tilraunakennsl-
una kvað á um ýmiskonar þró-
unarstarf, kynningu á náminu og
samvinnu við aðra fræðsluaðila
sem vilja bjóða fram nám í fisk-
tækni auk tilraunakennslunnar í
Grindavík.
„Fisktækni er nýtt námsframboð
og í stöðugri þróun en það má segja
að þessum tilraunafasa sé nú að
ljúka formlega og við búin að slíta
barnskónum, enda fékk skólinn
formlega viðurkenningu í júlí síð-
astliðnum. Nú er vinna hafin með
fulltrúum ráðuneytisins að nýjum
samningi sem tekur við af þeim
gamla og þar með verður starfsemi
skólans tryggð til næstu ára.
Við reiknum einnig með að taka
inn hóp nýnema næsta haust en
þá verður áhersla lögð á yngra fólk
sem er að ljúka grunnskóla. Við
teljum okkur vera með mjög góðan
valkost fyrir ungt fólk sem vill
fara óhefðbundnar leiðir í námi.
Væntanlegir nemendur á vorönn
eru á öllum aldri, en flestir eldri
en átján ára. Þau sjá sér tækifæri
í að ná sér í hagnýta menntun
og hafa mikinn áhuga á náminu.
Það er mjög ánægjulegt hvað fólk
hefur tekið vel við sér og höfum við
orðið vör við mikinn áhuga hvort
sem það er í grunnmenntun eða
á námskeiðum skólans, s.s. veiða-
færatækni, vélfræði og skipstjórn
smáskipa.
Við erum komin til að vera og
þjónusta þá sem vilja mennta sig í
tengslum við sjávarútveginn og til
að koma til móts við óskir og þarfir
greinarinnar,“ sagði Ólafur.
Góð aðsókn að Fisktækninámi á vorönn 2013
Frá hópefli nemenda Fisktækniskólans 2011.
Þreyttur öku-
maður út í móa
Lögreglunni á Suðurnesjum barst um helgina tilkynn-
ing um undarlegt aksturslag á
Reykjanesbraut. Þar hefði verið
í gangi eins konar svigakstur
á vegkaflanum milli Voga og
Grindavíkur. Fylgdi sögunni
að ökumaðurinn hefði ekið
bifreiðinni út af veginum og eitthvert út í móa.
Lögregla hóf þegar að leita bifreiðar og ökumanns og
fann hvoru tveggja á vegslóða við Vogana. Ökumaður
tjáði lögreglumönnum að hann hefði verið orðinn mjög
þreyttur og því farið út af Reykjanesbrautinni til að leggja
sig, sem var vitaskuld hið eina rétta í stöðunni.
Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út vegna harðvítugra
nágrannaerja um helgina. Þar
áttust við tveir einstaklingar sem
búa sitt á hvorri hæðinni. Íbúi á
neðri hæð tilkynnti lögreglu að
íbúinn á efri hæðinni væri að
henda rusli, sígarettustubbum og
hundaskít niður í garðinn sinn.
Fyrir helgi hefði hann ógnað sér
með hafnarboltakylfu.
Fáeinum mínútum síðar tilkynnti
íbúi efri hæðarinnar lögreglu að íbúi
á neðri hæð væri að grýta steinum,
mjólkurfernum og matarafgöngum
í útidyrahurð og á svalir sínar.
Enn barst tilkynning upp úr hádegi
nokkru seinna og þá tilkynnti íbúi
efri hæðar, að sá á neðri hæðinni
hefði verið að ota að sér stórum
eldhúshnífi sem hann væri búinn
að binda á kústskaft. Hnífamaður-
inn tjáði lögreglu að búnaðinn
ætlaði hann sem vörn gegn hafnar-
boltakylfunni. Lögregla fjarlægði
hnífinn og kústskaftið og sagði
mönnunum að þeir ættu að leysa
ágreininginn friðsamlega, með eða
án aðkomu húsfélagsins.
Harðvítugar
nágrannaerjur
Næsta blað kemur
út 20. desember