Víkurfréttir - 13.12.2012, Side 48
Taktu þátt í spennandi hluta-bréfaleik, þú hefur engu að
tapa.....allt að
vinna! Mér hreis
hugur við til-
hugsunina um
að fjörið væri
að byrja aftur.
E r v i r k i l e g a
ver ið að æsa
upp hungrið í
lýðnum? Nema
hvað það eru allir vasar tómir
þessa dagana og engin lán í boði.
Spariféð uppurið og liggur hjá
kröfuhöfunum. Fæst ekki aftur
gegn veði í hlutabréfum. Gott.
Verðtryggðu lánþegarnir bíða
spenntir eftir afskriftum. Voru
nógu afturhaldssamir til þess að
taka ekki áhættu í gengistrygg-
ingunni. Slæmt. Langaði bara ekk-
ert til þess að taka þátt í þessari
vitleysu. Nema í bílalánunum. Svo
helvíti hagstæð. Á meðan gengið
var kolvitlaust. Í hina áttina. Bíll-
inn dæmdur gamall. Þriggja ára.
Það var hugur í settinu að minnka við sig. Reyndar aðeins
of snemma en hvað um það. Alltaf
til í að reyna eitthvað nýtt. Seldum
alltof stórt hús og keyptum alltof
lítið í staðinn. Milligjöfin hugsan-
lega nýtt til þess að greiða niður
skuldir. Afbrigði af gamla skól-
anum árið 2004. Ég hugsaði mér
gott til glóðarinnar í góðærinu og
kíkti inn á hlutabréfamarkaðinn.
Renndi hýru auga á bankana
þrjá og flugbransann enda svifu
flugvélar yfir þökum. Fóru alltaf
í loftið og komu reglulega heim.
Stútfullar af farþegum. Ekki hægt
að tapa á svoleiðis bransa. Með
fjórar milljónir í vasanum. Hafði
aldrei haldið á svoleiðis fúlgu.
Nema þegar ég fór með spari-
merkjabókina undir hendinni og
leysti þau út fyrir fyrstu íbúðinni.
Hundrað þúsund kallar þá.
Hjartað tók aukaslög í sam-ræðum við Sparibankann.
Sölumaðurinn taldi mig veðja á
réttu hestana. Veðhlaupið í al-
gleymingi. „Þú veðjar á þá sprett-
hörðustu,“ sagði hann sallarólegur
á meðan hann millifærði hverja
milljónina á fætur annarri inn í
sölukerfi hlutabréfakerfisins. Ég
kom heim sveittur í lófunum og
tilkynnti frúnni að ég væri búinn
að þessu. Ekki hægt að tapa. Græði
miklu meira en sem nemur vöxt-
unum af lánunum, sem til stóð að
niðurgreiða. Nóttin áhyggjulaus
en órói innra með mér. Hvað ef
allt fer nú fjandans til. Nei, gröfin
stefna öll í eina átt. Upp.
Magapínan hófst við fyrsta hanagal. Bréfin lækkuðu á
fyrsta degi og sveifluðust næstu
daga. Upp og niður. Innyflin tóku
sömu dýfur. Fréttir af frábærum
uppgjörum „háeffanna“ gerðu
ekki annað en að minnka virði
þeirra. Andskotinn, ég nenni þessu
nú ekki. „Viltu vinsamlega selja
þetta allt, strax!“ Betra að uppfæra
innbúið og kaupa bíl fyrir afgang-
inn. Verðtryggðu lánin halda sér
svo vel. Er það ekki?
vf.is
Fimmtudagurinn 13. desember 2012 • 49. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
FRÉTTAVAKT Í SÍMA 898 2222
ALLAN SÓLARHRINGINN
Verðtryggð Viska
Stærstu styrktaraðilar jóladaga eru:
OPNUNARTÍMI VERSLANA
Laugardagur 15. des. Opið 10:00 - 18:00
Sunnudagur 16. des. Opið 13:00 - 18:00
Mánudagur 17. des. Opið 10:00 - 22:00
Þriðjudagur 18. des. Opið 10:00 - 22:00
Miðvikudagur 19. des. Opið 10:00 - 22:00
Fimmtudagur 20. des. Opið 10:00 - 22:00
Föstudagur 21. des. Opið 10:00 - 22:00
Laugardagur 22. des. Opið 10:00 - 22:00
Sunnudagur 23. des. Opið 10:00 - 23:00
Mánudagur 24. des. Opið 09:00 - 12:00
JÓLASVEINAR
SPRELLA UM BÆINN
föstudaginn 14. des. kl.15:00 - 17:00,
fimmtudaginn 20. des. kl. 15:00 - 17:00,
föstudaginn 21. des. kl. 15:00 - 17:00,
laugardaginn 22. des. kl. 15:00 - 17:00,
sunnudaginn 23. des. kl. 15:00 - 17:00 og 20:00 - 23:00.
VERSLUM HEIMA!
-HAGUR Í HEIMABYGGÐ
Slökkviliðsmenn Brunavarna Suðurnesja leggja gó ðum
málum lið með því að afla fjár
með sölu á dagatali sem skreytt er
myndum af léttklæddum slökkvi-
liðsmönnum. Myndirnar eru teknar
og unnar af félögum í ljósmynda-
klúbbnum Ljósopi í Reykjanesbæ.
Þetta er þriðja árið sem slökkviliðs-
menn gera dagatal sem selt er til
stuðnings góðu málefni.
Í ár ætla þeir að styrkja unga stúlku
frá Reykjanesbæ, Bryndísi Huldu,
sem fæddist þann 26. nóvember
síðastliðinn. Bryndís Hulda, sem er
dóttir þeirra Söndru Valsdóttur og
Garðars Magnússonar, er með mjög
alvarlegan hjartagalla sem greindist
í 20 vikna sónar og móður hennar
var boðið að enda meðgönguna en
tók það ekki í mál. Hún fór því út
í hjartaaðgerð aðeins tveggja daga
gömul.
Þessu fylgir mikill kostnaður fyrir
fjölskylduna en fyrir eiga hjónin tvö
börn. Slökkviliðsmennirnir hafa því
ákveðið að styrkja fjölskylduna og
hvetja fólk til þess að kaupa dagatal.
Einnig er búið að stofna styrktar-
reikning fyrir fjölskylduna: kennitala
190386-2879 og reikningurinn er
542-14-402847 hjá Íslandsbanka.
Hægt er að kaupa dagatölin í Nettó og
Bónus Reykjanesbæ, blómabúðinni
Cabo í Reykjanesbæ og hjá Bruna-
vörnum Suðurnesja.
Léttklæddir
á dagatali