Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 16
Valsblaðið2011 3
Þorgrímur Þráinsson
Knattspyrnufélagið Valur í 100 ár
ÁFRAM, HÆRRA!
ÁFRAM,
HÆRRA!
1911-2011
Þorgrímur
Þráinsson
ÁFRAM, HÆRRA!
Áfram, hærra! er minningabók um 100 ár í starfi
Knattspyrnufélagsins Vals, séð með augum höfund-
arins og ritstjórnarinnar sem var honum til fulltingis.
Knattspyrnufélagið Valur var stofnað 11. maí 1911.
Bókin geymir fjölda mynda og frásagna.
Í upphafi segir frá því að strákar í KFUM stofnuðu
Val. Séra Friðrik lagði grunn að starfinu í félaginu
en Valur komst á flug þegar Friðrik áttaði sig á því
að knattspyrna er reglubundinn leikur. Hann fann í
knattspyrnuleiknum tækifæri til að kenna og leið-
beina og skapa heilsteypta dugandi menn:
Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik-
inn. Kærið ykkur ekki um að vinna með röngu
eða ódrengilegu bragði. Hælist aldrei yfir
þeim sem tapa.
... 100 ár hafa liðið og bókin segir frá þeim.
Strákar og stelpur hafa áhuga á leiknum
... og leikurinn er undirbúningur til sigurs í lífinu.
Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði!
Valur hundrað ára
11. maí 2011
Texti: Unnur Halldórsdóttir
Hundrað ára unglingur afmælinu fagnar,
aðdáendahópurinn gleðina magnar.
Af frískum stuðningsmönnum fyllist okkar salur
og fullum hálsi segir: Lengi lifi Valur!
Langa sögu og farsæla er freistandi að rekja,
af fögrum, björtum minningum næg er eftirtekja.
Á svona traustum grunni er gæfulegt að byggja
og glaðir, sprækir liðsmenn árangurinn tryggja.
Á Hlíðarenda fimlega er fótboltanum sparkað,
fræknir drengir hafa þar sigurgöngu markað.
Yfir sigri á Frömmurum af fögnuði þeir springa
og fjarskalega er mikilvægt að baka KR-inga.
Og stelpurnar í Val eru virkilega góðar
af velgengni í fótbolta brosa hérna rjóðar.
Sigurinn var tvöfaldur því bikarana báða
Báru þær á Hlíðarenda, himneskt var að sjá það.
Í handbolta og körfubolta hetjur eigum líka
sem heiðurstitlum fjölmörgum skarta hér og flíka.
Með dugnaði og baráttu, ánægju og aga
og aðstoð góðra þjálfara skráð er sigursaga.
Aðstaðan á Hlíðarenda stöðugt bara stækkar,
stjórnun öll til fyrirmyndar, gengi Vals því hækkar.
Bakhjarlarnir öflugu róa öllum árum
svo uppbyggingu svæðisins við farsællega klárum.
Í anda Séra Friðriks stolt við hérna störfum
stefnum fram til sigurs, hvetjum, leiðum, örvum.
Með keppnisskapið mikla mun krafan ætíð vera:
Að kappið aldrei fegurðina má ofurliði bera!
Forsíðumynd. Framtíðarfólk Vals. Á 100 ára afmælisdaginn 11. maí slepptu 100
iðkendur Vals 100 hvítum og rauðum blöðrum til himins í tilefni dagsins. Ákaflega
táknræn og falleg athöfn sem tókst í alla staði vel og minnir okkur á að félagið á alltaf
að stefna áfram hærra og að framtíð þess er í höndum æskunnar.
Ljósmynd. Guðlaugur Ottesen.
Meðalefnis:
5 Valurhundraðára.Unnur
Halldórsdóttir gaf Val ljóð í
afmælisgjöf 11. maí
12 Þrírnýirheiðursfélagará100ára
afmælinu
16 HvererValsmaðurinn.Grímur
Sæmundsen fyrrverandi formaður
Vals fer yfir ferilinn og þróunina
hjá félaginu
40 Hlíðarendiáaðverahornsteinní
frístundastarfihverfisins.Viðtal við
Hörð Gunnarsson formann Vals
48 Myndaopnameðbikarmeisturumí
kvennaknattspyrnu
52 Lykilinnaðvelgengniersamvinnaallraí
Val.Málfríður Erna Sigurðardóttir
fer yfir ferilinn og félagsstarfið
68 ÞórarinnBjörnssonguðfræðingurfjallar
umhugsjónirsr.FriðriksFriðrikssonar
meðknattspyrnu.
74 DagurSigurðssonþjálfariFüsheBerlín
bersamanhandboltaáÍslandiogí
Þýskalandiog svarar spurningum
iðkenda í 2. og 3. flokki
83 Áfram,hærra!Ítarleg kynning á
nýútkominni sögu Vals í 100 ár
eftir Þorgrím Þráinsson
102 MyndaopnatileinkuðÍslandsmeisturumí
handknattleikkvenna
110 Ítarlegumfjöllunímáliogmyndumfrá
100áraafmæliValsoghátíðahöldum11.
maí
116 FulltrúaráðValsheimsækirSkagamenn
124 Myndaopnameðbikarmeisturumí
handknattleikkarla
126 Þjálfunbarnaogunglinga.Fyrirlestrar
frá áhugaverðu þingi um þjálfun
139 Afturíúrvalsdeildíkörfuknattleikkarla
ogkvenna
Valsblaðið • 63. árgangur 2011
Útgefandi: Knattspyrnufélagið Valur, Hlíðarenda við
Laufásveg
Ritstjóri: Guðni Olgeirsson
Ritnefnd: Jón Guðmundsson, Ragnhildur Skúladóttir,
Sigurður Ásbjörnsson og Haraldur Daði
Ragnarsson
Auglýsingar: Haraldur Daði Ragnarsson, Sveinn
Stefánsson, Stefán Karlsson og Guðni Olgeirsson
Ljósmyndir: Guðni Karl Harðarson, Guðni
Olgeirsson, Guðlaugur Ottesen, Ásbjörn Þór,
Sigurður Ásbjörnsson, Soffía Ámundadóttir,
Þorsteinn Ólafs o. .
Prófarkalestur: Guðni Olgeirsson
Umbrot: Eyjólfur Jónsson
Prentun og bókband: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
14 Valsblaðið2011
Starfiðermargt
Stjórn Valsmanna hf að loknum aðalfundi í ársok 2011. Efri röð frá vinstri: Jafet S.
Ólafsson, Brynjar Harðarson formaður, Theodór Halldórsson, Karl Axelsson og Karl
Jónsson. Neðri röð frá vinstri: Ingólfur Friðjónsson og Guðni Bergsson.
dóttir, Óskar Jóhannesson, Ægir Ferdin-
andsson, Gunnar Svavarsson og Atli Sig-
þórsson. Auk þess hefur nefndin notið
aðstoðar Drífu Hilmarsdóttur, Karls
Jeppesen, Guðmundar Siggeirssonar og
Guðna Karls Harðarsonar. Hafið bestu
þakkir fyrir ómetanlegt starf.
Ógleymanlegur afmælisdagur 11.
maí og fjölmargir félagar heiðraðir
Á afmælisdaginn 11. maí var sérlega
ánægjulegt að geta fengið tækifæri til að
heiðra og sýna þakklætisvott til þeirra
fjölmörgu félagsmanna sem lagt hafa
Knattspyrnufélaginu Val lið á undanförn-
um árum með óeigingjörnu starfi sínu.
Aðalstjórn ákvað á þessum tímamótum
að veita 79 aðilum silfurmerki Vals, og
44 aðilum gullmerki félagsins. Að auki
ákvað stjórn félagsins að veita átta ein-
staklingum Valsorðuna en hún hafði fram
til þessa verið veitt þrjátíu aðilum og eru
sextán þeirra á lífi. Þessu til viðbótar
ákvað stjórn félagsins að tilnefna þrjá að-
ila sem heiðursfélaga í Knattspyrnufélag-
inu Val, þá Jón Gunnar Zoega, Pétur
Sveinbjarnarson og Ægi Ferdinandsson.
Nafnbótin „Heiðursfélagi í Knattspyrnu-
félaginu Val“ er æðsta viðurkenning sem
veitt er félagsmönnum í Val og hana
hljóta aðeins þeir einstaklingar sem sinnt
hafa fjölbreyttum ósérhlífnum störfum
fyrir félagið um áratuga skeið og hafa í
starfi sínu stuðlað að ákvörðunum sem
markað hafa – hver um sig – framfara-
skref fyrir Knattspyrnufélagið Val. Ellefu
einstaklingar hafa fram til þessa dags
hlotið útnefninguna sem heiðursfélagar
Vals og voru fyrstir útnefndir 11. maí
árið 1931 þeir séra Friðrik Friðriksson og
Guðbjörn Guðmundsson, en fyrir þessa
útnefningu var síðast útnefndur heiðurs-
félagi á afmælisdegi félagsins árið 1996
þegar Þórður Þorkelsson var útnefndur.
Óska ég öllum þessum aðilum til ham-
ingju með útnefninguna og færi ég þeim
og fjölskyldum þeirra þakkir fyrir frábær
störf fyrir Knattspyrnufélagið Val. Sér-
stakar þakkir fá svo þeir þrír heiðurs-
menn sem orðnir eru heiðursfélagar í
Knattspyrnufélaginu Val.
Góðar gjafir á afmælisárinu
Í tilefni af þessum tímamótum Vals orti
Unnur Halldórsdóttir kvæði um félagið
og færði því að gjöf á afmælisdaginn.
Einstaklega vel gert og skemmtilegt til
þess að vita að það er hugsað til félagsins
frá ýmsum hliðum og því færðar
skemmtilegar gjafir frá andans fólki.
Kvæðið má sjá á öðrum stað í Vals-
blaðinu. Einnig færði Tryggvi Baldvins-
son félaginu að gjöf blástursverk fyrir
trompet sem frumflutt var við fánahyll-
ingu á afmælisdaginn af Kára Húnfjörð
Einarssyni, og nefnist verkið Hylling.
Tryggva eru færða þakkir fyrir frábæra
gjöf til félagsins.
Það er oft mikil stemning á kappleikjum
á Hlíðarenda og stuðningsmenn
áberandi í Valslitum. Yngri iðkendur Vals
í handbolta setja oft skemmtilegan svip á
heimaleikina. Bræðurnir Óskar Arndal
(t.v.) og Gunnar Arndal Kristinssynir
(t.h.) leika báðir handbolta með yngri
flokkum Vals og mæta reglulega á heima-
leiki og taka þátt í stemningunni.
Nokkrir ungir og efnilegir krakkar úr
íþróttaskóla Vals en mikill fjöldi barna
fær sín fyrstu kynni af félaginu í
skemmtilegum íþróttaskóla.
1B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur